Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Timbursali var handtekinn í stærsta fíkniefnamáli Íslands – „Ég hef ekkert við þig að tala, vina“

Mynd samsett.
Mynd sam­sett.

Reykvískur timbur­sali er meintur innflytjandi í stærsta kókaíns­mygli Íslands. Umrædd sending barst í gegnum fyrirtæki hans. Efninu hafði verið komið fyrir innan um timbur­vörur sem fluttar voru inn frá Brasilíu. Fjórir hafa verið hand­teknir í tengslum við málið. Hinir grunuðu eru ekki þekktir glæpamenn en talið er að um skipulagða brota­starfsemi sé að ræða. Heimildir Mannlífs herma að starfsemin hafi átt sér stað í áraraðir.

Sendingin fór frá Brasilíu með viðkomu í Hollandi. Hollenskir toll­verðir fundu 100 kíló af kókaíni og létu yfirvöld hér á landi vita. Um er að ræða lang­stærsta kókaín­smygl sem íslenska lögreglan hefur náð að uppræta. Stærsta smyglið fram að þessu nam 16 kílóum af kókaíni. Reynt var að smygla því í ferða­tösku í gegnum Leifsstöð.

Lögreglan fjarlægði kókaínið við komu sendingarinnar til landsins og kom fyrir eftir­líkingu þess. Timbursalinn hófst svo handa við að tæma gáminn og var í kjölfarið hand­tekinn. Götuvirði efnisins hleypur á himinháum upphæðum.

Með­fylgj­andi er mynd af kóka­ín­inu sem fannst í Hollandi. Mynd/logreglan.is

Til mikils að vinna

Samkvæmt heimildum Mannlífs er kílóverð á kókaíni í Brasilíu um þrjú hundruð þúsund krónur og má því áætla að heild­söluverð efnisins hafi verið um það bil þrjátíu milljónir króna. Hingað komið er kíló­verðið að lágmarki um 10 milljónir króna. Áætla má því að uppreiknað andvirði sendingarinnar hafi verið í kringum einn milljarð íslenskra króna. Samkvæmt ársreikningi félagsins veltir það innan við 10 milljónum króna á ári eða sem nemur þriðjungi innkaupa­verðsins á kókaíninu.

Sonarmissir

Timbursalinn, sem nú situr í gæslu­varðhaldi, er ekki þekktur afbrota­maður. Hann hefur gengið í gegnum miklar raunir í einkalífi sínu. Fyrir ári síðan missti hann son sinn. Dánar­orsök hans var of stór neyslu­skammtur.

Reynt var að hafa samband við fyrirtæki timbur­salans en slökkt var á farsímanum og enginn til svara. Samkvæmt heimildum Mannlífs heldur hann fram sakleysi sínu. Sambýlis­kona timbur­salans vildi sem minnst um málið segja þegar Mannlíf ræddi við hana. „Ég hef ekkert við þig að tala, vina,“ og sleit því næst samtalinu.

Lögreglan

Grímur Grímsson yfir­lögreglu­þjónn segir rannsókn málsins miða vel. „Þeir sem voru hand­teknir eru í gæslu­varðhaldi, fyrst í 10 daga en því var svo framlengt um fjórar vikur.“ Grímur segir að tekin verði ákvörðun á næstu dögum um áfram­haldið. En lögum samkvæmt þarf að ákæra innan tólf vikna frá því að meintir afbrota­menn eru úrskurðaðir í gæslu­varðhald fyrst. Áætlar Grímur að rann­sókninni ljúki einhverjum níu til tíu vikum frá því að mennirnir voru hand­teknir.

Eftir fyrstu fram­lengingu á úrskurði um gæslu­varðhald fóru þrír mannanna í áfram­haldandi gæslu­varðhald á meðan einn þeirra var sendur í afplánun vegna fyrri brota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning