Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað fjóra erlenda menn til fyrirtöku vegna krafna um greiðslu meðlags með börnum þeirra en þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu.
Mennirnir eru frá Ítalíu, Litháen, Úkraínu og Póllandi. Gerð hefur verið krafa um að þeir greiði einfalt meðlag samkvæmt barnalögum þar til viðkomandi börn ná átján ára aldri.
Mönnunum hefur verið gert að mæta á skrifstofu sýslumannsins í Hlíðasmára í Kópavogi í nóvember.
Í kvaðningunum kemur fram að sinni þeir ekki boðuninni muni sýslumaður úrskurða í málunum á grundvelli þeirra krafna og gagna sem þá liggja fyrir í hverju máli.































Athugasemdir