Annar vespuræningjanna sem handtekinn var í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar hennar á síbrotum og tveimur vopnuðum ránum í gær.
Sagt var frá því í fréttum í gær er tveir menn um tvítugt hefðu farið um á vespu og veist að gangandi vegfarendum með hnífi.
Ekki getur lögreglan gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir