Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá fram­kvæmda­stjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heim­ild gegn Ísrael“

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Dóms­mála­ráð­herra vísar í reglur Schengen í svari sínu Mynd: Viðreisn

Dóms­mála­ráð­herra segir Ísland bundið af sam­eig­in­legum reglum Schengen um árit­un­ar­frelsi Ísraela. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafi heim­ild til að fella niður slíkt frelsi vegna alvar­legra mann­rétt­inda­brota en hafi ekki beitt henni gegn Ísrael.

Ísland getur ekki afnumið árit­un­ar­frelsi ísra­el­skra rík­is­borg­ara að eigin frum­kvæði eða án sam­ráðs innan Schengen-sam­starfs­ins. Þetta kemur fram í svari Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Mannlífs um hvort henni þyki jafn óásætt­an­legt að Ísraelar ferð­ist til Evrópu og hún sagði í sumar um ferða­lög Rússa, í ljósi stríðs­ins í Úkraínu.

Fyr­ir­spurnin var send í kjöl­far frétta um að ísra­elska flug­fé­lagið Arkia hefði bætt Kefla­vík­ur­flug­velli við áfanga­staði sína og aug­lýsti beint flug til Íslands.

Í fyr­ir­spurn Mannlífs var vísað til ummæla ráð­herra í sam­tali við RÚV í sumar, þar sem hún sagð­ist telja fárán­legt að Rússar fengju að ferð­ast til Evrópu á meðan árás­ar­stríð Rúss­lands í Úkraínu stæði yfir. Ráðherra var spurð hvort henni þætti jafn­framt fárán­legt að Ísraelar fengju að ferð­ast til Evrópu, þar á meðal Íslands, á meðan þjóð­ar­morð væri framið á Gaza og land­rán og ofbeldi ættu sér stað á Vest­ur­bakk­anum.

Ísraelar njóta áritunarfrelsis

Í svari ráð­herra kemur fram að Ísland sé bundið af sam­eig­in­legum reglum Schengen-sam­starfs­ins um það hvaða rík­is­borg­arar þurfi vega­bréfs­á­ritun til að ferð­ast inn á svæðið.

„Rúss­neskir rík­is­borg­arar þurfa sam­kvæmt þeim reglum vega­bréfs­á­ritun en ísra­elskir rík­is­borg­arar mega dvelja á Schengen-svæð­inu í allt að 90 daga á hverju 180 daga tíma­bili án und­ir­rit­unar,“ segir í svar­inu.

Þar kemur jafn­framt fram að eftir inn­rás Rússa í Úkraínu hafi Evr­ópu­sam­bandið fellt niður samn­ing sem auð­veld­aði Rússum að fá vega­bréfs­á­ritun. Frá nóv­em­ber 2025 hafi flestir Rússar aðeins fengið áritun fyrir eina ferð í senn.

„Allar umsóknir frá Rúss­landi eru metnar af mik­illi varúð og skoðað er vand­lega hvort umsækj­andi geti ógnað öryggi Schengen-ríkja,“ segir ráð­herra.

Hún bendir á að Ísland geti ekki breytt árit­un­ar­frelsi Ísraela ein­hliða.

„Und­an­þága Ísraela frá árit­un­ar­skyldu er sam­eig­in­leg regla sem Ísland getur ekki breytt að eigin frum­kvæði eða án sam­ráðs á vett­vangi Schengen.“

ESB getur fellt niður áritunarfrelsi vegna mannréttindabrota

Í svari ráð­herra kemur þó fram að nýlegt reglu­verk Evr­ópu­sam­bands­ins veiti fram­kvæmda­stjórn­inni heim­ild til að fella niður árit­un­ar­frelsi ríkis við til­teknar aðstæður.

„Þó má nefna að sam­kvæmt nýlegu reglu­verki árit­ana getur fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins tekið ákvörðun um að fella niður árit­ana­frelsi ríkis sem brýtur alvar­lega gegn mann­rétt­indum, mann­úð­ar­rétti eða nið­ur­stöðu alþjóð­legra dóm­stóla að und­an­gengnu sam­ráðs­ferli innan Schengen-ríkja.“

Ráðherra segir að fram­kvæmda­stjórn ESB hafi þó ekki beitt þess­ari heim­ild gagn­vart Ísrael.

„Sú ákvörðun er hjá fram­kvæmda­stjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heim­ild gegn Ísrael,“ segir í svar­inu.

Ísland hafi lýst andstöðu við mannréttindabrot

Ráðherra tekur einnig fram að hún hafi opin­ber­lega lagt áherslu á and­stöðu Íslands við mann­rétt­inda­brot á Gaza og að alþjóða­lög eigi að gilda jafnt um alla.

„Í öðru lagi hefur ráð­herra opin­ber­lega lagt áherslu á skýra and­stöðu Íslands við mann­rétt­inda­brot á Gaza og ítrekað að alþjóða­lög eigi að gilda jafnt um alla. Það gerði hún meðal ann­ars á sum­ar­lotu mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna á síð­asta ári.“

Þá segir ráð­herra að heim­ildir erlendra flug­fé­laga til að fljúga til Íslands, hvort sem um sé að ræða áætl­un­ar­flug eða leiguflug, heyri ekki undir mál­efna­svið dóms­mála­ráð­herra eða dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Hún leggur jafn­framt áherslu á að ein­stak­lingum sem taldir eru ógna öryggi eða alþjóða­sam­skiptum Schengen-ríkis sé synjað um komu, óháð því hvaða landi þeir koma frá.

„Hverjum þeim sem er tal­inn ógna öryggi eða alþjóða­sam­skiptum Schengen-ríkis er synjað um komu, óháð því hvaða landi hann kemur frá,“ segir í svari dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina