Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björn segir þá ætla að hrúga flóttamönnum í myglað hús: „Löglegt en algjörlega siðlaust“

Björn Birgisson.
Björn Birg­is­son.

Samfélags­rýnirinn Björn Birgisson úr Grindavík segir að áform um að hýsa flótta­menn í húsinu sem stendur við Víkur­braut 58 í Grindavík séu með öllu siðlaus. Björn segir þetta slóttuga leið til að nýta húsnæði sem sé ekki mönnum bjóðandi. Húsið sé graut­myglað og því hafi enginn hótel­rekstur verið leyfður þar. Til að hýsa flótta­menn þurfi þó enga vottun frá heilbrigðis­eftirlitinu.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Björns í heild sinni.

Löglegt en siðlaust?

Get mér þess til að eigendur hússins við Víkur­braut 58, áður félags­heimilið Festi og síðast hótel undir nöfnunum GEO hótel og Volcano hótel, hafi boðið aðgerða­hópi Gylfa Þórs að nýta húsnæðið til að vista þar flótta­menn.

Sé það rétt er það nokkuð slóttug leið til að komast hjá hindrunum sem augljós­lega eru í leiðinni.

Myglunni í húsinu annars vegar.

Heilbrigðis­eftirliti Suðurnesja hins vegar.

Þar sem heilbrigðis­eftirlitið lokaði húsinu vegna myglu gæti maður haldið að enginn færi þar inn nema að undan­genginni úttekt þess sem lokaði.

Svo er ekki.

Heilbrigðis­eftirlitið hefur afskipti af leyfis­skyldri starfsemi, eins og hótel­rekstri, en húsnæði fyrir móttöku flótta­manna kallar ekki á slík afskipti.

Þarna er gat í kerfinu, gat sem hugsanlega er verið að nýta til að koma húsinu í gagnið og hala inn einhverja peninga fyrir eigendur hússins sem er víst hópur fjárfesta í Reykjavík.

Húsnæði fyrir flótta­menn er ekki leyfis­skylt – þar er gatið í lögunum!

Unnið hefur verið að ýmsum endur­bótum og þrifum á húsnæðinu, en hvort það hættir að vera heilsu­spillandi kemur vitaskuld ekki í ljós fyrr en eftir faglega úttekt heilbrigðis­eftirlitsins.

Ef marka má ferli málsins hingað til virðist stefnt að því að komast framhjá þeirri úttekt.

Í hnotskurn má segja þetta svona:

**********

Aðgerða­hópur á vegum félagsmála­ráðherra Vinstri Grænna, Guðmundar Inga Guðbrands­sonar, er með plön um að fylla öll herbergi húsnæðis, sem dæmt hefur verið óhæft vegna myglu, af flótta­mönnum í leit að öryggi og betra lífi.

Þetta hljómar afleit­lega.

**********

Samkvæmt mínum heimildum eru engar líkur á að Grinda­víkurbær komi að neinum samningum við ríkið varðandi það sem er að gerast.

Hvernig eiga bæjar­fulltrúar að samþykkja fyrir sitt leyti að hrúga flótta­fólki inn í húsnæði sem dæmt hefur verið óhæft vegna myglu, án þess að það hafi fengið endurnýjað heilbrigðis­vottorð frá réttum aðilum?

**********

Það skrýtna er að það er hægt að fylla húsið af fólki án þess að semja um það við bæinn og án þess að Heilbrigðis­eftirlit Suðurnesja leggi blessun sína yfir húsnæðið.

Það er gat í löggjöfinni sem löglærðir menn hafa komið auga á, gat sem hugsanlega er hægt að nýta sér til tekna undir því yfirskyni að verið sé að hjálpa flótta­fólki.

Hvað sagði Vilmundur heitinn svo oft?

Löglegt en algjör­lega siðlaust

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning