Bryndís Mjöll Sævarsdóttir, sem starfaði sem sumarstarfsmaður hjá Happdrætti Háskóla Íslands árið 2023, hefur verið dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar
Samkvæmt dómnum dró hún sér rúmlega tvær milljónir króna í reiðufé sem geymt var í peningaskáp happdrættisins, en hún hafði ein aðgang að skápnum. Svo tók hún fimm milljónir króna af reikningi dótturfélags happdrættisins, Húseignarinnar Steindórsprents, og lagði fjárhæðina inn á eigin bankareikning og annan bankareikning í eigu ónefnds aðila.
Bryndís játaði skýlaust sök í málinu. Fram kom í dómi að hún hefði ekki áður gerst sek um auðgunarbrot og að á sakavottorði hennar væri ekki að finna brot sem hefðu áhrif á ákvörðun refsingar. Þá var einnig litið til þess að hún játaði brot sitt og samþykkti bótakröfur.
Refsing Bryndísar var því ákveðin 30 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Bryndísi er jafnframt gert að endurgreiða Happdrætti Háskóla Íslands og Húseigninni Steindórsprenti milljónirnar sjö sem hún dró sér, að ógleymdum dráttarvöxtum.

Komment