Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Agnes og Pétur svara fjölmiðlum sem eru þeim þóknanlegir – Hér eru spurningarnar sem þau svara ekki

Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyrirspurnum Mannlífs um málefni Þjóðkirkjunnar.
Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Mannlíf hefur undan­farið fjallað um mál þar sem séra Gunnari Björns­syni var neitað að sjá um útför konu í Hvera­gerðis­kirkju. Var óskin komin frá konu fjöl­skyldunnar. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um svar eða svör vegna málsins hefur Þjóð­kirkjan ekki séð sér fært um að svara Mannlífi, en hefur samt sem áður tjáð sig um mál séra Gunnars. Má þar nefna nýlega grein í Stundinni

Í grein Stundarinnar kemur fram að biskupi Íslands finnist koma til greina að svipta séra Gunnar hempunni. Mannlíf sendi nýverið tölvupóst með spurningum er málið varðar; engin svör hafa borist enn þrátt fyrir ítrekanir.

Pétur Markan.

Hafa þau eitthvað að fela?

Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir er prestur í Hvera­gerð­is­kirkju.

Hér að neðan má lesa þær spurningar sem Mannlíf sendi nýverið á forráða­menn Þjóð­kirkjunnar:

Ég undir­ritaður sendi ykkur þessar spurningar með tilvísun í upplýsingalög nr. 140/2012.

Með áður­nefndri tilvísun í upplýsingalög er þess krafist að Þjóð­kirkjan svari eftir­farandi spurningum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að jarð­syngja Sigríði Erlu Ragnars­dóttur í Hvera­gerðis­kirkju 5. september sl.

1. Hver ákvað að séra Gunnar Björnsson mætti ekki sjá um útför frá Hvera­gerðis­kirkju þann 5. september sl?

2. Hvers vegna var ákveðið að meina séra Gunnari að sjá um útförina?

3. Eru önnur dæmi um að prestum sé meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna séu þeir komnir á eftirlaun?

4. Er algengt að prestum með hreina sakaskrá sé meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna, burtśéð frá aldri þeirra?

5. Hvaða prestum öðrum en séra Gunnari Björns­syni hefur verið meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna frá árinu 2012? Ef svo. Hverjar voru þær ástæður og um hvaða presta ræðir?

6. Er að mati stjórn­enda Þjóð­kirkjunnar, löglegt eða verjandi að meina presti á eftir­launum sem er með hreint saka­vottorð og hefur aldrei verið uppvís að glæp að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna?

7. Gilda siða­reglur Þjóð­kirkjunnar fyrir presta og alla aðra er koma að starfi Þjóð­kirkjunnar, þ.m.t biskup, biskups­ritara, aðra starfs­menn Biskups­stofu og stjórn Þjóð­kirkjunnar? Hefur þetta mál komið til Siða­nefndar kirkjunnar eða sannleiks­gildi stað­hæfinga biskups og prests verið til skoðunnar á vettvangi Þjóð­kirkjunnar?

8. Í gögnum er Mannlíf hefur undir höndum koma fram misvísandi svör til syrgjenda. Biskup segir séra Ninnu Sif Svavars­dóttur ábyrga fyrir ákvörðuninni um að neita séra Gunnari Björns­syni að sjá um útförina marg­nefndu, en séra Ninna Sif varpar ábyrgðinni á biskup. Miðað við gögn Mannlífs er ljóst að önnur hvor, Agnes biskup eða séra Ninna Sif eru að segja ósatt. Hvert er hið rétta í málinu?

9. Vinsamlegað afhendið okkur minnis­blöð eða önnur gögn varðandi mál þetta.

10. Hverjum hjá Þjóð­kirkjunni er falið það starf að sinna upplýsinga­skyldu við fjölmiðla sem og allan almenning í landinu? Hvers vegna hefur biskups­ritari ekki svarað fyrir­spurn Mannlífs frá 8. september?

Mannlíf áskilur sér rétt til þess að birta spurningarnar að hluta eða öllu leyti ásamt svörum.

Svanur Már Snorrason blaða­maður Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim