Þing Brasilíu hefur samþykkt ný lög sem heimila pörum sem hafa hætt saman að deila forsjá gæludýra sinna. Lögin, sem samþykkt voru á þriðjudag, eru talin endurspegla aukið vægi gæludýra í lífi Brasilíumanna og breytt viðhorf til þeirra sem hluta af fjölskyldunni.
Samkvæmt lögunum mun dómari ákveða fyrirkomulag sameiginlegrar forsjár og skiptingu kostnaðar vegna umönnunar dýrs ef aðilar ná ekki samkomulagi sín á milli við skilnað. Skilyrði er að dýrið hafi dvalið mestan hluta ævi sinnar hjá viðkomandi pari.
Lögin gera jafnframt ráð fyrir því að sameiginleg forsjá verði ekki veitt ef fyrir liggja sakaskrár eða hætta á heimilisofbeldi hjá öðrum aðilanum.
Löggjafar vísa til þess að mál tengd forsjá gæludýra hafi aukist fyrir dómstólum á undanförnum árum. Þá eru lögin einnig sögð endurspegla samfélagsbreytingar þar sem sífellt fleiri pör eignast færri börn en mynda þess í stað sterk tengsl við gæludýr sín, sem oft eru talin fullgildir fjölskyldumeðlimir.
Brasilía, sem telur um 213 milljónir íbúa, á um 160 milljónir gæludýra, að stærstum hluta hunda.

Komment