
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir ennþá eftir Marijus Sidavicius, 45 ára, frá Litháen, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Litháens á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti fyrst eftir honum þann 6. mars.
Marijus er ekki talinn hættulegur að sögn lögreglu.
Lögreglan vildi ekki svara spurningum Mannlífs af hverju Sidavicius væri eftirlýstur eða hvort lögreglunni hefðu borist einhverjar ábendingar.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Marijus, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Marijus hefur til umráða gráan Ford S-Max með skráningarnúmerið IKR17 og er bifreiðarinnar einnig leitað.
Marijus er jafnframt hvattur til að gefa sig fram hjá lögreglu

Komment