InnlentJón Guðni bankastjóri: „Samrunaviðræður milli Íslandsbanka og Kviku eru ekki hafnar8. ágúst 2023 „Samrunaviðræður milli Íslandsbanka og Kviku eru ekki hafnar og hafa engin samtöl þess efnis átt sér stað eftir að viðræðum var slitið,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, í skriflegu svari til Mannlífs, vegna fréttar í gær um að þreifingar hefðu átt sér stað milli forsvarsmanna Kviku og Íslandsbanka um að taka aftur upp formlegar viðræður um sameiningu. Heimildir Mannlífs...
InnlentTrylltur maður með hníf á Völlunum í Hafnarfirði – Sérsveitin mætti á staðinn8. ágúst 2023 Uppnám varð á Völlunum í Hafnarfirði í gærkvöld þegar maður vopnaður hnífi gekk berserksgang og olli skemmdum í fjölbýlishúsi. Hnífamaðurinn var viti sínu fjær og ógnaði nærstöddum með vopni sínu. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á vettvangi og naut aðstoðar sérsveitar við að ná til mannsins sem hafði lokað sig af inni í íbúð. Maðurinn var yfirbugaður og færður undir...
SlúðurKristján borgar öllum8. ágúst 2023 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, heldur öllum starfsmönnum sínum á launum þrátt fyrir hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur marvælaráðherra sem gildir til fyrsta september. Engum hefur verið sagt upp og eru áform um að hefja veiðarnar 1. september að óbreyttu, að Því er fram kemur í fjölmiðlum í dag. Um er að ræða á annað hundrað starfsmenn sem hafa drepið tímann undanfarnar...
InnlentSegja föðurbróðir Ásmundar Einars hafa ekið á föður sinn: „Valdimar ók þá á hliðið sem gaf eftir“7. ágúst 2023 Harðar fjölskyldudeilur standa í Dalabyggð vegna umsvifa og gjörða Daða Einarssonar og sonar hans, Ásmundar Einars Daðasonar ráðherra. Deilt er um jörðina Lambeyrar sem var í eigu átta systkina, afkomenda Einars Valdimars Ólafssonar. Jörðin fór á uppboð eftir að Daði hafði skuldsett eignirnar upp í rjáfur. Í framhaldi af uppboðinu leystu þrjú af fyrrverandi eigendum jörðina til sín og eru...
InnlentKristján Þorvaldsson er látinn7. ágúst 2023 Kristján Þorvaldsson, fjölmiðlamaður, lést í gær á Lálandi í Danmörku. Kristján starfaði lengi við fjölmiðla. Bæði í útvarpi og á prentmiðlum en hann var einn stofnenda Séð og Heyrt og var þar ritstjóri í áratug. Einnig ritstýrði hann meðal annars Mannlífi og Vikunni. Í nokkur ár var hann með útvarpsþáttinn Sunnudagskaffi á Rás 2.Kristján var fæddur þann 4.maí árið 1962...
InnlentBraut rúðu á lögreglubíl eftir handtöku7. ágúst 2023 Rólegt hefur verið hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í dag. Ölvaður maður var handtekinn en reyndi að hlaupa frá lögreglu og braut síðan rúðu í lögreglubílnum. Hann var vistaður í fangaklefa. Ökumaður endaði í mýri við flugvöllinn í Reykjavík þegar hann ók í gegnum girðingu. Hann slapp ómeiddur. Maður var handtekinn eftir að hafa ógnað konu með hníf. Málið er í...
InnlentÍslandsbanki og Kvika hefja aftur viðræður um sameiningu7. ágúst 2023 Stjórnendur Íslandsbanka og Kviku hafa undanfarna daga átt í viðræðum um að taka formlega upp samrunaviðræður á nýjan leik. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, Marinó Tryggvason, bankastjóri Kviku banka, og Sigurður Viðarsson, aðstoðarbankastjóri Kviku, hafa átt í góðum samskiptum og rætt þau mál sem fyrri sameiningaviðræður strönduðu á. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Mannlífs. Jafnvel þó stjórnir bankanna hafi ekki komið...
InnlentLögreglan biður ökumenn um að taka ekki sénsinn: „Oft áfengi ennþá að finna í ökumönnum“7. ágúst 2023 Lögreglan á Suðurnesjum minnir á umferðalögin á einum stærsta ferðadegi ársins. Þeir leggja áherslu á að ökumenn með ferðavagni aki á löglegum hraða, líkt og aðrir. Lögreglan varar við því að setjast undir stýri eftir neyslu vímuefna, oft sé áfengi enn mælanlegt daginn eftir mikla drykkju og lítinn svefn. „Margir hyggja ef til vill á heimferð eftir góða verslunarmannahelgi og...
HeimurLæknir myrti ungbarn sitt og tók eigið líf: „Vissum ekki einu sinni að hún væri ófrísk“7. ágúst 2023 Virtur læknir í New York fannst látin ásamt nýfæddu barni sínu á heimili fjölskyldunnar þar sem lögreglan hafði tvisvar verið kölluð út í sumar. Læknirinn Krystal Cascetta var fertug þegar hún banaði fjögurra mánaða gamalli dóttur sinni með skotvopni áður en hún tók eigið líf. Foreldrar hennar voru á heimilinu og komu að Krystal og barni hennar látnum. Ekki hefur...
SlúðurDiljá treystir Bjarna7. ágúst 2023 Fæstum dylst að mikil ólga er innan Sjálfstæðisflokksins sem er í alvarlegri fylgiskreppu. Samstarfið milli Sjálfstæðisflokksins og VG er í uppnámi og samskipti milli flokkanna er við frostmark. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var í viðtali á Sprengisandi þar sem Kristján Kristjánsson spurði hana um ágreininginn á milli stjórnarflokkanna sem hún gerði lítið úr og taldi fráleitt að stjórnin myndi...
InnlentCovid-19Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“6. ágúst 2023 Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir tekur upp hanskann fyrir vin sinn, Kára Stefánsson, sem nýverið viðurkenndi að mögulega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með undirliggjandi sjúkdóma, bóluefni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stefánssonar, sem var áberandi þegar heimsfaraldurinn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og eru margir afar reiðir vísindamanninum, fyrir að mæla...
InnlentSjúklingur gekk berserksgang á slysadeildinni – Annar ógnaði starfsfólki með skærum6. ágúst 2023 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nægu að snúast í dag samkvæmt dagbók hennar en alls dvelja sex manns í fangaklefum lögreglunnar þegar þetta er ritað. Mikið hefur verið af aðstoðarbeiðnum út um allt höfuðborgarsvæðið og hefur lögreglan þurft að aðstoða fólk í annarlegu ástandi. Einnig hafa komið upp nokkuð af umferðarmálum. Tilkynning barst lögreglu vegna íbúa í fjölbýlishúsi í...
HeimurAð minnsta kosti 30 látnir í lestarslysi í Pakistan – Enn unnið að því að losa fólk úr rústunum6. ágúst 2023 Að minnsta kosti 30 eru látnir og 100 slasaðir eftir að farþegalest fór út af sporunum í Suður-Pakistan, samkvæmt BBC. Fjöldi vagna Hazara Express ultu nærri Sahara lestarstöðinn í Nawabshah, um 275 kílómetra frá Karachi, í Pakistan. Særðir farþegar voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús og viðbragðsaðilar eru enn að störfum við að reyna að losa fólk úr rústum vagnanna. Samkvæmt...
MenningBrynjar í Berlín: „Miðaldra karlmenn eru nákvæmlega eins og þeir voru fyrir 40 árum“6. ágúst 2023 Brynjar Níelsson, fyrrum aðstoðamaður dómsmálaráðherra, situr ekki auðum höndum eftir að hann missti vinnuna í sumar. Eða það er að segja, hann situr ekki auðum höndum heima hjá sér, hann er á ferðalagi. Brynjar skrifaði skondna færslu á Facebook þar sem hann segir frá fimmta degi sínum og eiginkonu hans, Soffíu, í þýsku höfuðborginni, Berlín. Eins og vanalega notar Brynjar...
InnlentAnnar vespuræningjanna úrskurðaður í gæsluvarðhald6. ágúst 2023 Annar vespuræningjanna sem handtekinn var í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar hennar á síbrotum og tveimur vopnuðum ránum í gær. Sagt var frá því í fréttum í gær er tveir menn um tvítugt hefðu farið um á vespu og veist að gangandi vegfarendum með hnífi. Ekki getur lögreglan...
HeimurRússar sprengdu blóðgjafamiðstöð í Úkraínu í gær: „Þessi stríðsglæpur segir allt um yfirgang Rússa“6. ágúst 2023 Fjarstýrð rússnesk sprengja hitti blóðgjafamiðstöð í Norð-Austur Úkraínu í gær samkvæmt forseta landsins. Fram kemur í frétt BBC að Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefði ekki gefið upplýsingar um nákvæmar tölur af þeim sem særðust eða létust í árásinni, sem varð í Kharkiv-umdæminu. „Þessi stríðsglæpur segir allt um yfirgang Rússa,“ sagði forsetinn. Rússar hafa ekki tjáð sig um árásina en hafa...