1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

6
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

7
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

8
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

9
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

10
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Til baka

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“

Gunnar Smári Egilsson opnar sig um áhrif veikindanna á andlegu hliðina.

Gunnar Smári
Gunnar Smári EgilssonGunnar Smári er bjartsýnn þrátt fyrir allt
Mynd: Facebook

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, opnar sig um erfiða heilsu og bataferli í nýrri Facebook-færslu þar sem hann lýsir líðan sinni eftir innlagnir á hjartadeild.

„Ég sagði ykkur frá því um daginn þegar ég lagðist inn á hjartadeild tvívegis og fólk spyr mig því oft hvernig ég hafi það, sum um leið og þau óskuðu mér góðs sumars í gær. Skítt og lagó, svara ég, en ég verð góður í sumar. Þetta lýsir hugarástandi, ég hvorki veit né skil hvernig mér líður í dag en ég hef trú á að ég verði jafn góður aftur, ekki seinna en í sumar.“

Lýsir líkamlegri og andlegri vanlíðan

Gunnar Smári segir að veikindi hafi tekið mikinn toll, bæði líkamlega og andlega. Hann lýsir því hvernig orkan hafi horfið og líkamsstarfsemi breyst:

„Minn vandi er að ég kann ekki á mig lengur. Það hellist yfir mig mæði og þreyta án þess að ég sjái neitt samhengi. Ég sofna fimm sinnum yfir daginn, sitjandi í stól eða liggjandi í sófa.“

Hann segir jafnframt að hann hafi upplifað verulega skerðingu á orku:

„Ég er á 17% orku svaraði ég hjúkrunarfræðingi um daginn. Ég held ég sé kominn upp í 23%, svaraði ég daginn eftir.“

Flensa setti bataferli úr skorðum

Í færslunni kemur fram að flensa hafi gert ástandið verra og hrundið honum aftur í veikindi:

„Ég var kannski óheppinn, fékk flensu og þá gekk til baka sá árangurinn sem meðferðin hafði fært mér. Ég hrökk aftur úr takti og varð veikari en ég hef verið síðan ég fékk mislingana tólf ára.“

Hann lýsir einnig alvarlegum andlegum einkennum á meðan veikindin stóðu sem hæst:

„Í flensunni var ég með eins og vakandi óráð, fylgdist með huganum spinna upp einhverja þráhyggju um skaðlegt blóð og hvernig ég yrði að svara því, án þess að trúa þessu.“

Gunnar Smári segir að hann hafi misst styrk í rödd og tilfinningatjáningu:

„Ég hef misst aflið á bak við röddina. Hún er ekki bara veik heldur get ég ekki talað með eðlilegum áherslum. Ég á nóg með orðin, næ ekki að setja tilfinningu á bak við þau.“

Hann lýsir einnig ákveðinni firringu gagnvart eigin líkama:

„Húðin glansar stundum, ég horfi á hendurnar og þekki þær ekki, ekki frekar en lafði Macbeth.“

Í færslunni ræðir hann einnig um skort á skilningi á því hvernig líkamlegir sjúkdómar hafi áhrif á andlegt ástand:

„Ég hef ekkert sjúkdómsinnsæi, veit ekkert hvaða áhrif hjartabilun hefur á persónuleika fólks.“

Þrátt fyrir erfiðleikana segist hann bjartsýnn á bata:

„Ég skrifa þetta til að vita hvort andi minn sé með mér. Ég sakna hans og hlakka til að fá að lifa aftur fullu lífi. Það verður í sumar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innlent

Toyota innkallar Lexus NX
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

Innköllunin nær til Lexus NX-bifreiða af árgerðunum 2021–2024 vegna villu sem getur komið í veg fyrir að nauðsynleg viðvörunarljós birtist við ræsingu.
Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Loka auglýsingu