Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

„Eftir hverju er beðið?“

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Leik­stjórar NAZA Kristinn vill harðar aðgerðir gegn Ísrael Mynd: TIZIANA FABI / AFP

Það var stút­fullt í öllum sölum Bíó Para­dísar þegar heim­ild­ar­myndin NAZA var sýnd þar í gær­kvöldi í sam­starfi við Courage International. Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, segir mynd­ina varpa ljósi á aðferðir ísra­elska hers­ins á Gaza og hvetur íslensk stjórn­völd til að grípa til harðra aðgerða gegn Ísrael.

Í færslu á Facebook segir Kristinn mynd­ina ekki auð­velda áhorfs, enda fjalli hún um „þjóð­ar­morð, slátrun barna og mann­lega grimmd“. Hann segir áhorfið hafa vakið hug­renn­ingar um „lág­kúru illsk­unnar“, með vísan til heim­spek­ings­ins Hönnu Arendt.

Kristinn segir kjarn­ann í mynd­inni vera við­töl við ísra­elska her­menn og vekur sér­staka athygli á því hversu margir þeirra hafi starfað í tölvu- og njósn­a­deild ísra­elska hers­ins, Unit 8200.

„Þar eru kaldrifj­uð­ustu morð­in­gj­arnir, unga fólkið sem situr í þæg­indum fyrir framan tölvu­skjái í Tel-Aviv og velur, með aðstoð vit­líkis (AI), skot­mörkin þar sem slátra skal fólki,“ skrifar Kristinn.

Hann segir að við val á skot­mörkum séu notuð „vand­lega úthugsuð kerfi um hvernig drepa má sem flesta með reikni­for­múlur og hug­búnað að vopni“.

Kristinn nefnir sér­stak­lega hug­búnað sem beri heitið „Hvar er pabbi?“ (Where’s Daddy?). Hann segir kerfið meðal ann­ars nýta upp­lýs­ingar úr símum eig­in­kvenna og barna þess sem skil­greindur sé sem skot­mark.

„Það er bein­línis stefna að sprengja heim­kynni manna þegar þeir eru í faðmi fjöl­skyld­unnar, helst þegar allir eru sof­andi eða að borða saman kvöld­mat. Öllum er slátrað,“ skrifar Kristinn og segir vitn­is­burð­inn í mynd­inni sýna að allir íbúar Gaza séu taldir rétt­dræpir.

Hann segir mynd­ina ganga gegn full­yrð­ingum Ísraels um að her lands­ins reyni sér­stak­lega að hlífa óbreyttum borg­urum.

Vill viðskiptabann, ferðabann og stjórnmálaslit

Kristinn fjallar einnig um mun­inn á Hamas sem stjórn­mála­sam­tökum og vopn­uðum armi sam­tak­anna, al-Qassam-sveit­unum. Hann líkir sam­band­inu við tengsl Sinn Féin og Írska lýð­veld­is­hers­ins (IRA) á Norður-Írlandi og bendir á að ein­stak­lingar sem Ísraelar skil­greini sem liðs­menn Hamas geti einnig verið borg­ara­legir starfs­menn á Gaza.

Í umræðum eftir sýn­ing­una hafi fólk meðal ann­ars spurt hvað hægt væri að gera. Kristinn segir svar sitt vera að þrýsta á íslensk stjórn­völd um að grípa til aðgerða gagn­vart Ísrael.

Hann leggur til þrjú skref:

  • „Banna öll við­skipti við Ísrael.“
  • „Banna Ísraelum að ferð­ast til Íslands.“
  • „Slíta stjórn­mála­tengsl við Ísrael.“

Kristinn segir að aðgerð­irnar séu ekki rót­tækar og eigi sér sögu­legar hlið­stæður. Hann telur þær þvert á móti hóf­leg við­brögð miðað við alvar­leika máls­ins.

„Raunar eru þetta sjálf­sögð og fremur hóf­leg skref, miðað við alvöru máls­ins og eig­in­lega eðli­legra að spyrja: „Eftir hverju er beðið?““ skrifar Kristinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina