1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Fyrrum leiðtogi samtaka sem kvaðst geta læknað samkynhneigð, gripinn í tálbeituaðgerð lögreglu

„Er það slæmt að ég vilji elska einhvern sem er 14 ára?“

Chambers
Alan ChambersChambers hefur verið ákærður en er laus gegn tryggingu.
Mynd: Orange County-lögreglan

Alan Chambers, fyrrverandi leiðtogi samtaka sem héldu því fram að hægt væri að „lækna“ samkynhneigð, hefur verið handtekinn í Flórída grunaður um að hafa reynt að koma á kynferðislegum samskiptum við 14 ára dreng.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu sýslumanns í Orange-sýslu átti Chambers, sem er 54 ára giftur tveggja barna faðir, í kynferðislegum samskiptum á netinu við lögreglumann sem þóttist vera unglingur.

„Rannsóknarlögreglumenn okkar stöðvuðu ofbeldismann áður en hann fékk tækifæri til að skaða barn,“ sagði í tilkynningu frá skrifstofu sýslumanns.

Rannsóknin stóð yfir frá febrúar fram í maí og á Chambers að hafa sent kynferðislega gróf textaskilaboð í gegnum Snapchat og Telegram, auk þess að reyna að skipuleggja fund með drengnum.

Samkvæmt dómskjölum sendi hann meðal annars mynd af nöktum líkama manns og aðra af andliti sínu. Þá á hann ítrekað að hafa rætt um að vilja stunda kynlíf með drengnum og spurt hvort hann gæti tekið leigubíl á skrifstofu sína.

Í skilaboðunum talaði Chambers um „forboðna ást“ og sagðist vilja drenginn „mjög mikið“.

„Er það slæmt að ég vilji elska einhvern sem er 14 ára?“ á hann meðal annars að hafa skrifað lögreglumanninum að því er fram kemur í gögnum málsins.

Chambers var forseti Exodus International á árunum 2001 til 2013. Samtökin störfuðu í Orlando og héldu því fram að hægt væri að breyta kynhneigð fólks.

Árið 2013 lagði Chambers samtökin niður og bað LGBTQ-samfélagið afsökunar á „árum óréttmætrar þjáningar og fordæmingar af hálfu samtakanna og kirkjunnar“.

Rannsakendur segja einnig að þeir hafi fundið skilaboð þar sem Chambers leitaði eftir kynlífi við karlkyns vændismenn.

Hann var handtekinn í umferðareftirliti 18. maí og viðurkenndi þá að hafa átt samskipti við einstakling sem hann taldi vera 14 ára á Snapchat.

Chambers býr nú með eiginkonu sinni og tveimur börnum í Winter Park.

Hann hefur verið ákærður fyrir að lokka barn til kynferðislegra samskipta í gegnum tölvu, dreifa efni sem talið er skaðlegt börnum og ólögmæta notkun fjarskiptatækja.

Honum var sleppt gegn tryggingu upp á 15 þúsund Bandaríkjadali með því skilyrði að hann hafi ekkert samband við einstaklinga yngri en 18 ára. Þá má hann ekki nota samfélagsmiðla og aðeins fara á netið vegna vinnu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Talsmaður Rússlandsforseta biður Rússa að hlusta ekki á sögusagnir
Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Talsmaður Rússlandsforseta biður Rússa að hlusta ekki á sögusagnir
Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Loka auglýsingu