Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

„Kannski bjargar ein­hver and­lit­inu en börnin far­ast á meðan.“

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Jón Gnarr, þing­maður utan flokka Jón Gnarr segir mála­flokk­inn ekki þola neina bið Mynd: Víkingur

Jón Gnarr gagn­rýnir harð­lega skort á við­eig­andi búsetu- og með­ferð­ar­úr­ræðum fyrir börn með fjöl­þættan vanda. Hann tjáir sig um málið í kjöl­far þáttar Kveiks á RÚV um búsetu­úr­ræði fyrir þennan hóp og segir þol­in­mæði sína gagn­vart aðgerða­leysi stjórn­valda vera á þrotum.

Jón Gnarr gagn­rýnir í færslu á Facebook hvernig börnum sem þurfa á sér­hæfðri með­ferð og þjón­ustu að halda sé neitað um þá þjón­ustu sem þau eiga rétt á.

Jón segir sig ítrekað hafa vakið athygli á stöð­unni og fundað með stjórn­endum, ráð­herrum, starfs­fólki, lög­reglu, for­eldrum og aðstand­endum. Hann hafi jafn­framt átt ótal fundi með umboðs­manni barna, sem hann segir taka undir sjón­ar­mið sín.

Þrátt fyrir til­raunir til sam­starfs, til­lögur að lausnum og þol­in­mæði sé lítið sem ekk­ert að þok­ast áfram.

„Ég hef verið ákveð­inn en lagt mig fram um að vera lipur og sam­vinnu­fús og sýnt æðru­leysi og þol­in­mæði. En hún er alveg að þrotum komin. Ég skil ekki þessa fyr­ir­stöðu og aðgerða­leysi,“ skrifar Jón.

Hann telur að virk úrræði myndu ekki aðeins skila betri árangri heldur einnig vera ódýr­ari en núver­andi fyr­ir­komu­lag. Hann gagn­rýnir að umræðan snú­ist um að upp­færa ferla, gera úttektir og meta hvað hafi farið úrskeiðis í stað þess að koma nauð­syn­legri þjón­ustu á fót.

Segir drengi hafa setið eftir

Jón segir skort á lang­tíma­úr­ræðum fyrir drengi vera eitt brýn­asta vanda­málið. Að hans mati hefur verið mis­munað eftir kyni, þar sem lang­tíma­úr­ræði hafi verið í boði fyrir stúlkur en sam­bæri­leg úrræði skorti fyrir drengi.

Hann bendir á hús­næði í Háholti í Skaga­firði sem hann segir sér­stak­lega hannað fyrir slíka starf­semi. Hann hafi reynt að vekja athygli á mögu­leik­anum á að nýta það en ekki fengið áhuga á hug­mynd­inni.

„Ég fékk þau svör að það væri „of langt í burtu“. Síðan hvenær færð­ist Skaga­fjörður svona langt í burtu?“ spyr Jón og bendir á að lang­tíma­vistun fyrir stúlkur sé meðal ann­ars í Bjargey í Eyja­firði.

Jón segir að áður hafi verið komið upp fjöl­breyttu kerfi úrræða en mörgum þeirra hafi verið lokað í kjöl­far efna­hags­hruns­ins vegna fjár­skorts. Ekki hafi tek­ist að end­ur­byggja kerfið síðan.

Rifjar upp andlát 17 ára drengs á Stuðlum

Jón rifjar einnig upp að tvö ár séu liðin frá því að 17 ára drengur lést í skelfi­legum elds­voða á Stuðlum, með­ferð­ar­heim­ili á vegum rík­is­ins. Hann segir dreng­inn hafa átt alla ævina fram undan og bendir á að hann hafi verið í umsjá yfir­valda þegar hann lést.

Að sögn Jóns sýni skýrslur um málið að alvar­legir brestir hafi orðið. Hann segir málið nú vera til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara sem mann­dráp af gáleysi og að 12 ein­stak­lingar hafi rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Jón leggur áherslu á að ekki sé um svo stóran hóp barna að ræða að ómögu­legt eigi að vera að tryggja þeim við­eig­andi þjón­ustu. Hann segir aðstæður barn­anna og fjöl­skyldna þeirra geta verið afar erf­iðar og að afleið­ing­arnar geti orðið hrika­legar fyrir heilu fjöl­skyld­urnar.

Hann gagn­rýnir einnig orða­lagið sem notað sé um börnin, svo sem „drengi“ og „börn með fjöl­þættan vanda eða stuðn­ings­þarfir“, og telur það geta gert vand­ann óljósan. Að hans mati sé hér ekki um að ræða ein­hvers konar „mjúkt mál“ heldur brýnt verk­efni sem snerti öryggi og fram­tíð barn­anna.

„Börnin farast á meðan“

Jón segir aðgerðir ekki geta beðið í fimm eða tíu ár. Hann gagn­rýnir að for­eldrar þurfi í sumum til­vikum að leita með börn sín til Afríku til að finna við­eig­andi hjálp.

„Meðferð getur ekki kall­ast með­ferð ef hún felur enga með­ferð í sér. Og það bætir ekk­ert að kalla úrræða­leysi úrræði,“ skrifar hann.

Að lokum varar Jón við því að yfir­völd láti tím­ann líða án þess að leysa vand­ann.

„Kannski bjargar ein­hver and­lit­inu en börnin far­ast á meðan. Og svo bíðum við þetta af okkur fram að næsta harm­leik.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ