InnlentÞyrla Gæslunnar sótti veikan einstakling austur á Hérað: „Sjúkraflugið komst ekki vegna þoku“12. júní 2024 Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug til Egilsstaða í morgun og flutti veikan einstakling á spítala. Íbúum á Héraði fyrir austan brá nokkuð í morgun þegar sjúkrabíll í lögreglufylgd keyrði í ofvæni á Egilsstaðaflugvöll, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið. Reyndist vera um veikan einstakling að ræða sem þurfti á bráðri hjálp að halda á sjúkrahúsi. Vegna þoku hafði sjúkraflugvélin ekki komist í loftið...
InnlentVerðgáttin lögð niður fyrir fullt og allt: „Fyrst þau eru hætt þessu þá þurfum við að loka síðunni“12. júní 2024 Eins og Mannlíf greindi frá þá hefur Verðgáttin verið óvirk um nokkurt skeið og óskaði eftir upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunar, sem sér um Verðgáttina, um ástæður þess en RSV var stofnað árið 2004 og að því standa Menningar- og viðskiptaráðuneytið, VR, Samtök verslunar og þjónustu, Bílgreinasambandið og Háskólinn á Bifröst. Í svari frá Magnúsi Sigurbjörnssyni, forstöðumanni RSV, sagðist hann hins...
InnlentEngar hvalveiðar og allir fúlir12. júní 2024 Hvalveiðar verða ekki í sumar, ef marka má yfirlýsingar Kristjáns Loftssonar, aðaleiganda Hvals, hf. í framhaldi þess að Bjarkey Gunnarsdóttir Olsen leyfði hvalveiðar í ár eftir langt þóf og með ströngum skilyrðum. „Ég sé ekki fyrir mér að orðið geti af hvalveiðum í sumar, enda er tíminn á milli vertíða notaður til undirbúnings veiða næsta árs. Flest fólk skilur þetta,...
SlúðurHefnd Björns Vals12. júní 2024 Björn Valur Gíslason, fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Vinstri-Grænna, dregur ekkert af sér í gagnrýni á forystu flokks síns vegna fylgishrunsins sem blasir við. Björn segir Guðmund Inga Guðbrandsson, leiðtoga VG, vera ófæran um að bjarga flokknum úr ógöngunum. Þetta kom fram í Silfri Egils þar sem hann fór mikinn. „Hann er ekki formaður eða leiðtogi sem fólk ætlar að fylgja,“...
InnlentBarn reyndi að brjótast inn í skóla – Drukknir ökumenn í Kópavogi og skemmdarvargur í Hafnarfirði12. júní 2024 Helstu verkefni lögfreglu undanfarinn sólarhring snúa að innbrotun. Krakki var gripinn vipð að brjótast inn í skóla ói austurborginni. Barnið reyndi að komast innum glugga en var gripið af lögreglu áður en innbrotið var fullframið. Lögreglan ók barninu til síns heima. Óljóst er hver tilgangu krakkans var en skólahaldi er lokið vegna sumarleyfa. Á öðrum tíma og stað var lögreglu...
MannlífiðGuðlaugur brjálaður út í borgina vegna rottugangs: „Skilja okkur eftir í þessum viðbjóði“11. júní 2024 Það er óhætt að segja að Guðlaugur Lárusson íbúi í Hlíðahverfi hafi verið mjög ósáttur með rottugang í hverfinu árið 1990. „Ég lá í sólbaði á grasflötinni við hús í síðustu viku og vissi fyrr en rotta kom labbandi að mér í mestu rólegheitum. Mér brá illa en kvikindið virtist ekki hrætt fyrir fimmaura. Það er orðið mikið um rottur...
InnlentAnna kærði hundaeigendur til MAST: „Vesalings hundurinn var enn í búrinu í steikjandi sól“11. júní 2024 Áhyggjufull kona kærði hundaeiganda til Matvælastofnunar eftir að hafa séð hundinn í steikjandi hita í litlu búri án vatns og ekki í fyrsta skipti. Anna nokkur birti í gær ljósmynd af hundi í pínulitlu búri úti við, í Facebook-hópnum Hundasamfélagið. Var hún að biðja um ráð því hún var ekki viss hvað hún ætti að gera. Hún hafði áður rætt...
43:35InnlentSjóarinnKristján Berg opnar sig um fangelsisvistina: „Ég þreif þar oft blóð af veggjum“11. júní 2024 Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiskikóngurinn eins og hann er gjarnan kallaður og eigandi Heitra potta, hefur verið þekktasti fisksali á Íslandi um árabil en hann hefur selt Íslendingum fisk í yfir þrjátíu ár. Frumlegar auglýsingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjölmiðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hispurslaus á...
InnlentÖkumaður fólksbifreiðarinnar var Íslendingur á þrítugsaldri11. júní 2024 Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á sunnudagskvöld, var íslenskur karlmaður á þrítugsaldri. Samkvæmt frétt mbl.is var maðurinn fæddur 1999 og búsettur á Íslandi. Fólksbifreið sem maðurinn ók í norður, skall framan á jeppa sem ekið var til suðurs. Lést ökumaður fólksbifreiðarinnar en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumann og farþega jeppans á Landspítalann...
InnlentLíkur á öðru gosi aukast – Landris hafið að nýju á Reykjanesskaga11. júní 2024 Landris er hafið að nýju á Reykjanesskaga. Þetta sýna mælingar Veðurstofunnar en landsig sem mældist fyrstu dagana eftir nýjasta gosið, er lokið. Ekki er hægt að segja hversu hratt landrisið er, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar en búast má við að innflæði kviku í kvikusöfnunarsvæðið sé meira en útstreymi úr gígnum. Bendir þetta til þess að annað gos sé yfirvofandi en það...
InnlentHvalveiðarPíratar leggja fram frumvarp um hvalveiðibann: „Sorglegt er það samt“11. júní 2024 Andrés Ingi Jónsson hvetur Alþingi til þess að bregðast við ákvörðun matvælaráðherra um að leyfa hvalveiðar, með því að samþykkja frumvarp Pírata um bann við veiðunum. Fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna og núverandi þingmaður Pírata, Andrés Ingi Jónsson segir í Facebook-fæslu að þó að hvalveiðileyfið hafi legið í loftinu, væri það þó sorglegt „Hvern hefði grunað að ríkisstjórn sem Vinstri græn...
InnlentHvalveiðarDýraverndarsamband Íslands harmar ákvörðun Bjarkeyjar: „Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“11. júní 2024 Dýraverndarsamband Íslands lýsir vonbrigðum með ákvörðun Bjarkeyjar Olsen, matvælaráðherra, um að leyfa hvalveiðar í sumar. Rétt í þessu sendi Dýraverndarsamband Íslands frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar ákvörðunar matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar í sumar. Ítrekar sambandið kröfu sína um að lög um hvalveiðar verði afnumin eða þeim breytt. Segir í yfirlýsingunni að hvalveiðar séu „algjör tímaskekkja í nútímasamfélagi enda eru veiðar...
MenningMannveira í Mosfellsbæ11. júní 2024 Það verður sannkölluð veisla í Mosfellsbæ 3. – 6. júlí næstkomandi en þá verður svartmálmshátíðin Ascension haldin en hún var fyrst haldin árið 2019. Margar íslenskar hljómsveitir koma fram á hátíðinni sem fer fram í Hlégarði og er meðal annars hægt að nefna sveitirnar Mannveira, Naðra, Misþyrming og Kælan Mikla. Þá munu Drowned, Afsky, Kollaps og Mortuus einnig heiðra Íslendinga...
HeimurAntonio Guterres: „Hraði og umfang blóðbaðs á Gaza er umfram allt sem ég hef séð sem aðalritari“11. júní 2024 Antonio Guterres, framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna segist aldrei hafa séð jafn mikið blóðbað á svo skömmum tíma, frá því að hann hóf störf sem aðalritari SÞ. Í Jórdaníu stendur nú yfir ráðstefna vegna ástandsins á Gaza, í Palestínu en fyrir stuttu steig Antonio Guterres í pontu. „Hraði og umfang blóðbaðs og manndráps á Gaza er umfram allt sem ég hef séð...
InnlentHvalveiðarBjarkey leyfir hvalveiðar: „Ég verð engu að síður að fara eftir lögum“11. júní 2024 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur gefið Hval hf. veiðileyfi til veiða á langreyðum. Tilkynnti hún þetta rétt í þessu en RÚV sagði frá. Beðið hafði verið eftir ákvörðun Bjarkeyja með óþreyju en í dag tilkynnti hún að Hval hf. skyldi hljóta veiðileyfi til veiða á langreiðum. Gildir leyfið fyrir veiðitímabilið 2024 og verður leyfilegt að veiða 99 dýr á svæðinu...
LandiðKristján markaðssetur menningu á Akureyri11. júní 2024 Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Menningarfélags Akureyrar. Kristján hefur á undanförnum árum verið framkvæmdastjóri Kraumar framleiðslu en fyrirtækið starfar við kvikmyndaframleiðslu og markaðsstarfi. Kristján hefur verið puttanna í mörgu í gegnum árin en reynsla hans í sjónvarpi, útgáfu og markaðsstjórnun þótti henta vel í nýja starf hans. Þá er Kristján menntaður leikstjóri og hefur lagt stund á meistaranám...