1
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli landsins á gjafverði

2
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúmar þrjár vikur en finnst ekki

3
Heimur

Vara við nýju æði á Kanaríeyjum

4
Heimur

Tveir afar reyndu að bjarga lífi stúlku sem stungin var til bana

5
Innlent

Fatakaup Reykjavíkurborgar ekki skráð nákvæmlega

6
Heimur

Íslandsvinur féll á flugvelli

7
Innlent

Guðmundur dæmdur fyrir árás á skemmtistað

8
Innlent

Hekla innkallar Skoda og Audi bíla

9
Innlent

Hjálmtýr hjólar í Moggann og Stefán Einar

10
Heimur

„Allt líf hennar var tekið á augabragði út af strák“

Til baka

Ekið á mann í hjólastól

Lögregla
10 gistu fangaklefa í dagMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag vegna fjölda útkalla sem tengdust þjófnuðum, skemmdarverkum og öðrum afbrotum.

Fjórir erlendir menn voru handteknir eftir að tilkynnt var um þjófnað í fataverslun í miðborg Reykjavíkur. Lögreglu tókst að hafa uppi á mönnunum og var þýfið endurheimt. Þeir voru vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Einnig barst tilkynning um mann sem var til vandræða hjá fyrirtæki. Í ljós kom að um fyrrverandi starfsmann var að ræða, en hann var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Þá var tilkynnt um rúðubrot þar sem gerandi var enn á vettvangi við komu lögreglu. Um var að ræða einstakling sem lögregla kannaðist við. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu. Sami aðili var síðar um daginn tilkynntur tvisvar sinnum fyrir óspektir og var hann að lokum vistaður í fangaklefa.

Annar erlendur aðili var stöðvaður fyrir þjófnað í matvöruverslun og fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku.

Í Hafnarfirði var tilkynnt um nokkra grímuklædda menn sem voru með barefli og börðu húsnæði að utan. Mennirnir fóru af vettvangi en lögreglu tókst að hafa uppi á þeim og voru þeir allir vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Þá er til rannsóknar mál þar sem tilkynnt var um mikið tjón á fyrirtækjabifreið eftir árekstur sem átti sér stað um helgina. Lögregla hefur haft uppi á aðila sem grunaður er um aðild að málinu.

Einnig var tilkynnt um innbrot í bifreið þar sem tjónþoli varð vitni að verknaðinum áður en gerendur komust undan. Upptaka er til af atvikinu og þekkti lögregla gerendur. Málið er til rannsóknar.

Loks var tilkynnt um umferðarslys þar sem ekið var á mann í hjólastól á gangbraut. Hraði ökutækisins var lítill. Lögregla ræddi við báða aðila á vettvangi og er málið í rannsókn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eftirlýstur á Íslandi í rúmar þrjár vikur en finnst ekki
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúmar þrjár vikur en finnst ekki

Bíll hans finnst heldur ekki
Vara við nýju æði á Kanaríeyjum
Heimur

Vara við nýju æði á Kanaríeyjum

Daníel sparkaði ítrekað í höfuð manns á grúfu
Innlent

Daníel sparkaði ítrekað í höfuð manns á grúfu

Tveir friðargæsluliðar féllu í sprengingu í Líbanon
Heimur

Tveir friðargæsluliðar féllu í sprengingu í Líbanon

Fatakaup Reykjavíkurborgar ekki skráð nákvæmlega
Innlent

Fatakaup Reykjavíkurborgar ekki skráð nákvæmlega

Vita ekki hversu oft hefur verið hringt á lögreglu
Innlent

Vita ekki hversu oft hefur verið hringt á lögreglu

Hekla innkallar Skoda og Audi bíla
Innlent

Hekla innkallar Skoda og Audi bíla

Hjálmtýr hjólar í Moggann og Stefán Einar
Innlent

Hjálmtýr hjólar í Moggann og Stefán Einar

Þórdís Vals fær nýtt starf
Fólk

Þórdís Vals fær nýtt starf

„Allt líf hennar var tekið á augabragði út af strák“
Heimur

„Allt líf hennar var tekið á augabragði út af strák“

Þekktur grínisti látinn eftir harða baráttu við krabbamein
Heimur

Þekktur grínisti látinn eftir harða baráttu við krabbamein

Lögreglan leitar manns
Myndir
Innlent

Lögreglan leitar manns

Innlent

Hekla innkallar Skoda og Audi bíla
Innlent

Hekla innkallar Skoda og Audi bíla

Eftirlýstur á Íslandi í rúmar þrjár vikur en finnst ekki
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúmar þrjár vikur en finnst ekki

Daníel sparkaði ítrekað í höfuð manns á grúfu
Innlent

Daníel sparkaði ítrekað í höfuð manns á grúfu

Fatakaup Reykjavíkurborgar ekki skráð nákvæmlega
Innlent

Fatakaup Reykjavíkurborgar ekki skráð nákvæmlega

Vita ekki hversu oft hefur verið hringt á lögreglu
Innlent

Vita ekki hversu oft hefur verið hringt á lögreglu

Loka auglýsingu