Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Stjórn foreldrafélags Hraunvallaskóla: „Slegin eins og allir yfir lýsingum á einelti nemenda“

Hraunvallaskóli
Hraun­valla­skóli Mynd: Lárus Karl Ingason – hafnarfjordur.is

Mikil reiði er í samfélaginu eftir að sagt var frá hrotta­legu einelti ungrar stúlku í Hraun­vallaskóla í Hafnar­firði í fjöl­miðlum í gær en stúlkan reyndi að fyrirfara sér.

Stjórn foreldra­félags Hraun­vallaskóla segist slegin yfir lýsingum á einelti stúlku sem sækir skólann og sagt var frá í fjöl­miðlum í gær.

Yfir­lýsing frá stjórn foreldra­félags Hraun­vallaskóla í Hafnar­firði birtist á Facebook í gær þar sem fregnir af einelti sem 12 ára stúlka verður fyrir í skólanum og utan hans eru harmaðar. Stúlkan, Ísabella Von reyndi að fyrirfara sér í kjölfar hrotta­legs eineltis en í kvöld­fréttum Rúv í gær sagðist hún geta nafn­greint 35 gerendur í eineltinu.

Yfir­lýsing foreldra­félagsins er eftir­farandi:

„Stjórn foreldra­félags Hraun­vallaskóla er slegin eins og allir yfir lýsingum á einelti nemenda skólans sem sagt hefur verið frá í fjöl­miðlum í dag.

Við höfum verið í sambandi við skóla­stjórnendur Hraun­vallaskóla og munum eiga fund með þeim við fyrsta tækifæri. Það er brýnt að taka á svona málum af festu og setja í farvegi. Einnig að við foreldrar, skóla­stjórnendur og starfs­fólks skólans vinnum saman að uppbygggjandi lausnum þar sem velferð barnanna er alltaf í fyrirrúmi. Stjórn foreldra­félagsins mun þar leggja allt sitt að mörkum eins og aðstæður leyfa.“

Nokkrir hafa skrifað athuga­semdir við yfir­lýsinguna og má sjá að fólk hefur áhyggjur af stöðu mála í skólanum. Ein konan segir hina fullorðnu verða að „girða sig í brók“: „Miðað við kommenta­kerfin í gær við fréttir af þessu hryllilega máli þá mega ansi margir full­orðnir byrja á því að girða sig í brók. Börn lesa þetta og herma eftir.“

Ein kona lýsir yfir miklum áhyggjum og vill fá svör við ýmsum spurningum. Segir hún meðal annars: „Hvernig eigum við foreldrar að koma að því að vinna saman að uppbyggjandi lausnum? Mun verða opinn fundur með foreldrum allra barna og skóla­stjórnendum/starfs­fólk? Munu verða búnir til nýjir verk­ferlar þegar kemur að eineltis­málum? Eru til skýrir og ákveðnir verk­ferlar og farið eftir þeim? Það eru bara margar spurningar og áhyggjur sem þarf virkilega að létta á…“

Þá skrifar einn karlmaður athugasemd og er ekki bjartsýnn: „Skólarnir hafa aldrei, og munu aldrei gera neitt! Af hverju eru gerendur og sérstak­lega foreldrar þeirra aldrei opinberaðir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning