Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þjóðverjar eru ekki freðnir og ætla að lögleiða kannabisefni innan 2ja ára

Frá Þýska­landi berast þau tíðindi að kannabis­efni verði gerð lögleg innan tveggja ára þar í landi.

Mbl.is greinir frá.

Rík­is­stjórn­ Þýska­lands hef­ur sett upp áætl­un sem miðar að því að lögráða fólki verði leyfi­legt að nota kanna­bis­efni árið 2024.

Er gert ráð fyr­ir því að hverj­um einstaklingi verði leyft að hafa í fór­um sín­um allt að 30 grömm af kannabis til eig­in neyslu; að kaupa megi kanna­bis­efni í apó­tek­um sem og versl­un­um sem hafi til þess sér­stakt leyfi til að selja efn­ið.

Eins og staðan er nú hefur áætl­un ríkis­stjórn­ar­inn­ar ekki ennþá hlotið samþykki þýska þings­ins; auk þess þarf Evr­ópuráðið að samþykkja breytinguna.

Af Evr­ópu­sam­bands­ríkj­um hef­ur aðeins Malta samþykkt og hrint í áætlun afléttingu banns við kannabis­efnum.

Heilbrigðis­ráðherra Þýska­lands, Karl Lauter­bach, reiknar með því að lík­legt sé að áætl­un­in fyrir árið 2024 stand­ist.

Karl Lauterbach.

Fram kemur að áætl­un Þjóðverja gerir ráð fyr­ir því að leyfi­legt verði að rækta kanna­bis­plönt­ur heima við; sú rækt­un mun þó tak­mark­ast við þrjár plönt­ur á hvern lögráða ein­stak­ling á hverju heim­ili.

Lauter­bach heil­brigðis­ráðherra sagði við kynn­ingu áætl­un­ar­inn­ar að af­glæpa­væðing efn­is­ins komi til með að vernda heilsu ungra Þjóðverja, þar sem bann gegn efn­inu hefði ekki átt „neinu láni að fagna“ síðustu ár, og að neysl­an hefði auk­ist:

„Við vilj­um setja markaðinum stíf­ar regl­ur,“ sagði ráðherrann og bætti við að það komi til greina að setja regl­ur um há­marks­styrk­leika kanna­bis­efna, sem seld yrðu yngra fólki en 21 árs, sem myndi þýða að fylgj­ast yrði sér­stak­lega með THC inni­haldi þeirra.

Næsta skref Þjóðverja er að leggja áætl­un­ina fyr­ir Evr­ópu­sam­bandið, sem myndi fara ítarlega ofan í saum­ana á því hvort hún stæðist lög­gjöf sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning