
Camila Fernandez hefur verið dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi vegna umferðarslyss undir Eyjafjöllum í desember 2024 þar sem maður slasaðist alvarlega.
Málið var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi í apríl síðastliðnum og var dómtekið 11. júní. Camila, sem er fædd árið 2006 og með óþekkt lögheimili í Bandaríkjunum, var dæmd í 60 daga fangelsi. Fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hún almennt skilorð.
Slysið varð í desember 2024 og hlaut maðurinn alvarlega áverka. Meðal annars brotnuðu þrír hryggjarliðir og fjórir hálsliðir.
Camila var gert að greiða manninum tvær milljónir króna í miskabætur. Henni var jafnframt gert að greiða annarri konu sömu fjárhæð í miskabætur auk vaxta.
Þá var Camila gert að greiða tæplega 2,7 milljónir króna í sakarkostnað.
Ekki hefur tekist að birta Camila dóminn og var hann því birtur í Lögbirtingablaðinu.