Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Bubbi á ekki heimtingu á neinu frá fjölmiðlum, óþarfi að vera hörundsár yfir slíkri erindisleysu“

Hinn frábæri og marg­verðlaunaði ljós­myndari, Sigtryggur Ari Jóhannsson, ritaði stutta færslu á Facebook-síðu sinni sem hljómaði svona:

„Magnað. Fullt af lista­mönnum eiga sjálfsagt óinnleysta frægð hér og hvar sem hugsanlega er hægt að kreista út með aðstoð lögmanna.“

Sig­tryggur Ari Jóhanns­son.

Er Sigtryggur Ari þarna að vísa til þess að Bubbi Morthens og Auðunn Lúthersson hafi kvartað undan því að fá ekki meiri spilun á Rás 2, þrátt fyrir að lag þeirra sé vinsælt á Spotify; þá hefur verið sagt frá því að Sölvi Blöndal, framkvæmda­stjóri Öldu Music, hafi farið á fund með Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra vegna málsins, sem vakið hefur mikla athygli.

Margir skrifuðu undir færslu Sigtryggs Ara; kenndi þar ýmissa grasa.

Meðal annarra tjáði blaða­maðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson – á Vísi – sig.

Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Sagði:

„Bubbi Morthens og Auður gera lag saman. Lagið nýtur gríðarlegra mælanlegra vinsælda nema það heyrist vart á ríkis­rekinni útvarpsrás sem gefur sig meðal annars út fyrir að segja lands­mönnum af því hvað klukkan slær í nýgildri tónlist. Og á þeirri stöð starfar maður sem sakar Bubba um gerenda­meðvirkni af mikilli hörku opinber­lega. Bubbi spyr hvað sé í gangi og hvort verið geti að þetta tvennt tengist, og telur sig hafa góðar og gildar ástæður fyrir því. Og það eina sem menn vilja taka út úr þessu er að Bubbi Morthens (sjálfur) sé að væla vegna þess að hann fái ekki spilunum?! Vá hvað þetta er eitthvað níðangurslegt og/eða lélegt.“

Fjölmiðla­maðurinn Illugi Jökulsson svaraði Jakobi Bjarnari með þessum orðum:

Illugi Jök­uls­son.

„Gallinn við þetta, Jakob minn, er að það er ekki rétt þegar þú segir: „Bubbi spyr …“ — Það er fökkings lögfræðingurinn hans sem spyr. Og framkvæmda­stjórinn hans sem Björn að baki Kára. Það er þetta sem fólki þykir ankannalegt, trúi ég. Ef það hefði bara verið Bubbi sem spurði, þá hefði það vakið allt önnur viðbrögð.“

Og einnig Sigtryggur Ari:

„Jakob minn, hvenar þurftirðu síðast að eiga við fólk sem taldi sig eiga heimtingu á að vera í fjöl­miðlum til þess að kynna og selja varning? Bubbi má auðvitað spyrja að öllu sem honum dettur í hug. Allir elska Bubba og og það er allt í góðu. En hann sendi fylgjuna, eins og Illugi bendir á. Þar breyttist leikurinn ögn. Það að lagið sé leikið á streymis­veitum þýðir ekki nema það að slaufunarkúltúr er ekki til. En Bubbi á ekki heimtingu á neinu frá fjöl­miðlum frekar en þú og ég og alveg óþarfi að vera hörundsár yfir slíkri erindis­leysu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning