1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

4
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

7
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

8
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

9
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

10
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Til baka

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Þekktur læknir frá Gaza í lífshættu í ísraelsku fangelsi

Dr. Hussam Abu Safiya
Dr. Hussam Abu SafiyaAbu Safiya segist ekki eiga langt eftir
Mynd: Skjáskot

Einn þekktasti læknir Gaza, Hussam Abu Safiya, er nær óþekkjanlegur eftir alvarlega áverka sem hann er sagður hafa hlotið í haldi í Ísrael. Lögmaður hans segir líf hans vera í bráðri hættu eftir 18 mánaða gæsluvarðhald án ákæru eða réttarhalda, að því er fram kemur í frétt Guardian.

Abu Safiya hitti lögmann sinn, Nasser Odeh, þann 2. júlí eftir að hafa verið fluttur í lok júní í neðanjarðarfangelsið Rakefet í Ísrael.

Samkvæmt Odeh átti læknirinn erfitt með öndun og tal, var svo máttfarinn að hann gat vart setið uppréttur og virtist ítrekað vera við það að missa meðvitund.

Abu Safiya, sem stýrði áður Kamal Adwan-sjúkrahúsinu á norðurhluta Gaza þar til ísraelskir hermenn handtóku hann, sagðist óttast að hann myndi ekki lifa fangavistina af.

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig. Ég sé ekki fyrir mér að ég lifi þetta af. Þetta er endirinn,“ hefur Odeh eftir honum í sameiginlegri yfirlýsingu með Physicians for Human Rights Israel, sem ásamt fleiri samtökum krefjast tafarlausrar lausnar hans úr haldi.

Segja árásir á heilbrigðiskerfið hluta af stærra mynstri

Milena Ansari hjá Physicians for Human Rights Israel segir fangelsun Abu Safiya hluta af víðtækara mynstri árása Ísraels á heilbrigðiskerfi Palestínu.

Á sama tíma greindi fjölskylda fjögurra mánaða palestínsks drengs, Ahmad Maarouf Zaid, frá því að hann hefði látist eftir að ísraelskir hermenn hefðu komið í veg fyrir að fjölskyldan kæmist að sjúkrabíl við eftirlitsstöð á Vesturbakkanum.

Að sögn fjölskyldunnar þurftu þau sjálf að aka barninu um ógreiðfæra fjallvegi til Ramallah, sem tafði meðferð þess um rúma klukkustund.

„Fréttir af nýbura sem deyr eftir tafir við eftirlitsstöð, handtaka læknis sem veitti heilbrigðisþjónustu og síversnandi mannúðarástand á Gaza eru ekki einangruð atvik,“ sagði Ansari. „Þau endurspegla kerfisbundið mynstur þar sem grafið er undan forsendum fyrir rétti Palestínumanna til heilbrigðis.“

Barinn daglega

Fyrir handtöku sína varð Abu Safiya eitt helsta andlit heilbrigðisstarfsmanna á Gaza sem reyndu að sinna sjúklingum meðan þjóðarmorð stóð sem hæst.

Hann er í hópi þúsunda palestínskra óbreyttra borgara sem eru í haldi án dóms og laga. Ísraelsk mannréttindasamtök hafa sakað fangelsisyfirvöld um að reka fangelsi sem jafngildi pyntingabúðum.

Lögmaður hans segir að Abu Safiya hafi í lok maí verið fluttur í einangrun í Ganot-fangelsið án skýringa. Þar hafi fangaverðir ráðist á hann með hömrum og kylfum skömmu eftir að hann kom fram í gegnum fjarfundarbúnað við málflutning fyrir hæstarétti vegna gæsluvarðhalds síns.

Síðar hafi hann verið fluttur í Rakefet-fangelsið þar sem heilsu hans hafi hrakað verulega.

„Ég hef heimsótt dr. Abu Safiya nokkrum sinnum frá því hann var handtekinn, en sá maður sem ég hitti nú var ekki sami einstaklingur og áður,“ sagði Odeh og kallaði eftir tafarlausri óháðri læknisskoðun.

Samkvæmt lögmanninum sagðist Abu Safiya hafa verið barinn daglega í Rakefet og misst meðvitund nokkrum sinnum vegna áverka sinna.

Ísraelsk fangelsisyfirvöld hafna ásökunum

Rakefet-fangelsið, þar sem fangar sjá aldrei dagsljós, var reist á níunda áratugnum fyrir háttsetta skipulagða glæpamenn en síðar lokað þar sem það þótti ómannúðlegt. Fangelsið var opnað á ný að fyrirskipun þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben-Gvir.

Aðrir palestínskir fangar sem þar hafa verið í haldi hafa einnig lýst loftleysi og köfnunartilfinningu í yfirfullum og óloftræstum klefum.

Talsmaður ísraelskra fangelsisyfirvalda hafnaði ásökunum Odeh og sagði þær „rangar og algjörlega án staðreynda“, en vildi ekki tjá sig um heilsufar Abu Safiya og vísaði til persónuverndar.

„Hin endanlega niðurlæging“

Eins og segir frá hér fyrir ofan var dauði hins fjögurra mánaða gamla Ahmads tilkynntur á sunnudagskvöld. Drengurinn fæddist eftir margra ára glasafrjóvgunarmeðferð og hafði verið við góða heilsu þar til hann fékk háan hita á sunnudagsmorgun.

Fjölskyldan kallaði eftir sjúkrabíl sem beið við hlið Ein Ayoub-hliðsins í flóttamannabúðunum Deir Ammar.

Frá 7. október 2023 hefur Ísrael reglulega bannað ökutækjum, þar á meðal sjúkrabílum, að fara um þessa leið sem er helsta tengingin við Ramallah og sjúkrahús borgarinnar.

Að sögn fjölskyldunnar stöðvuðu fjórir ísraelskir hermenn foreldrana þegar þau reyndu að komast að sjúkrabílnum, þrátt fyrir ítrekaðar bænir þeirra um að fá að fara í gegn.

Frændi barnsins, Arafat Ahmad Zaid, sagði að drengurinn hefði þurft súrefni og að lífi hans hefði hugsanlega verið bjargað ef hann hefði komist tímanlega á sjúkrahús.

Ísraelski herinn neitar því að hafa komið í veg fyrir að fjölskyldan fengi læknisaðstoð.

„Það eru engin orð til að lýsa sársaukanum við að horfa á eigið barn deyja í fanginu á sér og vita að ekkert sé hægt að gera til að bjarga því. Það er hin endanlega þjáning. Það er hin endanlega niðurlæging,“ sagði Arafat Ahmad Zaid.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Varan, sem inniheldur aspas, hefur verið selt í A4 um allt land.
Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Eldsneytisskorturinn er farinn að hafa áhrif á þjóðarsál Rússlands
11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Loka auglýsingu