Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Útvarpsstjóri Russia Today rekinn eftir ógeðsleg ummæli: „Ég er forviða, hvað get ég annað sagt?“

Útvarpsstjórinn brottrekni
Útvarps­stjór­inn brottrekni Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rússneski ríkis­fjöl­miðillinn RT hefur rekið útvarps­stjórann Anton Krasovsky eftir að hann kallaði eftir því að rússnesku­mælandi börn í Úkraínu sem væru á móti Rússlandi, yrðu drekkt og brennd í einni útsendingu sinni.

Ritstjóri RT, Margarita Simonyan sagði frá málinu á Telegram 24. október síðastliðnum. Kallaði hún athuga­semdir Krasovsky „brjálaðar og ógeðslegar.“

„Kannski mun Anton útskýra hverslags tíma­bundna geðveiki olli þessum [athuga­semdum] og af hverju þær komu út úr munni hans. Það er erfitt að trúa því að börn ættu að vera drekkt. Á þessari stundu hef ég sagt upp samstarfi okkar, þar sem hvorki ég né restin hjá RT getur einu sinni hugsað sér að innan okkar raða sé slík geðveiki. Ég er forviða, hvað get ég annað sagt? Til barnanna í Úkraínu og í Donbas og til allra barna: Ég vil að allt þetta endi eins fljótt og auðið er og ég vil að þau geti lifað í friði og lært á því sínu móður­tungumáli.“

Anton Krasovsky kallaði eftir því að börnin yrðu drekkt, í þætti sínum Antonyms þann 20 október síðastliðinn. Þar var hann að taka viðtal við rithöfundinn Sergey Lukyanenko. Í viðtalinu lýsti rithöfundurinn því þegar hann var barn á níunda áratug síðustu aldar og fór til Úkraínu. Þar hafi hann hitt börn sem sögðu „Úkraína er hersetið af Rússum.“ Hann vakti athygli á að „þau voru hundrað prósent Rússar, rússnesku­mælandi börn.“

Krasovsky svaraði: „Þessum börnum hefði átt að hreinlega drekkja í Tysyna ánni, þar sem endurnar synda (tilvísun í Úkraínskt þjóðlag). Hreinlega drekkja þessum börnum. Drekkja! Nákvæmlega í Tysyna. Þetta er ekki í þínum stíl, þið eruð siðmenntað fólk, þið fantasíu-rithöfundar. Þetta er okkar aðferð. Um leið og þau segja „Rússar hersetja Úkraínu“, henda þeim í ánna í ofsa­fengna og hrotta­lega strauma.“

Lukyanenko svaraði með því að benda á refsiaðferðir forn Rússa „Hefð var fyrir því að refsa fólki með trjá­greinum.“ Greip Krasovsky þá orðið: „Troðum þeim bara inn í grenihús og brennum það.“

Eftir að þátturinn fór í loftið skrifaði Krasovsky á Telegram að hann hefði átt „yndislega beina útsendingu með Sergey Lukyanenko,“ en stuttu seinna eyddi hann færslunni.

Eftir að Simonyan gaf sína yfir­lýsingu út bað Kasovsky hana afsökunar sem og öllum þeim sem „misstu það“ og álitu orð hans „brjáluð, óhugsandi og hrikaleg.“ Bætti hann við: „Hlustið, ég skammast mín mjög á því að hafa einhverra hluta vegna ekki séð þessi mörk. Um börn. En þetta gerðist svona; Þú ert í miðri útsendingu og þú missir þig aðeins. Og þú getur ekki stoppað. Ég vona að þið fyrir­gefið mér.“

Fjallað var um málið á hinum útlæga rússneska miðli Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“