Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Timbursalinn áfram í haldi lögreglu: „Óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi“

Lögreglan óskar eftir framlengingu á gæsluvarðhald þriggja mannanna.
Lög­reglan óskar eftir fram­leng­ingu á gæslu­varð­hald þriggja mann­anna.

Enn vindur risastóra kókaín­málið upp á sig og rannsókn er í fullum gangi. Gæslu­varðhald yfir þremur af meintum smyglurum í 100 kg kókaín­málinu rennur út í dag, 14. september. Einn fjór­menninganna sætir afplánun vegna fyrri brota og því í öruggu haldi lögreglu.

Grímur Grímsson yfir­lögreglu­þjónn staðfesti að ákvörðun hefði verið tekin um fram­haldið á 100 kílóa kókaín­málinu: „Já, það verður sem sé óskað eftir fram­lengingu á gæslu­varðhaldi í dag yfir þremur sakborninganna í þessu máli.“

Vert er að benda á að gæslu­varðhald er tíma­bundin frelsis­svipting sem beitt er í þágu rann­sóknar eða meðferðar sakamáls á grund­velli dóms­úrskurðar þegar tiltekin skilyrði eru fyrir hendi. Hérað­dómur tekur málið fyrir í dag. Líklegt er að krafa lögreglunnar verði samþykkt.

Málið er það stærsta sem komið hefur til kasta íslensku lögreglunnar. Fundist hafði áður óheyrt magn af kókaíni í gámi með timbri sem kom frá Brasílíu í Sundahöfn. Timbursendingin hafði viðkomu í Hollandi. Toll­verðir þar í landi fundu efnið og létu íslensk yfirvöld vita. Viðtak­andi sendingarinnar, reykvískur timbur­sali, var hand­tekinn þegar hann vitjaði innihalds gámsins. Aðild hans að málinu kemur mjög á óvart. Hann á að baki sorgar­sögu þar sem sonur hans lét lífið vegna ofneyslu eitur­lyfja. Mannlíf fjallaði um mál timbur­salans. Sjá hér.

Upphaf málsins var að þann 17. ágúst birtist eftir­farandi frétt á heimasíðu lögreglunnar: „Þrír aðilar voru í dag í Héraðs­dómi Reykja­víkur úrskurðaðir í fjögurra vikna áfram­haldandi gæslu­varðhald, eða til 14. september, í þágu rann­sóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkni­efnum. Einn til viðbótar sat í gæslu­varðhaldi vegna málsins, en sá hefur verið færður í afplánun vegna annarra mála. Um er að ræða tæplega 100 kg af kókaíni sem var falið í vöru­sendingu á leið til landsins. Málið er tilkomið vegna frumkvæðis­rannsókna á skipulagðri brota­starfsemi og miðar rannsókn þess vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“