Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gríðarlegur liðsstyrkur Grindvíkinga – Bræður sameinaðir

Jón Axel Guðmundsson og Ingibergur Jónasson handsala samninginn, í íþróttahúsi Grindavíkinga. Mynd / UMFG.
Jón Axel Guð­munds­son og Ingi­bergur Jónasson hand­sala samn­ing­inn, í íþrótta­húsi Grinda­vík­inga. Mynd / UMFG.

Jón Axel Guðmundsson hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með félaginu í Subwaydeild karla út þessa leiktíð.

Óhætt er að segja að þetta séu risa­tíðindi fyrir körfu­boltann í Grindavík.

Jón Axel er einn allra besti körfu­knattleiks­maður Íslands og er lykil­maður í íslenska lands­liðinu.

Jón Axel Guð­munds­son.

Jón Axel er 25 ára gamall; hefur leikið í atvinnu­mennsku í Þýska­landi og Ítalíu undan­farin tvö ár; árin þar á undan var hann í háskóla­körfu­boltanum hjá Davidson háskólanum, og lék þar við afar góðan orðstír:

„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur hjá Grindavík að Jón Axel hafi tekið ákvörðun um að spila með okkur í vetur,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grinda­víkur, og bætir við:

Jóhann Þór Ólafsson þjálf­ari Grind­vík­inga.

„Jón Axel mun styrkja okkar lið verulega og ég er gífurlega spenntur að vinna með honum. Hann hefur æft með okkur undan­farnar vikur og lítur vel út. Ég held að allir Grinda­víkingar séu í skýjunum með að fá Jón Axel aftur heim í Grindavík.“

Núna er Jón Axel kominn með leik­heimild; mun spila með liði Grinda­víkur í næsta leik gegn Keflavík, sem fram fer í kvöld í Reykja­nesbæ.

Til gamans má geta að yngri bróðir Jóns Axels, Bragi, spilar einnig með Grind­víkingum. Bragi er einn allra efnilegasti leikmaður landsins. Verður gaman að fylgjast með bræðrunum og Grinda­víkurliðinu í vetur, sem eftir þennan liðsstyrk er til alls líklegt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning