1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

9
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Bresk ungmenni dæmd í fangelsi fyrir nauðgun

Fórnarlömbin voru 14 og 15 ára gamlar stúlkur

Hamar dómur
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Shutterstock

Áfrýjunardómstóll í Bretlandi hefur þyngt refsingu tveggja 15 ára drengja sem voru sakfelldir fyrir nauðgun og dæmt þá til fjögurra ára vistunar í unglingafangelsi. Með því var hnekkt fyrri dómi þar sem þeim hafði verið gert að sæta samfélagsúrræðum án fangelsisvistar.

Málið vakti mikla athygli í Bretlandi eftir að dómarinn Nicholas Rowland ákvað í maí að dæma drengina til þriggja ára endurhæfingarúrræða fyrir ungmenni. Hann sagði þá meðal annars að markmiðið væri að „forðast að glæpavæða þessi börn að óþörfu“.

Sú niðurstaða sætti harðri gagnrýni og vísaði Richard Hermer, ríkislögmaður bresku ríkisstjórnarinnar, málinu til afrýjunardómstóls með þeim rökum að refsingin væri of væg.

Drengirnir voru sakfelldir fyrir að hafa nauðgað tveimur stúlkum, 14 og 15 ára, í tveimur aðskildum atvikum í Hampshire á Suður-Englandi í nóvember 2024 og janúar 2025. Myndskeið af árásunum var dreift á netinu.

Sue Carr dómari sagði við uppkvaðningu dómsins að brotin væru svo alvarleg að enginn annar kostur væri en að vista þá í fangelsisúrræði fyrir ungmenni.

„Það sem þið gerðuð var svo alvarlegt að við eigum engra annarra kosta völ,“ sagði Carr við drengina sem voru viðstaddir með fjarfundarbúnaði.

Þriðji pilturinn, sem einnig var ákærður í málinu fyrir að hafa hvatt annan drenginn til nauðgunarinnar í síðara brotinu, heldur hins vegar óbreyttri refsingu sem felur ekki í sér fangelsisvist.

Málið vakti einnig alþjóðlega athygli þegar franska nauðgunarþolandinn Gisèle Pelicot gagnrýndi upphaflega dóminn í viðtali við BBC. Hún sagðist vera „mjög slegin“ yfir því að gerendurnir hefðu fengið að ganga frjálsir á meðan fórnarlömbin myndu þurfa að lifa með afleiðingum brotanna alla ævi.

Vegna ungs aldurs verða drengirnir vistaðir í unglingafangelsi en ekki hefðbundnu fangelsi, þar sem aðeins einstaklingar 18 ára og eldri afplána refsingu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu