
Felix Ólafsson prestur lést í Hillerød í Danmörku 4. mars síðastliðinn en hann var 96 ára gamall. Samband íslenskra kristniboðsfélaga greindi frá andláti hans.
Felix fæddist í Reykjavík þannig 20. nóvember árið 1929. Foreldrar hans voru Hallfríður Bjarnadóttir og Ólafur Guðmundsson.
Felix nam við kristniboðaskóla í Noregi og hélt eftir það til Eþíópíu og varð hann því fyrsti íslenski kristniboðinn sem sendur var þangað. Hann fór ekki einn þangað en Kristín Guðnadóttir, eiginkona hans, var með í vör
Felix sneri síðar aftur til Íslands og var í lok árs 1963 kosinn sóknarprestur í Grensássöfnuði í Reykjavík. Árið 1970 fluttust þau hjón til Noregs og starfaði Felix þar sem prestur.
Síðar starfaði hann sem prestur í Danmörku.
Felix lætur eftir sig þrjú börn.
Komment