Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Góðviljaður keisari Íslands mun leyfa strandveiðar allt árið

Glúmur mun breyta ýmsu þegar hann kemst í keisarastólinn. Myndin er tölvuunnin.
Glúmur mun breyta ýmsu þegar hann kemst í keis­ara­stól­inn. Myndin er tölvu­unnin.

„Þegar ég tek völdin á Íslandi, sem mun gerast, mun ég gera eftir­farandi …“ fullyrðir Glúmar Baldvinsson í nýlegri færslu á Facebook. Ef marka má listann sem hann birtir þá þykir honum tölu­verðra breytinga þarft og nefnir tíu atriði sem hann helst myndi beita sér fyrir:

1. Leyfa strand­veiðar allan ársins hring.

2. Takmarka afla­hlutdeild sérhverrar útgerðar að fiskimiðunum við 5 prósent og auka þar með tækifæri annarra lands­manna og auka nýliðun. Og hækka veiðileyfi­gjöld. Og senda Norsara í fiskeldi heim.

3. Taka upp beint lýðræði að svissneskum hætti svo allir Íslendingar geti kosið um veigamestu hagsmunamál þjóðarinnar hverju sinni í gegnum tölvur sínar.

4. Umbylta kosninga­kerfinu í átt til persónu­kjörs og þar með grafa undan alræði flokkanna.

5. Reka seðla­bankastjóra og taka upp nýjan gjald­miðil.

6. Fækka þing­mönnum um helming.

7. Fækka hraða­hindrunum í Reykjavík og reka borgar­stjóra.

8. Innleiða aftur kennslu kristinfræði í grunn­skólum.

9. Hækka laun öryrkja og aldraðra og afnema tekju­skerðingu.

10. Endur­skrifa stjórnar­skrána þannig að tryggt yrði að ég einn færi með völdin til dauðadags. Og þar á eftir sonur minn og svo sonur hans osfrv til eilífðar. Og kannski dætur.

Með fyrirfram þökkum fyrir misjafna áheyrn og fáheyrðar undir­tektir.

Glúmur

Skoplegar athuga­semdir og umræður hafa sprottið við færsluna og segir Glúmur í einni þeirra að hann sækist eftir að vera alræðis­herra eða keisari Íslands, af góðviljuðu gerðinni. „Þetta fjögurra ára lýðræði okkar er ekkert lýðræði. Búum til alvöru lýðræði í anda Sviss. Beint og daglegt lýðræði,“ bætir Glúmur við í athuga­semdum.Þó nokkir hafa bent á þá sorglegu staðreynd að Glúmur eigi sér engan son, svo illa víst er að áform Glúms gangi eftir.Hér að neðan má sjá færslu Glúms í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt