Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lambinu Ögn bjargað úr Krossneslaug – Fyrst var það kýr sem hafnaði í sundlauginni

Lambið Ögn ásamt bjargvætti sínum í Krossneslaug.
Lambið Ögn ásamt bjarg­vætti sínum í Kross­neslaug.

„Það hlaut að koma að þessu,“ skrifar sund­laugar­vörðurinn í Kross­neslaug um lambið Ögn sem var bjargað frá drukknun úr þessari hvað frægustu sundlaug landsins.Ögn er þekktasta lamb landsins og fjölmargir sem fylgjast með henni á samfélags­miðlum. Eins og

Mannlíf greindi frá á dögunum

hegðar lambið sér frekar eins og hundur eða barn þar sem það fylgir eigendum sínum hvert fótmál. Ögn er að sjálfsögðu heimal­ingur en gengur með bleiu og nýtur þeirra forréttinda að sofa hjá eiganda sínum, Kristínu Söru Magnúsdóttur, og fylgja honum í atvinnu og starfi.

Gestir sund­laugarinnar í Krossnesi hafa notið þess að hitta gimbrina Ögn og fylgjast með uppá­tækjum hennar sem enduðu svo með þeim ósköpum sem að framan er lýst. Það var sundlaugar­gesturinn Svanlaug Sigurðar­dóttir sem bjargaði Ögn frá bráðum bana og kom henni á þurrt þar sem hún fékk aðhlynningu.

Kýr í háska

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dýr fellur í Kross­neslaug því árið sem hún var vígð,

1954, hafnaði kýr í lauginni

og varð þjóðþekkt fyrir. Ekki var búið að girða laugina af þegar það gerðist og enginn á svæðinu. Vinnu­maður á bænum Krossnesi kom að þar sem kýrin svamlaði í heitri lauginni án þess að fá sér nokkra björg veitt. Kallaður var út mann­skapur til að bjarga kúnni sem vóg yfir 400 kíló og því flókið að koma henni upp á bakkann. Sú aðgerð tók margar klukku­stundir og tókst loksins þegar þver­böndum var komið á dýrið og því velt upp á bakkann.Málið endaðí fjöl­miðlum á sínum tíma og varð efni í skop­teikningu í Speglinum þar sem höfuðið á Hermanni Jónassyni forsætis­ráðherra var teiknað á kýr á sundi. Aðgerðin við að bjarga Ögn, 69 árum síðar tók aðeins nokkrar sekúndur. Lambið er í dag hið sprækasta og stendur vaktina við sund­laugina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp