1
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

2
Innlent

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins

3
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

4
Pólitík

Karl Ágúst slær tvær flugur í einu háðshöggi

5
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

6
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

7
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

8
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen

9
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

10
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Til baka

Drýsill í Stykkishólmi

Sveitin nýtur mikillar virðingar meðal tónlistaráhugafólks

Stykkishólmur
Stykkishólmur
Mynd: Chensiyuan

Þungarokkshátíðin Sátan, sem haldin er árlega í Stykkishólmi fyrstu helgina í júní, hefur tilkynnt fyrstu hljómsveitirnar sem munu stíga á svið á hátíðinni árið 2027. Um er að ræða tvær áhrifamiklar sveitir í sögu íslensks þungarokks, HAM og Drýsil.

HAM snýr aftur á hátíðina eftir eftirminnilega frammistöðu á fyrstu Sátunni árið 2024 þegar sveitin lokaði laugardagskvöldinu. Frá stofnun hennar árið 1988 hefur HAM verið meðal fremstu rokksveita landsins og haft veruleg áhrif á þróun íslenskrar rokktónlistar. Sveitin nýtur mikillar virðingar meðal tónlistaráhugafólks og telst meðal mikilvægustu hljómsveita íslenskrar rokksögu.

Einnig hefur verið staðfest að Drýsill muni koma fram á hátíðinni. Sveitin markaði tímamót í íslenskri þungarokkssögu þegar hún gaf út plötuna Welcome to the Show árið 1985 með Eirík Hauksson í fararbroddi. Platan er almennt talin fyrsta íslenska þungarokksbreiðskífan og hefur skipað mikilvægan sess í sögu íslenskrar tónlistar.

Þrátt fyrir að ferill Drýsils hafi verið stuttur hefur áhrifamáttur sveitarinnar verið mikill. Sveitin kom síðast saman árið 2005 þegar hún hitaði upp fyrir Megadeth á Nasa í Reykjavík. Með tónleikunum á Sátunni 2027 mun Drýsill snúa aftur á svið eftir 22 ára hlé.

Platan Welcome to the Show var gefin út í afar takmörkuðu upplagi, eða um 666 eintökum. Vegna þess hve fá eintök voru framleidd hefur hún orðið eftirsótt safngripur meðal tónlistarsafnara og getur selst fyrir allt að 100 þúsund krónur á erlendum safnara- og uppboðsvefjum.

Skipuleggjendur Sátunnar segja það mikinn heiður að fá bæði HAM og Drýsil til þátttöku og telja komu þeirra marka sterka byrjun á kynningu dagskrár hátíðarinnar fyrir árið 2027.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

„Lífið tók algjöra U-beygju“
Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Pentagon birtir ný UFO-gögn
Myndband
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“
Viðtal
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“
Einkaviðtal
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins
Innlent

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins

Karl Ágúst slær tvær flugur í einu háðshöggi
Pólitík

Karl Ágúst slær tvær flugur í einu háðshöggi

Þrír handteknir fyrir líkamsárás í nótt
Innlent

Þrír handteknir fyrir líkamsárás í nótt

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu