InnlentÓskar Hrafn hefur störf hjá KR10. júní 2024 Knattspyrnumaðurinn og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn til starfa hjá KR en þó ekki sem knattspyrnuþjálfari en frá þessu er greint á samfélagsmiðlum KR. „Það er knattspyrnudeild KR sérlega ánægjulegt að tilkynna að Óskar Hrafn Þorvaldssonar hefur verið ráðinn til starfa hjá deildinni. Óskar hefur störf hjá deildinni strax, en fyrstu vikurnar verður hann í hlutastarfi þar...
LandiðViðbragðshópur vegna kuldatíðar settur á laggirnar – Kaltjón á ræktarsvæðum verulegt10. júní 2024 Viðbragðshópur á vegum stjórnvalda hefur verið settur á laggirnar vegna þeirra erfiðleika sem kuldatíðin undanfarið hefur valdið. Á vef Stjórnarráðsins er sagt frá því að viðbragðshópur hafi verið skipaður til að bregðast við þeim erfiðleikum sem kuldatíðin hefur valdið víða í sveitum undanfarnar vikur. Í hópnum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættanna á Norðurlandi vestra...
MenningEurovision-stjarnan Greta Salóme þunguð: „Við erum þakklát og spennt“10. júní 2024 Söngkonan og Eurovision-stjarnan Greta Salóme Stefánsdóttir hefur tilkynnt að hún sé ólétt af sínu öðru barni. Fyrir á hún soninn Bjart Elí með Elvari Karlssyni en sonur þeirra fæddist árið 2022. Greta tilkynnti óléttuna á samfélagsmiðlinum Instagram og birt hugljúft myndband með. „Við getum ekki beðið eftir haustinu og litla krílinu sem ætlar að bætast í fjölskylduna. Það sem við...
HeimurFyrrum tengdapabba Diddy býður við myndbandinu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“10. júní 2024 Faðir Kim Porter, Jake Porter, lýsir andstyggð sinni yfir nýlega birtu myndbandi af Sean „Diddy“ Combs, sem réðst á söngkonuna Cassie Ventura árið 2016. Diddy er fyrrverandi tengdasonur Jake. Jake ræddi við Rolling Stone tímaritið á föstudaginn en dóttir hans, Kim heitin, var í sambandi með Diddy í fjöldi ára og átti með honum þrjú börn. Í viðtalinu gagnrýndi Jake...
InnlentBanaslys í Borgarfirði10. júní 2024 Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandsvegi, skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á níunda tímanum í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Vesturlandi. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að fólksbifreið sem ekið var í norður hafi skollið framan á jeppabifreið sem ekið var til suðurs. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumaður og farþegi jeppabifreiðarinnar til á...
MenningFimm ára gamalt undrabarn slær í gegn í Bandaríkjunum – MYNDBAND10. júní 2024 Chrisyius Whitehead er sennilega frægasti fimm ára drengur heims um þessar mundir en hann sló heldur betur í gegn sjónvarpsþættinum America’s Got Talent í seinustu viku. Hinn fimm ára gamli meistari sýndi hæfileika sem fáir fullorðnir búa yfir, hvað þá börn. Whitehead er nefnilega ótrúlega fær trymbill en hann hefur spilað á trommur síðan hann var eins árs gamall að...
SlúðurBaltasar og Óskarinn10. júní 2024 Leikstjórinn og athafnamaðurinn Baltasar Kormákur er á sannkallaðri sigurbraut eftir að kvikmynd hans, Snerting, kom fyrir allmenningssjónir. Myndin er byggð á sögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Egill Ólafsson fer á kostum í aðalhlutverki myndarinnar þrátt fyrir að glíma við erfið veikindi. Gríðarleg ánægja er með myndina og aðsókn að henni frábær. Margir eru á þeirri skoðun að myndin sé sú einhver...
InnlentReiðibylgja skellur á Fiskikónginum og sniðgöngu hótað: „Ég fyrirgef ykkur öllum“10. júní 2024 Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, stendur í ströngu eftir að hann birti opinberlega læknisvottorð starfsmanns síns sem hann gaf til kynna að væri að svíkja út laun í veikindum. Á mynd af vottorði launþegans mátti greina kennitölu hans. Fjölmargir hafa orðið til þess að fordæma framferði Kristjáns Bergs og einhverjir hvetja til þess að fólk sniðgangi verslanir hans, Fiskikónginn og Heita...
HeimurMissti tæp 40 kíló með einföldum breytingum: „Mér leið hræðilega í eigin skinni“9. júní 2024 Angela Dimmer, 78 ára amma frá Bristol missti tæp 40 kíló með einföldum breytingum á mataræði sínu sem hún deildi með breska blaðinu The Mirror. „Ég naut þess að drekka. Rauðvín og hvítvín voru í uppáhaldi hjá mér. Ég drakk aldrei á mánudögum af því fólk segir að maður eigi að hafa einn þurran dag en ég drakk nokkur glös...
InnlentManni bjargað á Fimmvörðuhálsi – Þyrla send að sækja hann9. júní 2024 Senda þurfti þyrlur Landhelgisgæslunnar til að bjarga manni sem var í sjálfheldu á Heljarkambi á Fimmvörðuhálsi. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti það í samtali við fréttastofu Vísis en málið kom á borð gæslunnar upp úr klukkan 14:00 í dag og voru þyrlur hennar mættar á vettvang tveimur tímum síðar. Maðurinn er sagður hafa hlotið minni háttar að meiðsli en eina...
InnlentÞremur skipverjum sleppt eftir handtöku vegna kynferðisbrots: „Strax tekið mjög alvarlega“9. júní 2024 Greint var frá því um fyrr helgina að skipverji sem starfar á hinu grænlenska skipi Polar Nanoq hafi verið handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot og greindu fjölmiðlar frá því að hann hafi farið með konu um borð í skipið eftir að hafa hitt hana á balli í Hafnarfirði. Lögreglan hefur nú sent frá sér tilkynningu um málið. „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu...
HeimurLeitaði sér matar í ruslagámum: „Ég er búinn að missa marga vini úr þessum sjúkdómi“9. júní 2024 Fyrrum heróínfíkill losnaði úr fjötrum sjúkdómsins og undirbýr sig nú til þess að klífa eitt stærsta fjall heims. Scott Stevenson er 36 ára Breti sem segir nú sögu sína sem fíkill og vonast til þess að hún hjálpi öðrum sem glíma við sama vanda. Í viðtali við Birmingham Live segir Scott frá að hann hafi einungis verið 13 ára þegar...
SlúðurVísir borgaði ekki9. júní 2024 Margir Íslendingar ráku upp stór augu í gær þegar ekki var hægt að komast inn á heimasíðu Vísis, eins mest lesna vef landsins. Vefurinn lá síðan niðri um nokkurt skeið og þurftu netverjar að leita á náðir annarra fjölmiðla til að fá fréttirnar beint í æð. Það tók þó ekki langan tíma fyrir íslenska internetspæjara að komast að hvert vandamálið...
Innlent71 árs gamall maður handtekinn fyrir þjófnað á tæplega þrjú þúsund LEGO leikföngum – MYNDIR9. júní 2024 Það blasti ótrúleg sjón við lögreglumönnum í Long Beach í Los Angeles í síðustu viku þegar þeir réðust til atlögu að heimili Richard Siegel en grunur lék á að hann væri að selja þýfi. Þegar lögreglumenn framkvæmdu leit á heimilinu kom í ljós að hinn 71 árs gamli Bandaríkjamaður hafði stolið 2800 óopnuðum LEGO kössum í samstarfi við Blanca Gudino....
InnlentMeintur kynferðisafbrotamaður handtekinn í Hafnarfirði9. júní 2024 Skipverji í grænlenska togaranum Polar Nanoq var í gær handtekinn grunaður um kynferðisbrot en RÚV greindi fyrst frá málinu. Samkvæmt heimildum RÚV er skipverjinn sagður hafa farið með konu um borð í skipið sem er við höfn í Hafnarfirði og brotið á hann kynferðislega. Þá herma heimildir DV að málið tengist ónefndum bar í Hafnarfirði þar sem ball hafi verið...
InnlentTvær konur fluttar á Landspítalann með þyrlu eftir bílveltu – Ökutækið sagt ónýtt9. júní 2024 Þyrla Landhelgisgæslunnar var í gærkvöldi send til að sækja tvær konur sem lentu í bílveltu milli Skaftártunguvegar og Kirkjubæjarklausturs en slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan 20. Mbl.is greinir frá því að önnur konan hafi verið höfuðáverka en ekki er vitað um líðan hinnar konunnar. Þá þrír aðrir farþegar í bílnum en þeir hafi gengið út úr bílnum eftir...