Innlent„Hvernig dettur fréttastofu í hug að fara fram með þessum hætti?“20. október 2022 Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Bergsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi horft „í forundran á fréttaflutning Rúv og fleiri af eineltismáli og afleiðingum þess fyrir þolanda í gær. Hvernig dettur fréttastofu í hug að fara fram með þessum hætti? Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar daginn eftir þeirra allra versta dag. Þar...
InnlentHrafnhildur fékk óbragð í munninn í búð erlendis: „Allt þetta og ég borgaði 3.900 kr. íslenskar“20. október 2022 Hrafnhildur nokkur trúði varla sínum eigin augum yfir verðmuninum þegar hún verslaði í matvörubúð í S-Evrópu, í samburði við verðlagið hér á landi. Hún segir hreinlega hafa fengið óbragð í munninn þegar hún áttaðist sig á hinum sláandi verðmun. Hrafnhildur segir frá upplifun sinni í fjölmennu samfélagi á Facebook, Sparnaðartips!. Við skulum gefa henni orðið: „Þegar að maður verslar í...
InnlentBiggi lögga segir foreldra ekkert skárri í netheimum: „Við elskum að vera reið“20. október 2022 Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður í Hafnarfirði, betur þekktur sem Biggi lögga, bendir á að við fullorðna fólkið séum oft ekkert skárri en börn og unglingar þegar kemur að einelti og ofbeldisfullri hegðun í netheimum. Biggi tjáir hug sinn á Facebook þar sem hann tók saman ummæli netverja undir fréttum af hræðilegu ofbeldismáli gegn 12 ára stúlku í Hafnarfirði, líkt og...
InnlentNetverjar æfir vegna fréttar RÚV: „Sagði enginn bara „Heyrðu er þetta ekki of langt gengið?“20. október 2022 „Að fréttamaður spyrji 12 ára stúlku, sem hefur sætt grimmilegu ofbeldi í heilt ár, hvort hún geti „fyrirgefið“ ofbeldisfólkinu, það er óhæfa,“ segir rithöfundurinn Illugi Jökulsson á Facebook. Þar á hann við frétt RÚV í gærkvöldi þar sem rætt var við 12 ára gamalt fórnarlamb eineltis og ofbeldis í Hafnarfirði. Illugi er alls ekki sáttur: „Tala nú ekki um strax...
InnlentGríðarlegur liðsstyrkur Grindvíkinga – Bræður sameinaðir20. október 2022 Jón Axel Guðmundsson hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með félaginu í Subwaydeild karla út þessa leiktíð. Óhætt er að segja að þetta séu risatíðindi fyrir körfuboltann í Grindavík. Jón Axel er einn allra besti körfuknattleiksmaður Íslands og er lykilmaður í íslenska landsliðinu. Jón Axel Guðmundsson. Jón Axel er 25 ára gamall; hefur leikið í atvinnumennsku í...
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs: Á hvaða aldri finnst þér viðeigandi að barn fái snjallsíma?20. október 2022 Þjóðin er harmi lostin eftir fréttir af ungri stúlku sem reyndi að fremja sjálfvíg eftir að hafa orðið fyrir hrottalegu ofbeldi af hálfu skólafélaga sinna. Þá var meðal annars tekið upp myndband á síma þar sem samnemendur ganga í skrokk á stúlkunni, auk þess að henni voru send meiðandi smáskilaboð.
InnlentDorrit spurð hvort hún væri gift: „Það fer eftir því hver er að spyrja!“20. október 2022 Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar og demantadrottning naut sín vel á Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu um síðustu helgi. Birti hún myndir af sér á Instagram þar sem hún ræðir málin við þjóðhöfðingja og embættismenn og virðist hrifin. Við mynd af henni með Hákoni krónprinsi Noregs skrifar fyrrum forsetafrúin: „Það er pottþétt eitthvað við norræna karlmenn.“ Dorrit og Hákon...
Innlent„Ógjörningur að bæta kaupmátt í tíu prósent verðbólgu“20. október 2022 Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Halldór Benjamín Þorbergsson, segir í samtali við ruv.is að það sé ómögulegt að auka kaupmátt við þær aðstæður sem nú er að finna í íslensku samfélagi. Núna eru kjaraviðræður haustsins og vetrarins komnar á fullan skrið: „Við erum búin að taka á móti öllum kröfugerðum stéttarfélaganna, það eru fjöldamargir liðir þar sem eru kostnaðarliðir. Það fer svolítið...
InnlentTveir menn fluttu 1914 töflur af OxyContin til landsins – Földu lyfin í nærbuxunum20. október 2022 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tvo karlmenn í sex mánaða fangelsi fyrir innflutning á ávanalyfjum. Mennirnir fluttu inn samtals 1914 töflur af verkjalyfinu OxyContin. Lyfið er notað sem bráðaúrræði við miklum verkjum en hefur einnig töluverð róandi áhrif. Það flokkast undir svokallaða ópíóða og er algengt á meðal fíkla um allan heim. Mennirnir fluttu lyfið inn til endursölu og dreifingar á Íslandi...
InnlentBæ bæ Bókabíll20. október 2022 Sjálfur bókabíllinn í Reykjavík virðist orðinn vélarvana, enda leggur Borgarbókasafnið til að starfsemi bókabílsins Höfðingja verði lögð niður í drögum að nýrri fjárhagsáætlun. Borgarbókasafnið glímir við „mikla hagræðingarkröfu og niðurskurð í fjárhagsramma ársins“ og því hafi verið lagt til bókabílinn yrði lagður niður með öllu, segir Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður í samtali við mbl.is. Kemur fram að bókabíllinn sé orðinn 22...
Innlent„Ég er ekki viss um að íbúar í Kópavogi verði ánægðir með þessa þjónustuskerðingu“20. október 2022 „Ég er ekki viss um að íbúar í Kópavogi verði ánægðir með þessa þjónustuskerðingu. Það hefur verið gríðarleg umferð um þessa stöð,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu í samtali við mbl.is. Jón Viggó Gunnarsson. Nýráðinn bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, tilkynnti stjórnendum Sorpu bréfleiðis í byrjun síðasta mánaðar að loka þyrfti móttökustöð Sorpu við Dalveg 1 í Kópavogi; skila þurfi...
InnlentSÖFNUN – Birna glímir við krabbamein í þriðja sinn: „Maður veit ekki alveg hvað maður á að gera“20. október 2022 Birna Kristmundsdóttir er að berjast við krabbamein í þriðja sinn á ævinni. Hún er aðeins 33 ára gömul og nú er þessi illvígi sjúkdómur búinn að dreifa sér í eitla. Í dag verða haldnir styrktartónleikar í salnum Verkstæðið í Vitanum Mathúsi á Akureyri. Hún býr sjálf á Akureyri ásamt eiginmanni sínum, Víði Erni Ómarssyni og tveggja ára gömlum syni þeirra....
Innlent24 myglaðir skólar í Reykjavík20. október 2022 Mygla hefur hefur fundist í 24 grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Af þessum 24 eru 14 leikskólar og 10 grunnskólar; einnig hafa fimm skólar neyðst til að flytja starfsemina annað og ekki er langt í að tveir skólar bætist þar við. Varðandi fjölda þá eru flest myglutilfellin í Laugardalnum, eða sjö. Slíkar skemmdir er til dæmis að finna í fimm...
InnlentStjórn foreldrafélags Hraunvallaskóla: „Slegin eins og allir yfir lýsingum á einelti nemenda“20. október 2022 Mikil reiði er í samfélaginu eftir að sagt var frá hrottalegu einelti ungrar stúlku í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði í fjölmiðlum í gær en stúlkan reyndi að fyrirfara sér. Stjórn foreldrafélags Hraunvallaskóla segist slegin yfir lýsingum á einelti stúlku sem sækir skólann og sagt var frá í fjölmiðlum í gær. Yfirlýsing frá stjórn foreldrafélags Hraunvallaskóla í Hafnarfirði birtist á Facebook í...
InnlentAgnes og Pétur svara fjölmiðlum sem eru þeim þóknanlegir – Hér eru spurningarnar sem þau svara ekki20. október 2022 Mannlíf hefur undanfarið fjallað um mál þar sem séra Gunnari Björnssyni var neitað að sjá um útför konu í Hveragerðiskirkju. Var óskin komin frá konu fjölskyldunnar. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um svar eða svör vegna málsins hefur Þjóðkirkjan ekki séð sér fært um að svara Mannlífi, en hefur samt sem áður tjáð sig um mál séra Gunnars. Má þar nefna...
SlúðurMamma ráðherrans sefur í bíl20. október 2022 Arnþrúður Karlsdóttir á Útvarpi Sögu ræddi við konu nokkra í símatíma í vikubyrjun eftir viðtal við vopnabróður sinn, Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sem stendur í ströngu við að halda óæskilegum útlendingum fjarri landinu og koma upp einangrunarbúðum. Konan í símanum kynnti sig sem Önnu og upplýsti að hún ætti vart til hnífs og skeiðar og hefði sofið í bifreið sinni undanfarna...