
Fjögur börn létust eftir hnífaárás í leikskóla í Kampala, höfuðborg Úganda, í dag að sögn lögreglu. Börnin voru á aldrinum tveggja til þriggja ára, samkvæmt heimildum fjölmiðla á svæðinu
Grunaður árásarmaður komst inn í leikskólann með því að þykjast vera foreldri áður en hann réðst á börnin. Í yfirlýsingu frá talskonu lögreglunnar kemur fram að um afar alvarlegt og sorglegt atvik sé að ræða.
Reiðir íbúar á svæðinu reyndu að handsama og beita manninn ofbeldi þegar hann reyndi að flýja vettvang, en lögreglan greip inn í og handtóku hann áður en til þess kom.
Ekki liggur enn fyrir hvað vakti fyrir árásarmanninum, en lögregla hefur hafið rannsókn á málinu.
Myndskeið sem birtust á samfélagsmiðlum sýna skelfda foreldra safnast saman fyrir utan leikskólann, sem hefur verið girtur af, þar sem þeir biðu fregna af börnum sínum og kröfðust svara.
Slík ofbeldisverk eru sjaldgæf í Úganda og hefur atvikið vakið mikinn óhug meðal almennings.
Komment