Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir von­ar­glætu í heim þar sem mennskan er á und­an­haldi“

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Lula og Kristinn Kristinn er ánægður með úrslit for­seta­kosn­ing­anna í Brasílíu Mynd: Facebook

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, fagnar árangri Luiz Inácio Lula da Silva, for­seta Brasilíu, og segir mik­il­vægt að hann haldi velli á tímum þegar öfga­hægr­inu vex ásmegin víða í Rómönsku Ameríku.

Í færslu á Facebook segir Kristinn að hann fari að jafn­aði var­lega í að hrósa stjórn­mála­mönnum, enda þurfi blaða­menn einnig að gagn­rýna þá þegar þeir fari út af spor­inu. Lula sé þó einn fárra stjórn­mála­manna sem virki ein­lægir í ásetn­ingi sínum til að vinna almenn­ingi gagn.

Kristinn segir for­set­ann einnig gefa til kynna að honum sé raun­veru­lega umhugað um fólk og nefnir sér­stak­lega hlý­legt við­mót hans og þétt hand­tak.

Lula studdi baráttu Assange

Kristinn rifjar upp fyrsta fund sinn með Lula fyrir fjórum árum, eftir að for­set­inn hafði sigrað Jair Bol­son­aro í kosn­ingum. Að sögn Kristins náði hann þá að ræða við Lula í um klukku­stund, þrátt fyrir mikla spennu í höf­uð­borg­inni. Hann segir stuðn­ings­menn Bol­son­aro og for­set­ann sjálfan hafa verið að und­ir­búa valda­rán skömmu síðar.

Á fund­inum hét Lula Kristni fullum stuðn­ingi í bar­átt­unni fyrir frelsi Julian Assange og segir Kristinn for­set­ann hafa staðið við það lof­orð.

Lula tal­aði máli Assange á ýmsum vett­vangi, meðal ann­ars í opn­un­ar­ræðu sinni á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna og í opin­berri heim­sókn til Bret­lands meðan Assange sat í fang­elsi þar í landi.

Kristinn segir Lula einnig hafa beitt sér í sam­skiptum sínum við Frans páfa, sem tók á móti Stellu Assange, eig­in­konu Julians, og sonum þeirra.

Seinni fundur Kristins og Lula fór fram í Róm helg­ina sem Frans páfi var bor­inn til grafar. Þá tókst að skipu­leggja fund milli Assange og brasil­íska for­set­ans með skömmum fyr­ir­vara, svo Assange gæti þakkað honum per­sónu­lega fyrir mik­il­vægan stuðn­ing.

Fund­ur­inn fór fram dag­inn áður en þeir Lula og Assange héldu til að kveðja páfann í hinsta sinn.

Óttaðist sigur öfgahægrisins

Kristinn seg­ist hafa verið svart­sýnn fyrir seinni umferð kosn­ing­anna í Brasilíu. Hann hafi talið miklar líkur á því að landið yrði næsta ríki í Rómönsku Ameríku til að fær­ast í átt að öfga­hægr­inu.

Hann telur að utan­að­kom­andi öfl hafi átt þátt í að greiða þeirri þróun leið.

„Ég var mjög svart­sýnn fyrir þessa seinni umferð kosn­ing­anna og taldi allar líkur á því að Brasilía yrði næsta fórn­ar­lamb pendúl­sveiflu til öfga­hægr­is­ins í rómönsku Ameríku sem vand­lega hefur verið kynnt undir af utan­að­kom­andi öflum, Trump­klíkunni, amer­ískum hvíta­sunnu­söfn­uðum, kristnum síon­istum og Ísra­elistum frá hryðju­verk­a­rík­inu sjálfu.“

Kristinn lýkur færslu sinni á því að segja áfram­hald­andi stöðu Lula mik­il­væga fyrir vonir um mann­úð­legri heim.

„Það er mik­il­vægt að Lula heldur velli. Það sendir von­ar­glætu í heim þar sem mennskan er á und­an­haldi,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ