Nýlegt og vandað einbýlishús að Auðnukór 9 í Kópavogi er á sölu og kostar það 395 milljónir króna og er meðal dýrustu einbýla landsins.
Ekki er þetta í fyrsta sinn sem það flokkast sem slíkt en það var líka staðan árið 2018 samkvæmt grein DV frá sama ári.
Athygli vekur að það hefur lækkað í verði en það kostaði 420 milljónir í febrúar.
Um er að ræða um 440 fermetra fasteign á einstökum útsýnisstað, staðsetta innst í botnlanga við opið grænt svæði ofan við golfvöll GKG.
Húsið, sem var byggt árið 2011, þykir skera sig úr fyrir fallega hönnun, gott innra skipulag og vandað efnisval, þar sem engu hefur verið til sparað. Eignin er einangruð að utan og klædd, sem gerir hana viðhaldslétta.
Samkvæmt fasteignaskrá er húsið tæplega 400 fermetrar, en raunstærð þess er meiri þar sem neðri hæð hefur verið stækkuð með nýtingu áður óútgrafins rýmis. Þar hefur meðal annars verið komið fyrir rúmgóðu vinnuherbergi og geymslum.
Utan við húsið er stórt steypt plan sem nær allan hringinn í kringum eignina. Hiti er í planinu sunnan megin, sem eykur þægindi og notagildi þess yfir vetrartímann.


Komment