1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

9
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Chris Brown þarf að borga 13 milljónir dala eftir blóðuga hundaárás

Söngvarinn kenndi fórnarlambinu um

Chris Brown
Söngvarinn Chris Brown
Mynd: DFree/Shutterstock

Chris Brown hefur verið dæmdur skaðabótaskyldur gagnvart fyrrverandi ráðskonu sinni eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að hann bæri ábyrgð á alvarlegum meiðslum sem hún hlaut í hundsárás á heimili hans.

Dómurinn féll á þriðjudag eftir langvarandi dómsmál milli Brown og fyrrverandi starfsmanns hans, Maria Avila. Hún höfðaði mál gegn söngvaranum og hélt því fram að hann hefði sýnt af sér gáleysi með því að leyfa stórum hundi að ganga lausum í bakgarði eignarinnar.

Samkvæmt framburði Avila varð árásin þegar hún var að fara með rusl út. Hún sagði fyrir dómi að hundurinn hefði ráðist á sig og valdið henni alvarlegum áverkum. Hún kvaðst hafa verið alblóðug eftir árásina.

Brown hafnaði sök í upphafi málsins og hélt því fram að Avila hefði sjálf ögrað hundinum og þannig átt þátt í að valda árásinni og þeim meiðslum sem hún hlaut.

Við meðferð málsins kom einnig fram að Brown hefði ekki sjálfur hringt í neyðarlínuna eftir árásina þar sem hann óttaðist að símtalið myndi leka til fjölmiðla. Í staðinn hafi annar einstaklingur úr starfsliði hans haft samband við neyðarlínuna.

Avila krafðist alls 90 milljóna bandaríkjadala, jafnvirði um 11,5 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna málsins en mun fá 13 milljónir dala.

mariaavila
Maria Avila
Mynd: TMZ
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu