HeimurJordan segist ósáttur: Sonurinn á í ástarsambandi við fyrrverandi konu Pippen3. júlí 2023 Körfuboltastjarnan Michael Jordan er ekki sáttur við samband sonar síns við fyrrverandi eiginkonu fyrrum liðsfélaga hans, Scottie Pippen. Jordan var spurður út í sambandið þegar hann var að yfirgefa veitingastað í París á sunnudag. Í fyrstu hristi hann bara höfuðið og hló en sagði svo að lokum þvert nei. Þetta kemur fram á TMZ. Larsa Pippen og Marcus Jordan hafa...
HeimurFlugbíllinn verður að veruleika 20253. júlí 2023 Bandaríska fyrirtækið Alef hyggst framleiða rafknúinn flugbíl sem fyrirhugað er að verði kominn í almenna sölu árið 2025. Fjölmörg fyrirtæki víða um heim eru að þróa rafknúin farartæki sem geta flogið en Alef sker sig úr að því leytinu til að farartækið sem um ræðir getur bæði ekið um eins og hefðbundinn bíll en líka tekið á loft. CNN segir...
InnlentHótel Austur fékk nóró-sýktan hóp og starfsmenn veiktust: „Ömurlegt að horfa upp á svona hluti ske“3. júlí 2023 Starfsmaður Hótel Austurs segir að tveir starfsmenn hefðu orðið veikir af Nóró-veirunni sem fylgdi gestum hótelsins um helgina. Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga kom upp svæsin Nóró-veira í tveimur hópum sem ferðuðust Austanlands um helgina. Svo fór að fimm enduðu á sjúkrahúsi og ein kona á níræðisaldri lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri, vegna veirunnar. Fram kemur...
InnlentSkítugar nærbuxur í sundlaugum Reykjavíkur: „Baðverðirnir eru oftast ekki á tánum yfir þessu“3. júlí 2023 Íslendingar hafa lengi verið kröftug sundþjóð og líklega fáar þjóðir sem hafa jafn hátt hlutfall syndra einstaklinga. Því miður virðist það hafa færst í aukanna undanfarin ár að sundlaugargestir fari ekki eftir þeim reglum sem sundlaugarnar setja þeim ef marka má spjallsíðuna Reddit. Á spjallsíðunni má finna umræðu þar sem rædd er tiltekin hegðun ungra íslenskumælandi karlmanna. Sú hegðun felur...
InnlentSigmundur Ernir: ,,Það er verið að afkynja tungumálið á methraða”3. júlí 2023 Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri og fjölmiðlamaður segir rangt að breyta íslenskri tungu án umræðu. Sigmundur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segir réttrúnaðinn kominn of langt þegar fólk þori ekki lengur að tjá sig af ótta við að vera kallað slæmar manneskjur: „Það þarf að taka umræðuna, þó að það geti verið viðkvæmt. Það er til dæmis orðin...
InnlentEnn ber leitin að Sigrúnu engan árangur – Tuttugu og þrír dagar frá hvarfinu3. júlí 2023 Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu. Þar kemur fram að leit að Sigrúnu Arngrímdóttur, hélt áfram síðastliðinn laugardag, án árangurs. Á laugardaginn var framhaldið leit að Sigrúnu Arngrímsdóttur, sem saknað hefur verið síðan helgina níunda til ellefta júní. Björgunarsveitir gengu fjörur á sunnanverðum Reykjanesskaga. Við leitina var notast við dróna. Leitaraðgerðir hófust snemma morguns og stóðu...
InnlentRÚV birti rangt hótel í frétt um Nóró-veiruna: „Það er mjög óheppilegt að okkar hótel hafi sést“3. júlí 2023 Ríkisútvarpið fjallaði um Nóró-veirusmit sem upp kom á hóteli á Austfjörðum, í kvöldfréttum í gær. Hótelið var ekki nefnt á nafn en myndskeið af Neskaupsstað var sýnt í fréttinni en þar sást í Hildibrand hótel. Engin Nóró-veira kom hins vegar upp hjá Hildibrand. Enn er á huldu hvar nákvæmlega Nóró-veiran kom upp en sagt hefur verið að það hafi verið...
InnlentNýjar ljósmyndir af kindunum á Höfða: „Þessir vesalingar eiga sér engan málsvara“3. júlí 2023 Steinunn Árnadóttir, organisti og dýraverndarsinni fór nýlega aftur að bænum Höfða í Borgarfirði og skoðaði aðstæður „ágangsfés“ sem hafa komið sér fyrir í Norðurárdal. Segir hún að þeir „vesalingar“ minni hana á „flóttamenn að leita að betra lífi“. Í nýrri færslu sem Steinunn kallar „Framhaldssagan um Hryllinginn á höfða“ fer hún yfir málið sem skekið hefur sveitir Borgarfjarðar frá því...
HeimurBarnabarn Robert De Niro er látið, aðeins 19 ára: „Minn fallegi, ljúfi engill“3. júlí 2023 Barnabarn Roberts De Niro, Leandro De Niro Rodriguez er látinn, aðeins 19 ára að aldri. Þetta tilkynnti harmi slegin móðir hans. Mirror segir frá því að Drena De Niro, dóttir Hollywood-goðsagnarinnar Robert De Niro og leikkonunnar Diahnne Abbot, hafi deilt sorgarfréttunum á Instagram en þar birti hún ljósmynd af syni sínum. Ekki hafa dánarorsök verið gefin upp. Hin 51 árs...
InnlentGagnrýnir árás Ísraelshers á flóttamannabúðir: „Kúgun Ísraelsmanna versnar raunar sífellt“3. júlí 2023 Ísrelsher ruddist inn í flóttamannabúðirnar í Jenín á Vesturbakkanum í Palestínu í morgun að eigin sögn til að útrýma hryðjuverkamönnum. Illugi Jökulsson bendir á að reynslan sýni að óbreyttir borgarar verði verst fyrir barðinu á slíkum aðgerðum. Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson skrifaði færslu í morgun þar sem hann gagnrýnir harðlega innrás Ísraelshers í flóttamannabúðirnar í Jenín. Segir hann að slíkt endi...
InnlentBlóðdagar hjá Íslandsbanka: Atli Rafn og Ásmundur misstu vinnuna um helgina3. júlí 2023 Sannkallaðir blóðdagar eru hjá Íslandsbanka þar sem topparnir fjúka einn af öðrum. Um helgina fylgdu tveir stjórnendur í kjölfar Birnu Einarsdóttur og hættu störfum. Atli Rafn Björnsson, sem stjórnaði fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, hætti í gær. Áður höfðu Birna Einarsdóttir og Ásmundur Tryggvason vikið úr störfum sínum vegna áfellisdóms um störf þeirra sem felst í skýrslu Fjármálaeftirlitsins. Vísir greinir frá því að...
InnlentÍbúa krossbrá og hringdi strax á lögreglu í gærkvöldi en þetta var ástæðan3. júlí 2023 Íbúi á höfuðborgarsvæðinu brá heldur betur í brún í gær þegar hann áttaði sig á að brotist hafði verið inn heima hjá honum. Hann hringdi strax á lögreglu sem kom á vettvang en samkvæmt dagbók lögreglu er málið í rannsókn. Fyrr um kvöldið var lögregla kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi sem hafði ítrekað angrað gesti á bar í...
SlúðurBrynjar hæðist að öreiga3. júlí 2023 Aðstoðarmaðurinn atvinnulausi, Brynjar Níelsson , er á meðal fyndnustu mönnum og gæti hæglega orðið uppistandari í samkeppni við Sóla Hólm og Ara Eldjárn .Brynjar hefur átt óborganlega spretti á Facebook þar sem konan hans kemur gjarnan við sögu.Í nýlegri færslu gantaðist hann með það að síðan kona hans varð amma hafi fjárhagur þeirra versnað svo að fasteignagjöld séu komin í...
Heimur„John Logitech“ biðst afsökunar: Ekki framkvæmdastjóri Logitech2. júlí 2023 Nokkuð hefur verið fjallað um að Titan kafbátur OceanGate sem fórst með 5 manns innanborðs hafi verið stýrt með Logitech leikjafjarstýringu og meðal annars sáu feðgarnir Jay og Sean Bloom það sem rautt flagg og hættu við ferð sína með farinu á síðustu stundu skv. TMZ. TikTok notandinn @betterneverthanlate sendi frá sér hæðnislegt myndband þar sem hann segist heita John...
InnlentNafn mannsins sem lést í Vestmannaeyjum í gær2. júlí 2023 Maðurinn sem féll fram af klettum við smölun í Vestmannaeyjum í gær hét Ólafur Friðrik Guðjónsson. Slysið varð þegar Ólafur var að smala fé á Ystakletti. Ólafur var fæddur 1951. Guðjón Ólafsson, somur hins látna., minnist föður síns í færslu á Facebook. „Pabbi elskaði sjóinn og úteyjalífið og hann fékk að kveðja þar. En það er sárt að kveðja svo...
InnlentNíræð kona látin vegna nóróveirusmits2. júlí 2023 Mbl.is greinir frá því að kona á níræðisaldri hafi látist á sjúkrahúsi á Akureyri vegna nóroveirusýkingar en hún hafi smitast á hóteli á Austurlandi. Samkvæmt Heilbrigðiseftirliti Austurlands sýktust minnst 12 manns en sýkingarinnar varð vart síðastliðinn fimmtudag. Munu tveir hópar fólks hafa smitast, annarsvegar hópur ferðamanna og hinsvegar hópur kvenna úr Skagafirði. Veitingastað hótelsins var lokað og hótelið sótthreinsað. Eftir...