Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Katrín í kvöld: „Skautunarstjórnmál leysa ekki neitt heldur dýpka ágreining og leiða til átaka“

Katrín Jakobsdóttir. Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði um stefnu­ræðu sína í kvöld að þar hafi hún talað um „þau verkefni og áskoranir sem bíða okkar á komandi árum. Ég ræddi meðal annars loftslags­vána sem nú þegar hefur skapað neyðar­ástand víða um heim og um leið fjallaði ég um tækifærin sem felast í orku­skiptum í almanna­þágu,“ sagði hún og bætti við:

„Stríðið í Úkraínu var einnig umfjöllunar­efni mitt og ég talaði um hrikaleg áhrif þess á úkraínsku þjóðina og þær afleiðingar sem stríðið hefur á heims­byggðina alla.“

Katrín ræddi „einnig réttindi hinsegin fólks og mikilvægi þess að tryggja að við höldum áfram á réttri braut þegar kemur að réttinda­baráttu þeirra.“

Hún nefnir einnig að „á komandi þingvetri vænti ég þess að við sem á Alþingi sitjum náum markmiðum okkar sem er að vinna að heilindum fyrir landi og þjóð.

Á tímum skautunar og einstefnu­stjórnmála skiptir miklu að ná saman um framfara­skref fyrir samfélagið allt. Viðfangs­efnin sem ég hef nefnt hér í kvöld eru nefnilega risavaxin og verða eingöngu leyst með samtali eftir lýðræðis­legum leik­reglum.

Skautunar­stjórnmálin munu ekki leysa neitt – heldur dýpka ágreininginn og leiða til átaka á tímum sem kalla einmitt á að fólk með ólíkar lífs­skoðanir tali saman og leiti saman lausna gagnvart stórum áskorunum.

Á slíkum grunni er hægt að byggja til framtíðar. Þó að stjórn og stjórnar­andstaða eigi eðli máls samkvæmt að takast á og leiða fram rök og gagnrök þá vona ég að þing­mönnum öllum, óháð flokkum og ólíkum lífs­skoðunum, beri gæfa til að vinna á slíkum grund­velli þjóðinni allri til heilla á þeim þingvetri sem nú er að hefjast,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“