Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúla­dóttir sakar rík­is­stjórn­ina um hroka

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúla­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Vinstri grænna frá Fellabæ, gagn­rýnir harð­lega fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á Loftbrú, sem fela í sér að núver­andi 40% nið­ur­greiðsla á flug­far­gjöldum verði leyst af hólmi með fastri nið­ur­greiðslu að upp­hæð 7.000 krónur fyrir hvern flug­legg. Hún segir breyt­ing­arnar auka kostnað lands­byggð­ar­fólks og ganga gegn mark­miðum um jöfnun búsetu­skil­yrða.

„Lands­byggð­ar­skattur, kaldar kveðjur frá rík­is­stjórn­inni!“ skrifar Jódís í Facebook-færslu þar sem hún gagn­rýnir stjórn­völd harð­lega fyrir að bregð­ast við auknum kostn­aði við Loftbrú með því að skerða nið­ur­greiðslur.

Hún tekur dæmi um flug­miða sem kostar 50.000 krónur. Með núver­andi fyr­ir­komu­lagi fáist 20.000 króna nið­ur­greiðsla, en sam­kvæmt nýja kerf­inu verði hún 7.000 krónur. Það þýði 13.000 króna auka­kostnað fyrir aðra leið­ina og 26.000 krónur fyrir ferð fram og til baka.

„Þetta er auð­vitað ekki skattur í laga­legum skiln­ingi. En fyrir heim­ilið sem þarf að greiða reikn­ing­inn er nið­ur­staðan sú sama. Hærri kostn­aður vegna búsetu,“ skrifar hún.

Segir fjárheimildir ekki hafa fylgt verðlagi

Í færsl­unni bendir Jódís á að kostn­aður rík­is­ins vegna Loft­brúar hafi numið um 740 millj­ónum króna árið 2025, en fjár­heim­ildir hafi verið 600 millj­ónir. Hún segir hins vegar að fjár­heim­ild­irnar hafi ekki verið verð­bættar og að sam­kvæmt útreikn­ingum sem Aust­ur­frétt hafi fjallað um þyrftu þær að vera um 860 millj­ónir króna til að halda sama raun­virði og við upp­haf verk­efn­is­ins.

„Það er því ekki bara Loft­brúin sem hefur orðið dýr­ari. Stjórn­völd hafa látið fjár­mögnun hennar rýrna að raun­virði,“ skrifar Jódís.

Hún rifjar jafn­framt upp að hún hafi á sínum tíma lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi um Loftbrú, meðal ann­ars hvort fjölga ætti þeim sex flug­leggjum sem hver ein­stak­lingur getur fengið nið­ur­greidda á ári. Í svari þáver­andi inn­við­a­ráð­herra árið 2022 hafi komið fram að aukin notkun gæti gefið til­efni til end­ur­skoð­unar, þótt það væri háð fjár­veit­ingum.

Gagnrýnir áhrif á fólk sem þarf að ferðast með skömmum fyrirvara

Jódís segir breyt­ing­arnar koma mis­jafn­lega niður á fólki. Þeir sem nái að kaupa ódýr­ustu flug­mið­ana geti fengið meiri afslátt en áður, en þeir sem þurfi að kaupa dýr­ari miða fái minni nið­ur­greiðslu.

Hún nefnir sér­stak­lega fólk sem þurfi að ferð­ast með skömmum fyr­ir­vara vegna veik­inda, fjöl­skyldu­að­stæðna eða ann­arra brýnna erinda.

„Það eru nokkrir dagar síðan ég fjall­aði ítar­lega um þetta! Þarna liggur órétt­lætið,“ skrifar hún.

Jódís gagn­rýnir jafn­framt þau rök að breyt­ing­arnar geti haft jákvæð áhrif á verð­bólgu og spyr hvernig skerð­ing á nið­ur­greiðslum sam­ræm­ist mark­miðum stjórn­valda um jöfnun búsetu­skil­yrða.

„Ætlar rík­is­stjórnin í alvöru að selja lands­byggð­ar­fólki skerð­ingu á nið­ur­greiðslum sem fram­lag til bar­átt­unnar gegn verð­bólgu? Hvílíkur hroki!“ skrifar hún.

Að lokum segir Jódís að Loftbrú hafi verið komið á til að draga úr aðstöðumun vegna búsetu, bæta aðgengi að þjón­ustu og gera inn­an­lands­flug að raun­hæf­ari sam­göngu­kosti.

„Það er ekk­ert nátt­úru­lög­mál að fjár­heim­ild sem hefur rýrnað að raun­virði verði að standa óbreytt. Það er póli­tísk ákvörðun. Rétt eins og það er póli­tísk ákvörðun að láta lands­byggð­ar­fólk greiða mis­mun­inn,“ skrifar hún.

Hún lýkur færsl­unni á orð­unum: „Kaldar kveðjur úr stjórn­ar­ráð­inu. Reikn­ing­ur­inn sendur út á land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ