Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Biggi lögga segir foreldra ekkert skárri í netheimum: „Við elskum að vera reið“

Birgir Örn Guðjónsson, lögreglu­maður í Hafnar­firði, betur þekktur sem Biggi lögga, bendir á að við fullorðna fólkið séum oft ekkert skárri en börn og unglingar þegar kemur að einelti og ofbeldis­fullri hegðun í netheimum. Biggi tjáir hug sinn á Facebook þar sem hann tók saman ummæli netverja undir fréttum af hræðilegu ofbeldis­máli gegn 12 ára stúlku í Hafnar­firði, líkt og Mannlíf greindi frá.

Tólf ára dóttir Sædísar Hrannar Samúels­dóttur dvelur nú á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Hún hefur orðið fyrir lang­varandi einelti í Hafnar­firði og ofbeldi af hálfu jafnaldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skólann lengi.

Sjá einnig: Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir einelti í Hafnar­firði:„Hún er enn þá uppi á spítala“

„Hún er enn þá uppi á spítala. Hún reyndi að taka sitt eigið líf. […] Hún fer ekki í skólann lengur. […] Náms­ráðgjafi á að hitta hana einu sinni á dag. Kennarinn var búinn að tala um að hitta hana einu sinni í viku. Hún hefur ekkert farið í skólann í meira en hálfan mánuð núna,“ sagði Sædís Hrönn.

Líkt og flestum Íslendingum var Birgi mjög brugðið vegna málsins. „Þetta mál er sorglegra en tárum tekur og óþolandi að börn skuli upplifa slíkt. Þetta mál er samt langt frá því að vera eitthvað einsdæmi. Svona mál koma reglulega upp og mörg þeirra sjáum við aldrei vegna þess að þau eru föst inni í snjall­heimi barnanna okkar,“ segir Birgir og heldur áfram:

„Við elskum að vera reið og viljum taka öll mál í okkar hendur. Börnin okkar eru fyrsta kynslóðin sem elst upp með samfélags­miðlum og það erum við hin fullorðnu lögðum stikurnar meðfram veginum sem þau eru að reyna að feta. Hvernig hefur okkur gengið? Hvað hafa þau lært af okkur.“

Pistilinn á Facebook endar Biggi á því að birta fjölda ummæla netverja undir fréttum af málinu hræðilega í Hafnar­firðinum. Hann segir þetta aðeins brot af umræðunni en þetta sýni að fullorðna fólkið er stundum lítið skárra. Ummælin frá Birgi eru hér fyrir neðan:

„Hef aldrei skilið hvernig hægt er að skapa svona viðbjóðsleg kvikindi. Þetta er versta sort af öllu ógeðslegu.“

„birta myndir af gerendum á almennum áberandi stöðum miskunnar­laust, mætti hafa myndir af forræðis­mönnum með“

„dæma þá eins og um FULLORÐNA EINSTAKLINGA sé að ræða !“

„Berja þessa vesalinga fyrir framan alla í skólanum.“

„Það á að draga öll þessi börn í sjón­varpið og vita hvað þau hafa að segja og hvort ekki lækkaði í þeim kjafturinn.“

„Taka þessa krakka ANDSKOTA og löðrunga þá, djöfulsins viðbjóður er þessi krakka líður„

„Það vantar hérna unglinga­dómstól og unglinga*fangelsi*“

„Helvítis aumkunar­verðu og illa innrættu börn.“

„Þetta eru heila­lausir aumingjar eins og foreldrarnir.“

„Það þarf ekki að raskella þessi börn, það þarf að lemja manndóm í foreldrana líka, sóunn á súrefni þetta pakk.“

„Krakkar þurfa ađ finna þađ međ mjög skýrum hætti ađ ofbeldi hefur afleiđingar og afleiđingarnar þurfa ađ bìta hressilega helst mjög mikiđ.“

„Skítt með persónu­vernd, nöfn þessara krakka og foreldra þeirra upp á borðið strax.“

„Name and shame þessa krakka og foreldra þeirra. Eina ráðið“

„Ógeðs­legur skóli eru foreldrar eitthvað skrýtnir að leyfa þessu að viðgangast.“

„Setja upp opna Facebooksíðu með myndum af þessum ógeðis krakka­fíflum.“

„Það þarf auðvitað fyrst og fremst að taka þessa gerendur ÚR UMFERÐ og það undireins. Það er ekki hægt að hafa svona villidýr í samfélaginu“

„Helvítis viðurstyggilega drullu­hyski“

„Fara heim til þeirra og murka lífið úr pabba þeirra fyrir framan börnin“

„Guð minn góður hvað er að loka þessum skóla og taka börnin af foreldrunum“

„Meira ruglið…ég væri búin að senda hrotta á eitt og hvert þeirra og foreldra“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning