Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Skítugar nærbuxur í sundlaugum Reykjavíkur: „Baðverðirnir eru oftast ekki á tánum yfir þessu“

Ljósmyndin tengist fréttinni óbeint.
Ljós­myndin teng­ist frétt­inni óbeint. Mynd: Guduru Ajay bhargav Pexels.com

Íslend­ingar hafa lengi verið kröftug sund­þjóð og lík­lega fáar þjóðir sem hafa jafn hátt hlut­fall syndra ein­stak­linga. Því miður virð­ist það hafa færst í aukanna und­an­farin ár að sund­laug­ar­gestir fari ekki eftir þeim reglum sem sund­laug­arnar setja þeim ef marka má spjall­síð­una Reddit.

Á spjall­síð­unni má finna umræðu þar sem rædd er til­tekin hegðun ungra íslensku­mæl­andi karl­manna. Sú hegðun felur í sér að mæta í óhreinum nær­buxum í sturtu­klef­ann, þvo sér án þess að fara úr nær­buxum, og fara svo í sund­buxur yfir. Töluvert margir íslenskir not­endur síð­unnar höfðu orðið vitni að þess­ari hegðun.

„Bað­verð­irnir eru oft­ast ekki á tánum yfir þessu og koma þarna við tvisvar á dag til að sprauta á sokkakusk á gólf­inu. Annars láta þeir ekki sjá sig mikið í sturt­unum. Það var alltaf allt vit­laust þegar ég var yngri og ein­hver var gómaður við að sturta sig ekki alls­beran,“ segir not­and­inn finnthewhyking um málið og taka 67 manns undir með honum. Annar not­andi, sem seg­ist hafa unnið sem sund­laug­ar­vörður, stað­festir þessa hegðun og segir að aðal­lega sé um að ræða karl­menn á aldr­inum 13 til 20 ára.

Ekki voru allir sam­mála um mögu­legar ástæður en tvær kenn­ingar virð­ast lík­leg­astar að mati not­enda.

Sú fyrri var ein­fald­lega að hér væri um að ræða mikla spé­hræðslu. Sú seinni var að ungir karl­menn ættu ein­fald­lega ekki sund­buxur með neti í heldur ein­ungis stutt­buxur og að nær­bux­urnar væru not­aðar sem ein­hvers­konar kyn­færa­net til að hindra að það sjá­ist í kyn­færin í sund­laug­inni.

Ein­hverjir vildu meina að þarna gætu verið túristar á ferð en hefur það verið lengi í sam­fé­lags­um­ræð­unni að erlendir gestir hrein­lega þvoi sér ekki í sund­laugum lands­ins.

Mannlíf hafði sam­band við Sundhöll Reykja­víkur varð­andi málið og fékk þau svör að fari fólk ekki eftir settum reglum sé því vísað upp úr laug­inni. Taka skal fram að þessi hegðun er ekki bundin við Sund­höll­ina eina heldur allar laugar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu