Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

„Nú vil ég fá að vera í friði, end­ur­byggja líf mitt og verja tíma með fjöl­skyld­unni“

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Hjónin fyrr­ver­andi Kieran Hayler hefur verið sýkn­aður af nauðgun Mynd: Samsett

Kieran Hayler, fyrr­ver­andi eig­in­maður bresku fyr­ir­sæt­unnar Katie Price, hefur verið sýkn­aður af öllum ákærum um nauðgun og kyn­ferð­is­brot gegn 13 ára stúlku. Eftir dóms­upp­kvaðn­ing­una sagð­ist hann hafa gengið í gegnum „fimm ára algjöra martröð“.

Hayler var ákærður fyrir þrjár nauðg­anir og eitt kyn­ferð­is­brot gegn stúlkunni í West Sussex árið 2016. Hann var einnig ákærður fyrir fjögur önnur brot sem vörð­uðu kyn­ferð­is­leg sam­skipti við barn. Dómurinn féll í Lewes Crown Court í dag og var Hayler sýkn­aður af öllum ákæru­liðum.

Hann var sýni­lega hrærður þegar dóm­ar­inn til­kynnti honum að hann mætti yfir­gefa sak­born­inga­bekk­inn.

Í yfir­lýs­ingu fyrir utan dóms­húsið, þar sem móðir hans stóð við hlið hans, þakk­aði Hayler fjöl­skyldu sinni og vinum fyrir stuðn­ing­inn.

„Ég vil þakka vinum mínum og fjöl­skyldu sem hafa staðið með mér í fimm ára algjörri martröð. Ég er þakk­látur kvið­dómnum fyrir vand­lega yfir­vegun í þessu erf­iða máli. Nú vil ég fá að vera í friði, end­ur­byggja líf mitt og verja tíma með fjöl­skyld­unni,“ sagði hann.

Katie Price gaf vitn­is­burð gegn fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, sem er 39 ára, í rétt­inum í síð­ustu viku.

Dómarinn gagnrýndi vitnisburð Katie Price

Í nið­ur­stöðu sinni lýsti dóm­ar­inn Price sem vitni sem lög­menn fyrri tíma hefðu kallað „hættu­legt vitni“. Hann sagði hana hafa haft eigin hags­muni af mál­inu og verið lík­lega til að segja eitt­hvað sem gæti haft óeðli­leg áhrif á kvið­dóm­inn, ef hún fengi tæki­færi til þess.

Dómarinn sagði að það hefði lík­lega ekki komið í veg fyrir að sam­bæri­leg staða kæmi upp að nýju ef kvið­dómnum hefði verið vikið frá og málið tekið fyrir aftur.

Þegar Price gaf fyrst vitn­is­burð köll­uðu verj­endur Haylers eftir því að kvið­dóm­ur­inn yrði leystur frá störfum. Þeir sök­uðu hana um að hafa vís­vit­andi reynt að eyði­leggja rétt­ar­höldin.

Lögmaður Haylers, Arlette Piercy, sagði í mál­flutn­ingi sínum að vitn­is­burður Price hefði skapað „yfir­þyrm­andi flóð for­dóma“ sem verj­endur gætu ekki tek­ist á við.

Í yfir­heyrslu kom fram að Price hefði sent stúlkunni skila­boð þegar hún var 14 ára. Þar sagð­ist hún hafa heyrt að Hayler og stúlkan hefðu kysst og að hann hefði „reynt við hana“.

Í öðrum skila­boðum spurði Price stúlk­una: „Kyssti hann þig? Ég ætla ekki að ræða þetta meira, mig langar bara að vita sann­leik­ann.“

Í einu skila­boð­anna sagði Price einnig: „Ég skal gera þig að lít­illi stjörnu.“

Þegar lög­maður Haylers spurði hana út í þessi orð svar­aði Price að um orða­til­tæki væri að ræða og að engar ann­ar­legar ástæður hefðu legið að baki þeim.

Síðar í yfir­heyrsl­unni brást Price reiði­lega við þegar lög­mað­ur­inn sak­aði hana um að ljúga um atburða­rás­ina.

„Ég þarf ekki að vera hérna. Þið getið séð svart á hvítu að eitt­hvað hefur gerst. Ég ætla ekki að láta neinn kalla mig lygara,“ sagði hún.

Sagði ásakanirnar tengjast deilum þeirra

Vörn Haylers hélt því fram að ásak­an­irnar ættu rætur að rekja til deilna hans og Price. Þau skildu árið 2018 og gengu end­an­lega frá skiln­að­inum árið 2021.

Sak­sókn­ar­inn Ryan Richter spurði Hayler hvort deilur hans við Price væru í raun ekki það sem málið sner­ist um. Hayler svar­aði: „Jú.“

Þegar sak­sókn­ar­inn spurði hvort málið sner­ist um að hann hefði nauðgað stúlku svar­aði Hayler: „Það hef ég ekki gert.“

Hayler sagði fyrir dómi að hann teldi Price og stúlk­una hafa hist til að sam­ræma frá­sagnir sínar. Hann taldi einnig að stúlkan hefði verið að leika hlut­verk í lög­reglu­yf­ir­heyrslu árið 2021.

Í loka­ræðu sinni bað sak­sókn­ar­inn kvið­dóm­inn um að horfa fram hjá stórum hluta vitn­is­burðar Price.

„Þið hafið séð allt umrótið sem fylgir Katie Price og þurfið að meta hvaða áhrif hún hefur á málið og hversu mikið vitn­is­burður hennar hjálpar ykkur við að taka ákvörðun,“ sagði hann. Hann bætti við að kvið­dóm­ur­inn mætti leggja allt að 90 pró­sent vitn­is­burðar hennar til hliðar, þar sem hann væri ekki við­eig­andi fyrir málið.

Verjandi Haylers sagði skjól­stæð­ing sinn hafa verið sam­kvæman sjálfum sér og skýran í fram­burði sínum. Hún hvatti kvið­dóm­inn til að vera yfir­veg­aðan og rök­vísan og sagði að til­finn­ingar væru óvinur skyn­sem­innar. Hún benti jafn­framt á ósam­ræmi í fram­burði stúlkunnar, sem hefði oftar en 30 sinnum sagst ekki vita eða muna eftir til­teknum atriðum.

Kvið­dóm­ur­inn, sem skip­aður var fjórum körlum og sex konum, ræddi málið í 14 klukku­stundir og 55 mín­útur áður en hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að sýkna Hayler af öllum ákærum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife