InnlentSamfylkingin þarf að ræða við Steinunni Ólínu ef þau skipta um nafn: „Hef enga trú á stjórnmálum“15. september 2022 Samfylkingin þarf líklega að ræða við Steinunni Ólínu leikkonu ef flokkurinn hyggst skipta um nafn. Ástæðan fyrir því er að Steinunn á lénið jafnaðarflokkurinn.is, sem er næstum samhljóða því nafni sem stungið hefur verið upp á að verði nýtt nafn flokksins. Steinunn greinir frá þessu á Facebook. „Það var sem mig minnti. 2016 hélt ég að það væri góð hugmynd...
InnlentRagnar Þór býður sig fram til forseta ASÍ15. september 2022 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hyggst bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Þing sambandsins fer fram í lok október og verður nýr formaður þá kosinn. Kjarninn greinir frá þessu. Ragnar er sagður hafa kynnt þessa ákvörðun fyrir starfsfólki VR á fundi í morgun. „Ef að viljinn til breytinga nær til dæmis inn í iðnaðarmannasamfélagið og raunverulegur vilji er til...
InnlentHljómsveitin TAB með glænýtt lag: „Fær jafnvel stirðustu einstaklinga til að dilla sér“15. september 2022 Hljómsveitin TAB gefur út nýtt lag í dag á Spotify. TAB er glænýtt band og skipa Bjartmar Þórðarson, Tinna Kristinsdóttir og Arna Rún Ómarsdóttir það en þau hafa öll verið töluvert viðriðin tónlistarbransann, hvert á sinn hátt. Útsetningar eru í höndum Bomarz (Bjarka Ómarssonar) en hann hefur skapað sér frábært nafn í poppheiminum hérlendis sem erlendis undanfarin ár. TABMynd: Aðsend...
InnlentVinslit Davíðs og Jóns Steinars: ,,Hann hætti að tala við mig“15. september 2022 Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstarréttardómari, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Jón Steinar segist í þættinum ekki hafa heyrt í Davíð Oddssyni í langan tíma, líklega vegna þess að Davíð hafi verið ósáttur við skoðanir hans: ,,Við höfum ekki talað saman í meira en ár. Hann hætti bara að tala við mig og hefur líklega farið í...
InnlentVarð fyrir kynferðisáreiti á áttræðisaldri: „Hann fór inn í eldhús, reyndi að kyssa mig og faðma’’15. september 2022 „Hann var hálfgerður yfirmaður minn á þessum tíma, þessi maður. Ég sá um matinn og hann fór að koma inn í eldhús, reyndi að kyssa mig og faðma,’’ segir Guðbjörg Gígja Kristjánsdóttir, 75 ára gömul kona, í samtali við Fréttablaðið. Þar segir Guðbjörg að kynbundin áreitni spyrji ekki um aldur og lýsir hún upplifun sinni þegar hún starfaði hjá Hafnarfjarðarbæ...
SlúðurSamherjar í stríði á Akureyri15. september 2022 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á ekki sjö dagana sæla. Uppnám er í flokknum á Akureyri eftir að þrjár konur í forystusveit hans sökuðu oddvita flokksins, Brynjólf Ingvarsson og Jón Hjaltason varabæjarfulltrúa um andlegt ofbeldi og kynferðislega áreitni. Ein kvennanna, Málfríður Þórðardóttur, varamaður Brynjólfs, mun hafa yfirgefið fund, þar sem leita átti sátta, grátandi af óljósum ástæðum. Eftir því sem...
InnlentKatrín í kvöld: „Skautunarstjórnmál leysa ekki neitt heldur dýpka ágreining og leiða til átaka“14. september 2022 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði um stefnuræðu sína í kvöld að þar hafi hún talað um „þau verkefni og áskoranir sem bíða okkar á komandi árum. Ég ræddi meðal annars loftslagsvána sem nú þegar hefur skapað neyðarástand víða um heim og um leið fjallaði ég um tækifærin sem felast í orkuskiptum í almannaþágu,“ sagði hún og bætti við: „Stríðið í Úkraínu...
InnlentLögreglan í Manchester um mál Gylfa: Tjá sig ekki nema ákæra verði gefin út eða mál fellt niður14. september 2022 Nú eru liðnir heilir fjórtán mánuðir síðan lögreglan í Manchester hóf rannsókn sína á Gylfa Þór Sigurðssyni, eins besta fótboltamanns Íslands fyrr og síðar og fyrrum landsliðsmanns í knattspyrnu. Fyrir fjórtán mánuðum var Gylfi handtekinn og settur í farbann. Mikið hefur verið fjallað um málið hér á landi, en einnig víða um heim. Lögreglan í Manchester hefur aftur og aftur...
SlúðurAlfreð Steinar skipstjóri varð kennari í Namibíu: – Maður með skammbyssu rændi skipi hans14. september 2022 Alfreð Steinar Rafnsson á að baki ævintýralegan feril sem skipstjóri á togurum og sem kennari í Sjómannaskólanum í Namibíu. Hann segir sögu sína í Sjóranum þessu sinni. Tilviljun réði því að hann varð skipstjóri á togaranum Hvalbak, þrítugur að aldri. Hann gerði út verksmiðjutogara frá Litháen og mokfiskaði. Svo endaði ævintýrið með ósköpum þegar flaggskipstjóri með skammbyssu að vopni tók...
InnlentRisastór túnfiskur veiddist sunnan við Eldey: Heil 208 kíló!14. september 2022 Hann var ekki lítill túnfiskurinn sem í gærkvöld Ísey EA 40 kom með til hafnar í Grindavík; 2,5 metra langan bláuggatúnfisk; var kvikindið hvorki meira né minna en 208 kíló, en þetta kemur fram á vef Grindavíkurhafnar. Og þar segir skipstjórinn á Ísey, Grétar Þorgeirsson, að túnfiskurinn hafi verið veiddur sunnan við Eldey. Túnfiskurinn risastóri er ekki sá fyrsti sem...
InnlentHjörleifur hjá Flokki fólksins kallar konurnar þrjár svikakvensur: „Þær eru ekki heilbrigðar“14. september 2022 Hjörleifur Hallgríms Herbertsson er einn af hvatamönnum framboðs Flokks fólksins á Akureyri, og hann hafnar ásökunum um kynferðilega áreitni í garð kvenna á lista flokksins. Þetta segir hann í samtali við RÚV – eftir að þrjár konur í flokknum, Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving, sendu frá frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að þær væru lítilsvirtar og...
InnlentGlæsiíbúð listakonunnar Elísabetar í nýja miðbænum föl fyrir 185 milljónir – Sjáið myndirnar!14. september 2022 Listakonan Elísabet Ásberg hefur nú ákveðið að selja glæsilega íbúð sína hjarta Reykjavíkur. Íbúðin, sem er öll hin glæsilegasta, er 163 fermetra íbúð í blokk sem byggð var fyrir fjórum árum. Ásett verð er 185 milljónir króna. Staðsetningin er ekkert að skemma fyrir sölunni; íbúð Elísabetar er í hinum vinsæla nýja miðbæ Reykjavíkur. Undir blokkinni er flottur bílakjallari og mjög...
InnlentGeorg Bjarnfreðarson kominn í Flokk Fólksins: „Georg dýrkar Ingu en Óli er enn að leita að fjöri“14. september 2022 Flokkur fólksins stendur í ströngu þessa dagana en ásakanir um eineltistilburði og hestaníð skekur flokkinn. Jón Gnarr gerir grín að ástandinu. Jón Gnarr, grínisti og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur skrifaði í dag færslu á Twitter þar sem hann gerir grín að veseninu sem Flokkur fólksins finnur sig í um þessar mundir. Setur hann karaktera úr hinum geysivinsælu Vaktar-seríunum í hlutverk innan...
InnlentPrestur hefur tíu sinnum orðið uppvís að ósæmilegri hegðun: „Þjóðkirkjan stendur með þolendum“14. september 2022 Fram kemur í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni að teymi hennar hefur metið að 10 sinnum hafi sóknarprestur sem starfar innan kirkjunnar orðið uppvís að háttsemi sem stríði gegn ákvæðum EKKO-reglugerðar kirkjunnar, sem er reglugerð um einelti, kynferðislega áreitni sem og kynbundna, sem og annað ofbeldi. Prestur þessi hefur látið af störfum og í bígerð er að veita honum skriflega áminningu. Ekki...
InnlentTimbursalinn áfram í haldi lögreglu: „Óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi“14. september 2022 Enn vindur risastóra kókaínmálið upp á sig og rannsókn er í fullum gangi. Gæsluvarðhald yfir þremur af meintum smyglurum í 100 kg kókaínmálinu rennur út í dag, 14. september. Einn fjórmenninganna sætir afplánun vegna fyrri brota og því í öruggu haldi lögreglu. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn staðfesti að ákvörðun hefði verið tekin um framhaldið á 100 kílóa kókaínmálinu: „Já, það verður...
MenningBritney Spears brast í grát í miðjum dansi: „Þetta er ekki taugaáfall fávitar“14. september 2022 Poppdrottningin Britney Spears birti furðulegt myndband á Instagram í gær þar sem hún sést dansa og bresta í grát. Síðan Britney Spears losnaði undan ægivaldi föður síns í fyrra, hefur hún oft tjáð sig um málið á Instagram-reikningi sínum, meðal annars hefur hún talað um hvað hún fagni frelsinu og að hún hafi misst af svo miklu á meðan faðir...