Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hjörleifur hjá Flokki fólksins kallar konurnar þrjár svikakvensur: „Þær eru ekki heilbrigðar“

Hjörleifur Hallgríms Herbertsson er einn af hvata­mönnum framboðs Flokks fólksins á Akureyri, og hann hafnar ásökunum um kynferði­lega áreitni í garð kvenna á lista flokksins.

Þetta segir hann í samtali við RÚV – eftir að þrjár konur í flokknum, Málfríður Þórðar­dóttir, Tinna Guðmunds­dóttir og Hannesína Scheving, sendu frá frá sér yfir­lýsingu þar sem kom fram að þær væru lítilsvirtar og hunsaðar af karl­forystu flokksins á Akureyri; nefna líka að sumar þeirra hefðu mátt sæta kynferðislegri áreitni sem og óviðeigandi framkomu.

Flokkur fólks­ins – fram­bjóð­endur á Akureyri í vor.

„Ég raðaði upp öllum 22 mönnum á listann á tveimur vikum. Innan fjögurra vikna tilskilinn tíma var hann kominn inn listinn, löglegur til kjör­stjórnarinnar hérna á Akureyri.“

Hjörleifur bætir því um málið að fljótlega á fyrstu stigum kosninga­baráttunnar hafi kastast í kekki á milli fólks á listanum, og að það hafi ekki komið Hjörleifi í opna skjöldu:

„Af minni fyrri reynslu af þessum, ég segi svika­kvensum. Ég leyfi mér að fullyrða að þær ætluðu sér að yfirtaka þetta allt saman, mitt framboð, minn lista. Það líð ég aldrei.“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Inga Sæland formaður Flokks fólksins sagði í viðtali á Bylgjunni að ásakanir um kynferðis­lega áreitni beindust alls ekki gegn forystu­mönnum flokksins. En gegn hverjum þá?

„Hvað heldur þú, ég tek það þannig og ég sit ekki undir því, dettur það ekki til hugar. Ég mun heilshugar styðja lögreglu­rannsókn, ég fer alla leið eins og ég kemst. Að láta hana bendla mig við kynferðis­ofbeldi, það er svo af og frá minni aðgerð og huga til kvenna. Ég hef alla tíð elskað konur og þykir vænt um konur. Aldrei lagt hendur á konur.“

Hjörleifur ku hafa sent konum í flokknum óviðeigandi skilaboð, og hvað skyldi hann segja við því?

„Óviðeigandi skila­boðin frá mér eru þau að Tinna Guðmunds­dóttir á afmæli 22. maí og ég sendi henni, í vor sendi ég henni afmælis­kveðju og rauða rós. Ég tek það fram ég þorði auðvitað ekki að senda henni nema eina rauða rós. Já og Hannesínu marg­hringdi ég í og á endaum svaraði hún ekki því ég ætlaði að bjóða henni hingað heim til mín, þar sem þið sitjið núna í kaffisopa og spjall, ég gerði allt til þess að reyna að settla málin.“

Hann er ekki sáttur – langt í frá – er spurður hvort konurnar hafi túlkað þessar tilraunir hans til þess að settla málin sem áreitni?

„Ég skal ekki segja um það því ég tel að þetta sé ekki normalt hjá þeim sko. Þær eru ekki heilbrigðar.“

Hjörleifur er meira en ósáttur við formann flokksins, Ingu Sæland, og framgöngu hennar í málinu.

„Í aðra röndina kyssir hún mig og kjassar og í hina röndina hund­skammar hún mig, það er það sem ég vil segja um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“