Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sveinn Rúnar Sig­urðs­son, læknir og laga­höf­undur, segir dauða rúm­lega árs­gam­allar stúlku í rúss­neskri árás á Kharkív minna á þann hryll­ing sem úkra­ínskir borg­arar búi við dag­lega. Hann gagn­rýnir jafn­framt hörð við­brögð fjöl­margra Íslend­inga við fréttum af íslenskum stuðn­ingi við Úkraínu.

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Mæðgurnar Angelina og Inna lét­ust í árás Rússa Mynd: Facebook

Í Facebook-færslu fjallar Sveinn Rúnar Sig­urðs­son um dauða Angelinu, rúm­lega árs­gam­allar stúlku sem lést í dróna­árás í borg­inni Kharkív í Úkraínu 19. októ­ber. Móðir hennar, Inna, lést einnig af sárum sínum nokkrum klukku­stundum eftir árás­ina.

Sveinn Rúnar, sem er hvað þekkt­astur fyrir að hafa samið fjöl­mörg lög í söng­keppni Sjón­varps­ins, segir mynd af stúlkunni, líf­lausri í kerru sinni, hafa birst víða um heim og á sam­fé­lags­miðlum.

„Það var íranskur dróni sem grand­aði litlu fjöl­skyld­unni og fleiri börnum og for­eldrum á leik­vell­inum í Kharkív Úkraínu,“ skrifar hann. Hann bendir jafn­framt á að drón­inn hafi verið knú­inn kín­verskum mótor og íhlutum og skotið á loft af Rússum.

Sveinn Rúnar segir árás­ina ekki vera eins­dæmi heldur hluta af dag­legum veru­leika almennra borg­ara í Úkraínu.

„Nákvæm­lega svona árásir skipta hund­ruðum á hverjum ein­asta degi og eiga sér stað um ger­vallt landið,“ skrifar hann.

Hann lýsir því hvernig árás­irnar bein­ist að borg­ara­legum skot­mörkum, þar á meðal íbúð­ar­húsum, sjúkra­húsum, skólum, brúm og lestum. Afleið­ing­arnar séu meðal ann­ars sam­an­fallin fjöl­býl­is­hús, eyði­legg­ing inn­viða og dauði barna og for­eldra.

„Saga Angelinu er ekk­ert eins­dæmi,“ segir Sveinn Rúnar og lýsir jafn­framt erf­iðum aðstæðum úkra­ínskra barna sem þurfi að stunda skóla í neð­an­jarð­ar­byrgjum.

Gagnrýnir Bandaríkjaforseta

Sveinn Rúnar telur að sér­stakar aðstæður hafi gert árás­ina sem varð Angelinu og móður hennar að bana enn átak­an­legri. Hann segir loft­varnaflaut­urnar ekki hafa hljó­mað þennan dag.

Hann beinir harðri gagn­rýni að for­seta Banda­ríkj­anna og tengir ákvarð­anir hans um stuðn­ing við Úkraínu við póli­tíska og fjár­hags­lega hags­muni. Hann heldur því meðal ann­ars fram að slökkt hafi verið á Starlink-kerfi úkra­ínska hers­ins og upp­lýs­inga­gjöf um yfir­vof­andi loft­árásir stöðvuð.

Þá gagn­rýnir hann til­raunir til að draga úr við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi og heldur því fram að við­skipta­hags­munir tengda­sonar for­set­ans og Steve Witkoff, banda­rísks erind­reka, hafi áhrif á stefnu Banda­ríkja­stjórnar í garð Úkraínu.

Sveinn Rúnar tengir einnig stefnu Banda­ríkja­for­seta í Mið­aust­ur­löndum og áhrif hennar á elds­neyt­is­verð við til­raunir hans til að hafa áhrif á þing­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber.

Hneykslun vegna íslensks stuðnings

Í færsl­unni vísar Sveinn Rúnar einnig til fréttar á Vísi um að Íslend­ingar hefðu frá árinu 2022 stutt Úkraínu með vopna­kaupum fyrir sam­tals 20,4 millj­arða króna, eða um 150 millj­ónir evra.

Hann segir við­brögðin við frétt­inni á Facebook hafa verið hörð og að hund­ruð manna hafi lýst yfir hneykslan sinni í athuga­semdum.

Sveinn Rúnar gagn­rýnir þessi við­brögð og segir að reiðin hafi meðal ann­ars beinst að þeim sem minnst mega sín.

Hann ber íslenskan stuðn­ing við Úkraínu saman við stuðn­ing Svía og segir Svía hafa lagt fram fimm- til sexfalt hærri upp­hæð á hvern íbúa.

Jafn­framt bendir hann á að um 1,5 pró­sent íbúa Íslands séu úkra­ínskir flótta­menn. Flestir þeirra séu í vinnu og greiði skatta hér á landi.

„Ef íslenskir vinnu­veit­endur borga þessu fólki lág­marks­laun, er stað­reyndin samt sú að Úkra­ínu­menn á Íslandi hafa greitt þessa upp­hæð í skatta á Íslandi og gott betur,“ skrifar hann.

Hann vísar einnig til reynslu Tékka og segir útreikn­inga þar í landi hafa sýnt fram á fjár­hags­legan ávinn­ing af komu úkra­ínskra flótta­manna.

„Megi minning Angelinu og Innu lifa“

Í lok færsl­unnar sendir Sveinn Rúnar Úkra­ínu­mönnum kveðju og vonar að þeir finni styrk til að takast á við áfram­hald­andi stríðs­á­tök og mót­læti.

„Megi Úkra­ínu­menn hvar­vetna, vinir og fjöl­skylda, finna styrk til þess að kom­ast í gegnum þennan hryll­ing, þrátt fyrir yfir­gengi­legt mót­lætið,“ skrifar hann.

Hann lýkur færsl­unni með orð­unum: „Megi minn­ing Angelinu og Innu lifa í haf­sjó lát­inna Úkra­ínu­manna, sem nú telur hund­ruð þús­unda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina