Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Brynjar í Berlín: „Miðaldra karlmenn eru nákvæmlega eins og þeir voru fyrir 40 árum“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, fyrrum aðstoða­maður dómsmála­ráðherra, situr ekki auðum höndum eftir að hann missti vinnuna í sumar. Eða það er að segja, hann situr ekki auðum höndum heima hjá sér, hann er á ferðalagi.

Brynjar skrifaði skondna færslu á Facebook þar sem hann segir frá fimmta degi sínum og eiginkonu hans, Soffíu, í þýsku höfuð­borginni, Berlín. Eins og vanalega notar Brynjar tækifærið og skýtur á vinstri menn og fleiri en það gerir hann með lúmskum húmor, sem hann er löngu orðinn þekktur fyrir. Helsta niður­staða Brynjars á Berlínar­búum er sú að þeir hafi lítið breyst síðustu 40 árin, þó ekki fari mikið fyrir yfir­vara­skeggjum.

Færsluna skemmtilegu má lesa hér að neðan:

„Dagur 5 í Berlín. Ég er að verða eins og gamli vélstjórinn á Tene og sendi daglega fróðleik heim. Kann að vera að það sé meiri sann­leikur í dagbók vélstjórans.

Ég fór í morgun að styttunum af Marx og Engels. Þeir voru miklir félags­vísindamenn og ekki síðri en þeir bestu í dag. Helsta vísinda­afrek þeirra var hinn vísinda­legi sann­leikur sósíalismans. Mér skilst að þeirra afrek í þessum fræðum séu enn í hávegum höfð, meira að segja á Íslandi. Hér í Berlín nýtur Die Linke, sem eru leyfar af gamla austur þýska kommúnista­flokknum, talsverðs fylgis ásamt græningjum og einhvers konar pírata­flokki.Sumir segja að Berlín sé mikil fjöl­menningar­borg. Ég verð ekki var við það. Miðaldra karlmenn eru nákvæmlega eins og þeir voru fyrir 40 árum, með sítt að aftan og gullkeðju um hálsins og úlnliðinn. Yfir­varaskeggið að vísu ekki eins áberandi. Unga fólkið ekki heldur mikið breyst. Ráfar um á milli kaffihúsa, vefja sér jónu, húðflúrað um allan líkamann og halda að þau séu listamenn.En það sem hefur breyst er að Berlínar­búar, eins og Þjóð­verjar almennt, eru mikið til hættir að eignast börn. Held að ég hafi séð eina barna­kerru alla ferðina og það voru sennilega túristar. Hins vegar eiga þeir nóg af hundum. Hér er á hverju horni boðið upp á hunda­námskeið og hunda­þjálfun. Soffía velti fyrir sér af hverju einhverjum hugmynda­ríkum bisness­manni hafi ekki dottið í hug að koma á svona námskeiðum og þjálfun fyrir eiginmenn.Ég hef komist að því í þessari ferð að Þjóð­verjar eru ekki eins praktískir og ég hélt. Þeir eru með fjöldann allan af starfs­mönnum í óþarfa. Í öllum stofnunum og söfnum eru starfs­menn að ráfa um í reiði­leysi og þarna eru meira að segja lyftu­verðir, sem ég hélt að væri útdauð stétt. Mér fannst eins og væri kominn 60 ár aftur í tímann þegar pikkolóstrákarnir voru á Hótel Borg. Rafmagns­verk­fræðingarnir, sem eru með í för, eru búnir að reikna það út að þetta séu brotamenn í samfélags­þjónustu.Þetta er Brynjar Níelsson, sem talar frá Berlín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt