InnlentÓmar Ragnarsson: „Hætta steðjar að vegi, háspennulínu, byggð og fyrirhuguðum alþjóðaflugvelli“16. júlí 2023 Ómar Ragnarson bendir á í nýrri bloggfærslu að þrátt fyrir „heppilega“ staðsetningu gosa síðastliðinna þriggja ára að þá kunni það að breytast hraðar en menni óri fyrir: „En ef litið er á þróunina á þeim árum, sem liðin eru frá fyrsta eldgosinu, blasir við, að fyrr eða síðar kann þetta breytast hraðar en menn óraði fyrir, ef það er verður...
InnlentHamborgarafabrikkan: „Ekki nóróveira á ferðinni þarna heldur ákveðin baktería“16. júlí 2023 Mannlíf greindi fyrst í fréttum frá smitum á Hamborgarafabrikkunni í síðastliðinni viku þegar hátt í hundrað manns veiktust af því er talið var nórósmit. Nú eftir fyrstu niðurstöður rannsókna bendir allt til þess að um bakeríusmit hafi verið um að ræða. Ása Atladóttir, verkefnastjóri á sviði sýkingavarna hjá embætti sóttvarnalæknis segir í samtali við fréttamann RÚV: „Eins og við höfum...
MenningGóðviljaður keisari Íslands mun leyfa strandveiðar allt árið16. júlí 2023 „Þegar ég tek völdin á Íslandi, sem mun gerast, mun ég gera eftirfarandi …“ fullyrðir Glúmar Baldvinsson í nýlegri færslu á Facebook. Ef marka má listann sem hann birtir þá þykir honum töluverðra breytinga þarft og nefnir tíu atriði sem hann helst myndi beita sér fyrir: 1. Leyfa strandveiðar allan ársins hring. 2. Takmarka aflahlutdeild sérhverrar útgerðar að fiskimiðunum við...
Innlent„Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var við slökkvistörf við gosstöðvarnar á Reykjanesi“16. júlí 2023 „Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var við slökkvistörf við gosstöðvarnar á Reykjanesi í gærkvöldi ásamt Slökkviliði Grindavíkur, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og fleirum“ svo kemur fram á Fésbókarsíðu Landhelgisgæslunar. Fram kemur að Slökkviskjóla hafi verið notuð við slökkvistarfið. En í búnaðinum er hægt að koma fyrir tveimur tonnum af vatni í hverri ferð sem síðar er sleppt yfir eldsvæðið. Mikið hefur verið um sinubruna út...
InnlentBruninn við Stekkjarbakka: „Undarlegt að svæðið er ekki afgirt með borða lögreglu“16. júlí 2023 „Það má teljast undarlegt að svæðið er ekki afgirt með borða lögreglu, enda í alfaraleið og um opið svæði að ræða,“ sagði gangandi vegfarandi í samtali við blaðamann Mannlífs um svæðið umhverfis lóð útihúsins, sem brann í nótt. Hann bendir jafnframt á að svæðið sé vinsæll útivistarstaður og vinsæll meðal fjölskyldufólks og barna til að fóðra gæsir og kanínur. Eldur...
InnlentStúlkan er fundin16. júlí 2023 Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir er fundin. Lögreglan þakkar öllum veitta aðstoð.
InnlentRúm 80 prósent ósammála ákvörðun Svandísar16. júlí 2023 Í skoðanakönnun Mannlífs á dögum var spurt um strandveiðibann Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Afgerandi meirihluti er ósáttur við ákvörðun ráðherra en rúmlega 81 prósent sögðust ósammála henni. Þá voru rúm 17 prósent sammála og tæp tvö prósent sem 11. júlí síðastliðinn bannaði matvælaráðherrann strandveiðar. Var vertíðin rétt um 40 dagar fyrir smábátaeigendur og hafa þeir skorað á ráðherra að rýmka heimilda...
InnlentBerserkur braut rúðu16. júlí 2023 Ölæðið greip margan manninn seinnipart gærdags og í nótt. Lögreglunni bárust talsvert margar tilkynningar og beiðnir um að hafa heimil á óstýrlátum. Meðal annars einn berserkur i í múrsteinakasti. Sá hafði með athæfi sínu brotið rúðu í húsi. Lögreglan mátti mæta og staðinn og afgreiða málið á staðnum. Þá var óvelkominn einstaklingur að reyna að koma sér inn í íbúð....
SlúðurSigríður Dögg þögul16. júlí 2023 Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og formaður Blaðamannafélags Íslands, svarar í engu alvarlegum ávirðingum Páls Vilhjálmssonar, bloggara og kennara, um að hún hafi skotið undan skatti 25 milljónum króna með útleigu á íbúðum sínum á Airbnb. Páll hefur fjallað um málið í nokkrun pistlum og staðhæfir þar að fréttamaðuirinn hafi fengið að gera sátt um að greiða umrædda upphæð...
InnlentPáll sviptir hulunni: „Formaður stundar útleigu á Airbnb er kallaði á skattrannsókn“15. júlí 2023 Á undanförnum misserum hefur Páll ritað umtalsvert um „þekktan“ blaðamann og sem „sinni trúnaðarstöfum“ og sakað hann um að svíkja undan skatti. Í nýrri bloggfærslu sviptir Páll Vilhjálmsson hulunni af umræddum blaðamanni: „Raunar er það helst að frétta af fimm fræknum sakborningum RSK-miðla að þeir eru árlega drekkhlaðnir verðlaunum frá Blaðamannafélagi Íslands hvers formaður stundar útleigu á Airbnb er kallaði...
InnlentÓður maður ógnaði með hníf í Mjódd – Vopnaðir reiðhjólaþjófar gómaðir með þýfi15. júlí 2023 Tilkynning barst úr verslunarkjarnanum Mjóddinni í Breiðholti um óðan mann sem ógnaði öðrum með hnífi. Tilkynnandi gat gert lögreglu skil og bent á hnífamanninn. Voru hendur hafðar í hári hins óða og hann handtekinn ásamt örðum aðila. Báðir voru vistaðir fangageymslu vegna málsins. Tilkynnt var um vopnaða reiðhjólaþjófa, en til þeirra hafði sést að eiga við læst reiðhjól. Þegar lögregla...
Innlent„Tilhæfulausar ásakanir um nauðgun eru líka hryllilegur glæpur“15. júlí 2023 „Nauðgun er einn alvarlegasti glæpur sem um getur. Hryllilegur glæpur. Tilhæfulausar ásakanir um nauðgun eru líka hryllilegur glæpur,“ segir Frosti Logason í viðtali við Reyni Traustason. Þar ræða þeir um þá baráttu sem Frosti hefur mátt heyja eftir alvarlegar ásakanir frá fyrrverandi kærustu sinnar og fyrrum þáttastjórnanda og baráttukonunni Eddu Falak. Í viðtalinu gengst Frosti við því að hafa átt...
LandiðLambinu Ögn bjargað úr Krossneslaug – Fyrst var það kýr sem hafnaði í sundlauginni15. júlí 2023 „Það hlaut að koma að þessu,“ skrifar sundlaugarvörðurinn í Krossneslaug um lambið Ögn sem var bjargað frá drukknun úr þessari hvað frægustu sundlaug landsins.Ögn er þekktasta lamb landsins og fjölmargir sem fylgjast með henni á samfélagsmiðlum. Eins og Mannlíf greindi frá á dögunum hegðar lambið sér frekar eins og hundur eða barn þar sem það fylgir eigendum sínum hvert fótmál....
MenningStefán Máni segir veitingahúsaeigendur asna: „90 prósent af íslenskum veitingastöðum eru drasl“15. júlí 2023 Stefán Máni Sigþórsson spennusagnahöfundur birti á dögunum Twitterfærslu þar sem hann klýfur íslenska veitingahúsabransann og vandamálin sem honum fylgja. Telur hann aðalvandamálið vera að veitingastaðirnir eru stofnaðir af fjárfestum en ekki kokkum og að eigendur veitingahúsanna séu asnar: „Ég held að aðal vandamálið með íslenska veitingastaði sé að þeir eru yfirleitt ekki stofnaðir af kokkum heldur fjárfestum. Skrilljón eytt í...
InnlentYfirlýsing Anítu Rutar: „Fólk er tekið af lífi í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum við hið minnsta“15. júlí 2023 „Í ljósi liðinna atburða og fréttaflutnings vil ég koma eftirfarandi á framfæri,“ svo hljóðar upphaf fréttatilkynningar sem barst Mannlífi frá Anítu Rut Harðardóttur. Tilkynningin barst í kjölfar fréttaflutnings er dómur féll í máli Anítu Rutar gegn íslenska ríkinu og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Ný fallinn dómur olli mér vonbrigðum en kom ekki á óvart í ljósi þess hvernig umræðunni er stýrt...
InnlentÓskað eftir aðstoð lögreglu vegna háværra kynlífshljóða – Íbúum fjölbýlishúss haldið vakandi í nótt15. júlí 2023 Ráðalaus íbúi fjölbýlis í vesturhluta borgarinnar mátti leita á náðir lögreglu í nótt. Orsökin var háværar kynlífsstunur og samlífslæti sem bárust frá einni íbúð hússins – svo ekki var svefnfriður í húsinu. Algjörlega ósofinn vegna unaðshljóðanna gat íbúinn loks lagst sæll á koddann eftir að lögreglan mætti á vettvang. Samkvæmt dagbók lögreglu var málið kannað. Töluvert annríki var hjá lögreglu...