HeimurFyrrum húsvörður skaut þrjá kennara til bana – Lifði af sjálfsvígstilraun21. ágúst 2024 Að minnsta kosti þrír kennarar voru skotnir til bana á kennarafundi í Bosníu eftir að maður, sem talinn er vera fyrrum húsvörður skólans, mætti í bygginguna og hóf skothríð með sjálfvirkum rifli. Skotmaðurinn, sem heitir Mehemed Vukalić er sagður hafa ráðist á kennarana inni í íþróttahúsi Sanski Most-framhaldsskólanum í norðvestur Bosníu, um klukkan 10:15 að staðartíma í morgun. Enginn nemandi...
InnlentÓvissustigi lýst yfir vegna Skaftárhlaups – Ferðafólk beðið um að halda sig fjarri21. ágúst 2024 Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað hægt síðustu daga og vatnshæð og rennsli árinnar við Sveinstind aukist. Síðast hljóp úr katlinum í september 2021 en hlaupin úr vestari katlinum eru að jafnaði minni en hlaupin úr þeim eystri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár...
InnlentStýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum21. ágúst 2024 Stýrivöxtum Seðlabanka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 prósentum. Þetta kemur fram í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri tilkynnti í morgun að Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hafi ákveðið að halda stýrivöxtum áfram í 9,25 prósentum. Fram kemur í yfirlýsingu nefndarinnar að verðbólga hafi aukist eilítið frá síðasta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Undirliggjandi verðbólga er enn...
HeimurKlámstjarnan Sophia Leone lést úr of stórum eiturlyfjaskammti21. ágúst 2024 Klámstjarnan Sophia Leone lést eftir of stóran skammt af eiturlyfjum en lögreglan í Albuquerque í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum greinir frá þessu. Leone lést í apríl á þessu ári en að sögn lögreglu á sínum tíma voru þær aðstæður sem hún fannst látin grunsamlegar og var málið um tíma rannsakað sem mögulegt morð. Nú hefur verið allur vafi tekinn af...
HeimurReyndi að henda ókunnugri konu fyrir bílaumferð – MYNDBAND21. ágúst 2024 Ökumenn á hraðbraut í Los Angeles urðu vitni að skelfilegri árás þann 7. ágúst en þá réðst maður á ókunnuga konu og reyndi að kasta henni fyrir bílaumferð. Árásin ótrúlega náðist á upptöku og á henni sést maður að nafni Juan Pablo Flores kýla og sparka ítrekað í konu og reyna henda henni fyrir bílaumferð. Konan rétt sleppur, oftar en...
LandiðRisasveppur vex við Sigurgerði í Fellum: „Ég hélt fyrst að þetta væri dautt lamb“21. ágúst 2024 Við aflögð útihús við Sigurgerði í Fellum á Héraði, hefur glæsileg jötungíma, sem talin er vera stærsta sveppategund heims, dúkkað upp. Þar hefur jötungíman skotið upp kollinum af og til síðustu 15 árin. „Sveppurinn kemur ekki fram á hverju ári. Það eru 2-3 ár síðan hún sást hér síðast,“ segir Brynjólfur Rúnar Gunnarsson, bóndi á Hafrafelli í samtali við Austurfrétt....
LandiðSameining skoðuð í Árneshreppi á Ströndum: „Okkar næstu nágrannar eru Kaldrananeshreppur“21. ágúst 2024 Hreppsnefnd Árneshrepps heldur íbúafund í dag þar sem sameining við önnur sveitarfélög verður til skoðunar. Alls eru skráðir 53 íbúar í Árneshreppi en rúmlega 20 manns eru með búsetu þar allt árið. Þau sveitarfélög sem liggja að Árneshreppi eru Kaldrananeshreppur með höfuðstaðinn Drangsnes og Ísafjarðarbær. Skúli Gautason, staðgengill sveitarstjóra í Árnsehreppi, segir við RÚV að fundurinn í dag verði fyrsta...
SlúðurLilja leitar útvarpsstjóra21. ágúst 2024 Í janúar á næsta ári mun nýr útvarpsstjóri taka við af þeim umdeilda Stefáni Eiríkssyni sem hefur gefið út að hann muni ekki sækjast eftir áframhaldandi starfi þegar fimm ára skipunartíma hans sleppir. Það kemur í hlut Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra menningar, að auglýsa stöðuna með réttum fyrirvara og velja síðan nýjan útvarpsstjóra. Víst er að margir horfa hýru auga til...
InnlentHandrukkarar meiddu mann í heimahúsi – Kófdrukkinn hótelgestur var til vandræða21. ágúst 2024 Lögreglu barst beiðni um hjálp þar sem þrír einstaklingar voru að meiða húsráðanda með barsmíðum. Árásin var tilkomin vegna innheimtu á skuld og voru handrukkarar við iðju sína með þekktu ofbeldi þegar lögregluna bar að garði. Ofbeldismennirnir voru handteknir á staðnum og færðir á lögreglustöð. Fórnarlambið var flutt með sjúkarbifreið til frekari aðhlynningar en er þó ekki talið vera mikið...
MannlífiðUngur stýrimaður stökk á eftir háseta sem féll í sjóinn: „Hreint björgunarafrek hjá mínum manni“20. ágúst 2024 Ungur sjómaður drýgði sannkallaða hetjudáð þegar hann stökk í sjóinn eftir að skipsfélagi hans féll útbyrðis í í febrúar 1996. Sveinn Arnarson stýrimaður, var aðeins 22 ára gamall þegar hann bjargaði lífi skipsfélagasíns á Þorseti GK fyrir tæplega 30 árum síðan. HetjanMynd: Trausti Hafsteinsson Skipsfélagi Sveins, hásetinn Sigurgeir Þorsteinn flæktist í færi, ökklabrotnaði og féll loks fyrir borð 25. febrúar...
HeimurBiden táraðist á landsfundi Demókrata: „Hún er hörð, hún hefur reynslu og hefur gríðarleg heilindi“20. ágúst 2024 Joe Biden táraðist þegar hann steig á sviðið á landsfundi Demókrataflokknum í Chicago-borg í gærkvöldi. Biden hélt ræðu fyrir troðfullum sal í Chicago fyrsta kvöld landsþings Demókrata, þar sem hann varði forsetatíð sína og snerti á mörgum þeirra mála sem hann barðist fyrir árið 2020 og aftur á þessu ári áður en hann ákvað að stíga til hliðar um miðjan...
InnlentKolbeinn heldur til Hollands – Verðmetinn á 76 milljónir króna20. ágúst 2024 Íslenski landsliðsmaðurinn Kolbeinn Finnsson mun skipta lið en danska blaðið Tipsblaðið greinir frá þessu. Blaðið segir frá því að hollenska liðið FC Utrecht verði næsti viðkomustaður Kolbeins á atvinnumannaferlinum. Kolbeinn hefur spilað með Lyngby í Danmörku undanfarin ár en spilaði áður með Fylki, Borussia Dortmund, Brentford og Groningen. Sagt er að tilboðið sem Lyngby hefur samþykkt sé í kringum 500.00...
LandiðNatascha gengur alltaf berfætt og talar lýtalausa íslensku20. ágúst 2024 „Ég geng alltaf berfætt nema í vinnunni,“ segir Natascha Harsch, íbúi á Reykhólum og starfsmaður Þörungavinnslunnar, sem stóð berfætt í suddanum við að gefa súpu fyrir utan heimili sitt við Hellisbraut á Reykhólum. Natascha var ein þeirra sem gáfu súpu á Reykhóladögum um liðna helgi. Hún bauð upp á gómsæta katöflusúpu. Natascha Harch gaf gestum og gangandi súpu um helgina....
InnlentAlbert neitar ennþá sök í nauðgunarmálinu: „Það mun ekki hafa áhrif á mig“20. ágúst 2024 Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson gekk nýverið til liðs við ítalska liðið Fiorentina. Liðið endaði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á seinasta tímabili en liðið hefur endað í kringum miðja deild undanfarin áratug en náð ágætis árangri í Evrópukeppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki færa sig um set þar til eftir niðurstaða úr nauðgunarmáli hans væri ljós en...
HeimurSkrifaði hrollvekjandi færslu rétt fyrir snekkjuslysið: „Og þau lifðu öll hamingjusöm til æviloka“20. ágúst 2024 Meðeigandi breskrar lögfræðistofu, sem saknað er eftir að lúxussnekkja sökk undan ströndum Ítalíu, hafði hrósað samstarfsmönnum sínum og fjölskyldu á Linkedin-færslu, áður en hann fór í hina örlagaríku siglingu. Fyrsta og hugsanlega síðasta færsla Christopher Morvillo á samfélagsmiðlinum Linkedin sagði frá stolti hans yfir því að samstarfsmenn hanns hjá Clifford Chance gátu hjálpað Mike Lynch og Steven Chamberlain fyrir rétti...
InnlentVeiðimaður á fertugsaldri lést eftir voðaskot við Vatnajökul20. ágúst 2024 Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi er greint frá því að maður hafi látist af slysförum norðan við Vatnajökul í morgun en lögreglunni barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan átta. Sjúkralið, lögregla og þyrla Landhelgisgæslunnar héldu þegar á staðinn en maðurinn var úrskurðaður látinn þegar á vettvang var komið. Málið er í rannsókn en lögregla veitir ekki frekari upplýsingar...