Íslenski landsliðsmaðurinn Kolbeinn Finnsson mun skipta lið en danska blaðið Tipsblaðið greinir frá þessu. Blaðið segir frá því að hollenska liðið FC Utrecht verði næsti viðkomustaður Kolbeins á atvinnumannaferlinum.
Kolbeinn hefur spilað með Lyngby í Danmörku undanfarin ár en spilaði áður með Fylki, Borussia Dortmund, Brentford og Groningen. Sagt er að tilboðið sem Lyngby hefur samþykkt sé í kringum 500.00 evrur en það eru um það bil 76 milljónir íslenskra króna.
FC Utrecht lenti í 7. sæti í hollensku úrvalsdeildinni en gangi félagsskiptin í gegn verður Kolbeinn fyrsti íslenski leikmaðurinn sem leikur fyrir liðið. Kolbeinn hefur leikið 12 landsleiki fyrir hönd Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir