InnlentÞorsteinn hjá RKÍ: „Að öðlast félagslegt net hefur mikið að segja um líðan fólks í umsóknarferli“27. október 2022 Borgarleikhúsið hefur frestað sýningum á leikritinu Snákur vegna þess að leikara úr sýningunni, sem sótt hafði um hæli hér á landi, var vísað úr landi eins og komið hefur fram í fjölmiðlum. „Leiksýningin Snákur var frábært dæmi um það grasrótarstarf sem getur sprottið upp í því félagsstarfi sem Rauði krossinn skipuleggur með umsækjendum um vernd. Í þessu tilfelli fengum við...
HeimurÚtvarpsstjóri Russia Today rekinn eftir ógeðsleg ummæli: „Ég er forviða, hvað get ég annað sagt?“27. október 2022 Rússneski ríkisfjölmiðillinn RT hefur rekið útvarpsstjórann Anton Krasovsky eftir að hann kallaði eftir því að rússneskumælandi börn í Úkraínu sem væru á móti Rússlandi, yrðu drekkt og brennd í einni útsendingu sinni. Ritstjóri RT, Margarita Simonyan sagði frá málinu á Telegram 24. október síðastliðnum. Kallaði hún athugasemdir Krasovsky „brjálaðar og ógeðslegar.“ „Kannski mun Anton útskýra hverslags tímabundna geðveiki olli þessum...
LandiðBæjarstjórn Vestmannaeyja: „Óforsvaranlegt að 4500 íbúa samfélag búi við jafnskertar samgöngur“27. október 2022 Bæjarstjórn Vestmannaeyja ræddi stöðuna í samgöngumálum milli lands og Eyja á nýlegum fundi. Ítrekar stjórnin kröfu sína að ríkið styðji við áætlunarflug til Eyja enda séu samgöngumál í lamasessi milli lands og Eyja. Samkvæmt Eyjafrettir.is var lögð eftirfarandi sameiginleg bókun bæjarstjórnar: „Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir miklum vonbrigðum með núverandi stöðu samgangna við Eyjar. Öllum er ljóst að Herjólfur III hentar ekki...
InnlentElko bryddar upp á nýjungum: Selur hjálpartæki ástarlífsins27. október 2022 Þau tíðindi hafa borist að frá og með næsta mánuði ætlar raftækjaverslunin Elko að hefja sölu á raftækjum sem flokkast undir unaðsvörur; kynlífstæki fyrir fullorðna. Kom þetta fram á fjárfestakynningu Festar, móðurfélags Elko. Á kynningunni kom fram að sala unaðsvaranna myndi byrja í tengslum við dag einhleypra; að viðskiptavinir hafi kallað eftir þessum vörum. Segir einnig að mikil tækifæri séu...
InnlentGulli um sjálfsvíg systur sinnar:„Varð aldrei reiður út í hana, en ég varð reiður út í sjálfan mig“27. október 2022 Gunnlaugur Helgason – sem allir þekkja undir nafninu Gulli Helga – er einn af vinsælari útvarpsmönnum Íslands, og líka afar vinsæll sjónvarpsmaður. Hann hefur starfað við fjölmiðla áratugum saman. Gulli Helga var gestur vikunnar í Einkalífinu. Í viðtalinu opnar hann sig í fyrsta skipti um systurmissi; elsta systir Gulla svipti sig lífi árið 2004: „Þetta breytti manni að því leytinu...
InnlentGuðlaugur ætlar í Bjarna: „Við getum ekki sætt okkur við að vera í þessari stöðu“27. október 2022 „Staðreyndir liggja fyrir og við getum ekki sætt okkur við að vera í þessari stöðu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra í samtali við RÚV. Það er því nokkuð ljóst að Guðlaugur ætlar að bjóða sig fram gegn Bjarna Benediktssyni í formann Sjálfstæðisflokksins. Líkt og Mannlíf greindi frá í gær. Landsfundur flokksins verður haldinn fyrstu helgina í nóvember....
InnlentBjörn segir þá ætla að hrúga flóttamönnum í myglað hús: „Löglegt en algjörlega siðlaust“27. október 2022 Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson úr Grindavík segir að áform um að hýsa flóttamenn í húsinu sem stendur við Víkurbraut 58 í Grindavík séu með öllu siðlaus. Björn segir þetta slóttuga leið til að nýta húsnæði sem sé ekki mönnum bjóðandi. Húsið sé grautmyglað og því hafi enginn hótelrekstur verið leyfður þar. Til að hýsa flóttamenn þurfi þó enga vottun frá heilbrigðiseftirlitinu....
HeimurBirti mynd af lyftaranum sem skar hann í tvennt – Missti þrjá útlimi27. október 2022 Iðnaðarmaður í Bandaríkjunum, Loren Schaurers, lenti í hörmulegu vinnuslysi en hann var skorinn í tvennt þegar lyftari lenti á honum. Loren var aðeins 18 ára þegar slysið varð, lífi hans var þó bjargað með naumindum. Hann missti þrjá útlimi. Slysið átti sér stað í september árið 2019, Loren var við vinnu á lyftaranum þegar hann rennur niður háa brekku. Loren...
InnlentNautgripir í Borgarnesi biðja um hjálp: „Okkur er kalt og við erum svöng“27. október 2022 Steinunn Árnadóttir, hestakona og organisti er dugleg að vekja athygli á dýraníð í Borgarnesi en það gerir hún á Facebook-veggi sínum. Síðsumars birti hún ljósmyndir af horuðum og illa förnum hestum sem ekki höfðu fengið að fara út í heilt ár. Vakti málið gríðarlega athygli í fjölmiðlum. Nú snýr Steinunn sér að nautgripunum. Steinunn skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook og...
InnlentGísli Marteinn rassskellir þá sem þurfa nagladekk: „Þeir eru lélegir bílstjórar“27. október 2022 Það sem gleymist oft í umræðunni um nagladekk er að bara lélegir bílstjórar þurfa á þeim að halda. Góðir bílstjórar þurfa ekki á þeim að halda. Í það minnsta ef marka má Gísla Martein sem fullyrðir þetta á Twitter. Þar skrifar Glódís nokkur: „Það gleymist að allir þessu gömlu kallar, sem eru að tala um nagladekk sem mannréttindi, tóku aldrei...
InnlentTæp sextíu prósent vilja Guðlaug Þór sem formann Sjálfstæðisflokksins27. október 2022 Niðurstaða netkönnunar Mannlífs sýnir skýran vilja, þátttakenda, að fá nýjan leiðtoga fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Af þremur mögulegum formannsefnum fékk Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra yfirburðastuðning með tæp 60 prósent atkvæða. Núverandi formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, fékk rétt rúm 20 prósent. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hlaut einnig með 20 prósent. Ekki reyndist marktækur munur á milli núverandi formanns og varaformanns flokksins....
InnlentVilhjálmur segir Sjálfstæðismenn hafa skotið sig í fótinn: „Þetta mun valda flokknum tjóni“27. október 2022 Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir á Facebook að Sjálfstæðismenn séu að skjóta sjálfan sig í fótinn með því að leggja fram frumvarp, sem að svo virðist hafi þann eina tilgang að grafa undan stéttarfélögum á Íslandi. Vilhjálmur segir að með þessu sé flokkurinn að hrekkja í burtu alla stuðningsmenn flokksins sem eru jafnframt launafólk. Pistill Vilhjálms í...
SlúðurSólveig Anna í mótbyr27. október 2022 Baráttukonan Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, stendur í mótbyr á ýmsum vígstöðvum. Hún á sér öflugan hóp fylgjenda sem telja hana vera færa um kraftaverk. En svo eru það hinir sem fordæma framgöngu hennar eins og þá sem birtist í fjöldauppsögn hennar á launafólki á skrifstofu Eflingar. Þá hafa margir athugasemdir við aðkomu hennar að þingi ASÍ þar sem hún...
InnlentÞjóðverjar eru ekki freðnir og ætla að lögleiða kannabisefni innan 2ja ára26. október 2022 Frá Þýskalandi berast þau tíðindi að kannabisefni verði gerð lögleg innan tveggja ára þar í landi. Mbl.is greinir frá. Ríkisstjórn Þýskalands hefur sett upp áætlun sem miðar að því að lögráða fólki verði leyfilegt að nota kannabisefni árið 2024. Er gert ráð fyrir því að hverjum einstaklingi verði leyft að hafa í fórum sínum allt að 30 grömm af kannabis...
Innlent„Bubbi á ekki heimtingu á neinu frá fjölmiðlum, óþarfi að vera hörundsár yfir slíkri erindisleysu“26. október 2022 Hinn frábæri og margverðlaunaði ljósmyndari, Sigtryggur Ari Jóhannsson, ritaði stutta færslu á Facebook-síðu sinni sem hljómaði svona: „Magnað. Fullt af listamönnum eiga sjálfsagt óinnleysta frægð hér og hvar sem hugsanlega er hægt að kreista út með aðstoð lögmanna.“ Sigtryggur Ari Jóhannsson. Er Sigtryggur Ari þarna að vísa til þess að Bubbi Morthens og Auðunn Lúthersson hafi kvartað undan því að...
Innlent27 ár liðin frá einu mannskæðasta snjóflóði Íslandssögunnar: „9 eða 10 manns sem voru að heiman“26. október 2022 Í dag eru 27 ár síðan snjóflóð féll á Flateyri í Önundarfirði þar sem tuttugu létu lífið. Flóðið breytti þorpinu til frambúðar. „Griðarstórt snjóflóð, sem kom óvænt úr Skollahvilft og fór yfir snjóflóðavarnir, hreif a.m.k. 17 hús með sér á Flateyri klukkan 4.07 í nótt. Fljótlega varð ljóst að á þriðja tug íbúa var saknað. Þegar DV fór í prentun...