1
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

2
Innlent

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss

3
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

4
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

5
Menning

Bubbi er kominn heim

6
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

7
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

8
Fólk

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista

9
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

10
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Til baka

Birgir Guðjónsson er fallinn frá

shutterstock_2157138689
Mynd: Shutterstock

Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík og fyrrverandi knattspyrnumaður með KR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sumardagsins fyrsta, 24. apríl síðastliðinn, 68 ára að aldri.

Frá andláti hans er greint í Morgunblaðinu í dag og honum er einnig minnst á heimasíðu Menntaskólans í Reykjavík og Knattspyrnufélags Reykjavíkur. Birgir starfaði sem kennari við MR í rúma fjóra áratugi.

Hann lætur eftir sig eiginkonu sína, Guðrúnu Þórhallsdóttur, dósent í íslenskri málfræði, og dóttur þeirra, Ragnheiði Birgisdóttur, menningarblaðamann hjá Morgunblaðinu.

Útför Birgis fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 8. maí klukkan 15.

Rótgróinn KR-ingur

Birgir fæddist 16. apríl 1957, sonur Guðjóns Peter Hansen og Hólmfríðar Kristjánsdóttur. Hann var dóttursonur Kristjáns L. Gestssonar, fyrrverandi formanns KR og leiðtoga félagsins á fyrri hluta 20. aldar.

Hann hóf snemma æfingar með KR og þótti efnilegur leikmaður. Hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki sumarið 1976 og lék með liðinu til ársins 1983 þegar meiðsli urðu til þess að hann lagði skóna á hilluna. Birgir lék alls 133 leiki fyrir meistaraflokk KR og skoraði 14 mörk.

Að loknum leikmannaferli starfaði hann áfram innan félagsins, meðal annars í meistaraflokksráði og síðar sem ritari í stjórn knattspyrnudeildar KR á árunum 1991–1993.

Kennari sem nemendur nutu leiðsagnar af

Birgir hóf kennslu við Menntaskólann í Reykjavík árið 1979 og sinnti því starfi í 44 ár, þar til hann veiktist fyrir tveimur árum. Hann var vinsæll kennari sem hafði alltaf hagsmuni nemenda og skólans í forgangi, og var hlýlegur og vel liðinn samstarfsmaður.

„Við fráfall Birgis er höggvið stórt skarð í starfsmannahópinn. Við munum sakna góðs vinar,“ segir í minningarorðum á heimasíðu MR. Skólinn verður lokaður 8. maí þegar útförin fer fram.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Halle Berry trúlofuð
Heimur

Halle Berry trúlofuð

Vann Óskarverðlaun fyrir leik í myndinni Monster's Ball
Lögreglumaður sparkaði í lítinn hund
Myndband
Heimur

Lögreglumaður sparkaði í lítinn hund

Ofurfyrirsætan Cristina Galcenco látin
Heimur

Ofurfyrirsætan Cristina Galcenco látin

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð
Fólk

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð

Guðmundur fær tólf mánaða styrk
Sport

Guðmundur fær tólf mánaða styrk

Sautján ára piltur látinn eftir umferðarslys
Innlent

Sautján ára piltur látinn eftir umferðarslys

Telur líklegast að Frosti verði oddviti Miðflokksins
Pólitík

Telur líklegast að Frosti verði oddviti Miðflokksins

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss
Innlent

Kyrrðarstund haldin í Árbæjarkirkju í ljósi sorglegs slyss

Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð
Innlent

Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista
Myndir
Fólk

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu